Frjáls verslun - 01.06.1971, Blaðsíða 61
FRJÁLS VERZLUN NR. 6 1971
GREINAR OG VIÐTÖL
61
íþróttir: Golf
„Þetta er mjög góð skemmtun,
en einnig holl líkamsrækt64
Rætt við Pál Ásgeir Tryggva-
son og Jóhann Eyjólfsson,
formann og ritara Golfsam-
bands íslands.
Tveir félagar sem höfðu leik-
ið golf saman um árabil stóðu
dýríegan laugardag á golfbraut-
inni sem lá með þjóðveginum
og annar var að búa sig undir
að leika að par 4 holu. Allt í
einu birtist líkfylgd á veginum,
og í stað þess að slá kúluna tók
hann ofan hattinn og laut höfði
þar til líkfylgdin hafði farið
framhjá. Vinur hans stóð undr-
andi við hlið hans, en sagði
ekkert fyrr en bílalestin var
'horfin, þá sneri hann sér að
honum:
Heyrðu Jack, hvernig stend-
ur á þessu? Við höfum leikið
golf hér um árabil. og það
hafa margar líkfylgdir farið
fram hjá okkur, en ég hef
aldrei séð þig gera þetta áður.
Hinn leit á hann, brosti dap-
urlega og sagði: En hún var
mér alltaf svo góð eiginkona.
Líklega er þessi saga eitthvað
orðum aukin. en ef þú hittir
fyrir reglulegan „golf maniac“
þá er alveg eins víst að hon-
um þyki hún ekkert ótrúleg.
Hitt kann leikmönnum að
þykja ótrúlegt, hversu sterkum
tökum golfið getur náð á þeim
sem stunda það.
SÍÐAN UM 1930.
Golf var fyrst leikið á íslandi
(svo vitað sé) upp úr 1930, og
árið 1934, var Golfklúbbur
Reykjavíkur stofnaður. Aðal-
hvatamenn að stofnun hans
voru læknarnir Gunnlaugur
Einarsson, sem var fyrsti for-
maður. og Valtýr Albertsson.
Þeir voru ekki margir í fyrstu
kylfingarnir, en golf nýtur nú
mikilla vinsælda og það eru
rúmlega þúsund menn og kon-
ur sem stunda það í þrettán
klúbbum, víðsvegar um landið.
ERFIÐ BERNSKA.
Núverandi formaður Golf-
sambandsins er Páll Ásgeir
Tryggvason, og hann kann frá
mörgu að segja um upphaf
golfíþróttarinnar á íslandi, auk
þess sem það er svo til ómögu-
legt að stöðva hann þegar hann
fer að tala um framtíðina, því
eins og sagan hér að framan
bendir til, eru golfmenn mjög
áhugasamir.
Golfklúbbur Reykjavíkur
kom sér fyrst upp aðstöðu í
Laugardal, en varð að hverfa
þaðan þegar borgin tók að
vaxa. Fékk hann þá svæði norð-
austur af Öskjuhlíð og reistu
félagarnir sér þar skála, en
borgin elti þá á röndum og þeir
urðu að taka upp sitt hafurtask
og lentu nú inn í Grafarholti,
Nú á að vanda sig!
þar sem þeir eru enn. Það ligg-
ur í hlutarins eðli að það er
auðveldara að flytja ýmsa hluti
aðra en golfvelli, og þótt borg-
in greiddi þeim nokkrar skaða-
bætur vegna landsins sem þeir
urðu að gefa upp, nægði það
hvergi til að koma upp velli í
Grafarholti, enda mun leitun
að verra landsvæði til þess.
Jörðin er þarna mjög grýtt
og ófrjó og veturinn leikur
völlinn hart, því frostið þrýst-
ir grjóti upp úr jörðinni og
verða því árlega miklar
skemmdir.
Allt þetta umstang þýddi að
golfið lenti í lægð á tímabili,
enda er Golfklúbbur Reykja-
víkur skuldum vafinn. Jóhann
Eyjólfsson, ritari Golfsambands
ins, hefur þó ekki frekar en
Páll, alltof miklar áhyggjur af
því. Þetta er auðvitað leiðinda-
baggi, en með þeim nýju félög-
um sem sífellt bætast í hópinn,
verða þeir erfiðleikar brátt úr
sögunni, og þá verður smám
saman hægt að koma upp góðri
aðstöðu.
HÆFILEG OG HOLL
ÍÞRÓTT
Þeir félagar eru mjög og
innilega sammála um gildi golf-
íþrótt fyrir alla fjölskylduna.: 18 holu leikur, 7 kílómetra gang-
ur — og allmargar sveiflur, ásamt fersku lofti í lungun.