Frjáls verslun - 01.03.1972, Blaðsíða 6
Island
Reykjavíkurflugvöllur:
Hugmyndir um lengingu
flugbrautar
IVIyndi draga úr flugi yfir miðbænum
Hjá fjugmálayfirvöldum hef-
ur að undanförnu verið unnið
að áætlunum að endurbótum á
Reykjavíkurflugvelli með það
fyrir augum, að hann geti bet-
ur uppfyllt kröfur, sem gera
verður til slíkra samgöngumið-
stöðvar sem flugvöllur höfuð-
borgarinnar hlýtur að verða.
Ennfremur er af hálfu flug-
málastjórnarinnar lögð áherzla
á að beina flugi sem mest frá
miðbænum.
í aðalskipulagi Reykjavíkur
var gert ráð fyrir að flugvöll-
urinn stæði að minnsta kosti
til ársins 1983. Mikil óvissa
hefur ríkt um framtíðarflug-
völl höfuðborgarsvæðisins og
stjórnir nágrannasveitarfélaga
m. a. bundizt samtökum til að
koma í veg fyrir, að hann
verði á Álftanesi.
Varðandi Keflavíkurflugvöll
er það að segja, að aðilar virð-
ast sammála um, að hann skuli
verða framtíðarflugvöllur en
komi ekki að gagni sem inn-
anlandsflugvöllur fyrir höfuð-
borgina. í fyrsta lagi er talið
óheppilegt að beina umferð
flugvéla af öllum stærðum inn
á sama flugvöll. f öðru lagi er
veðráttan slík á íslandi, að
ferðum í innanlandsflugi hef-
ur verið frestað eða aflýst með
skömmum fyrirvara vegna
slæmra skilyrða á flugvöllun-
um úti á landi. Yrði mjög
erfitt að reka innanlandsflug-
ið frá Keflavíkurflugvelli,
nema með talsverðum óþæg-
indum fyrir farþegana af þess-
um sökum, sem áður var lýst.
Hjá flugmálastjórninni mun
nú vera í undirbúningi tillaga
um bætta aðstöðu á Reykjavík-
urflugvelli með þeim hætti, að
flugbrautin, sem liggur í vest-
ur frá Öskjuhlíð, yrði lengd
um eina 300 metra, meðal ann-
ars á uppfyllingu út í sjó, að
vestanverðu. Slík framkvæmd
myndi að öllum líkindum
krefjast neðanjarðarganga und-
ir brautina fyrir bílaumferð
og aðra vegfarendur, sem leið
ættu suður í Skerjafjörð eða
þaðan inn í bæinn. Öll þessi
áform yrðu að hljóta samþykki
samgönguráðuneytisins og
borgaryfirvalda í Rvík áður en
framkvæmdir gætu hafizt.
í sumar er ráðgert að hefja
lagfæringar og endurbætur á
austurenda þessarar brautar,
en hann þarf að styrkja og er
búizt við, að verja til þess 15
milljónum króna á árinu.
Framkvæmdir við lengingu út
í sjó að vestanverðu, yrðu
unnar á nokkrum árum.
Ef brautin yrði lengd sam-
kvæmt þeim áætlunum, er nú
liggja fyrir, má búast við, að
flugtök og lendingar, sem nú
fara fram yfir miðborgina,
færðust að verulegu leyti yfir
á austur—vestur brautina, í
60—70% tilvika að mati
sumra sérfræðinga.
Með lengingu út í sjó hœgrct megin á myndinni yrði dregið úr ílugi yíir miðborginni.
6 FV 3 1972