Frjáls verslun - 01.03.1972, Blaðsíða 39
Fjöldi mannct úr Kópavogi og jafnvel úr Keflavík gerir innkaup í Suðurveri í Stigahlíð.
um hverfum og jafnvel frá
Suðurnesjum, auk þess sem
fólkið í hverfinu í kring hefði
fljótt lært að meta, hversu
auðvelt er að gera helztu inn-
kaupin á einum stað. Kringlu-
mýrarbrautin skiptir megin-
máli fyrir afkomu fyrirtækj-
anna í Suðurveri, og hvers
konar lokanir götunnar koma
hart niður á fyrirtækjunum.
Ingibjörn Hafsteinsson,
kaupmaður í Hamrakjöri, er
aðeins 27 ára að aldri, en
hann hefur samt haft verzlun
frá byrjun miðstöðvarinnar.
„Hér í Suðurveri eru eig-
endur nærri alveg hinir sömu
og í byrjun. Reksturinn hefur
gengið misjafnlega, en yfirleitt
vel, og menn hafa ekki farið
á hausinn,“ segir hann. „Ár-
in 1968 og 1969 drógust við-
skiptin saman, því að efna-
hagur fólks var yfirleitt í lág-
marki. Ég gæti ekki lifað á
viðskiptum við fólkið hérna í
hverfinu einum, en viðskipta-
vinir koma úr öllum áttum.
HÚSMÆÐUR í HÁLFSDAGS-
STARFI
Ég reyni að hafa starfsfólk
í lágmarki. Mér hefur tekizt
að hafa breytilegan starfs-
mannafjölda, allt frá tveimur,
á þeim tímum dagsins, þegar
minnst er að gera, upp í fimm
auk mín á laugardagsmorgn-
um. Ég hef haft góða reynslu
af því, að húsmæður hafa
gjaman viljað koma hingað í
vinnu hálfan daginn, og með
því geta verið fjórir á anna-
tímanum dag hvern. Á laug-
ardögum hefur t. d. skólafólk
og bankafólk gjarnan viljað fá
vinnu og hafa svo frí aðra
daga.“
Ingibjöm og eigandi kjöt-
búðarinnar við hliðina, Ró-
bert, voru báðir á því, að erf-
itt væri að hafa samkeppni um
matvöru fyrir tvær ekki ósvip-
aðar búðir í sömu miðstöðinni.
Þó töldu þeir, að vöruval búð-
anna væri nægilega mismun-
andi til þess, að þetta hefði
gengið.
Kaupmenn voru sammála
um, að húsaleiga væri sann-
gjörn. Yfirleitt leigja þeir hús-
næðið til allmargra ára í senn.
„Konurnar þurftu tíma til
að átta sig á, að þær gátu
fengið þessar vörur hér í stað
þess að fara niður í bæ,“ sagði
verzlunarkonan í Gjafa- og
snyrtivöruverzluninni. Þetta
var nokkuð rólegt fyrst, en er
nú orðið ágætt.“ Sú verzlun
hefur, eins og flestar aðrar,
verið hér í fimm ár.
Fyrir um tveimur árum
kom Kringlumýrarbrautin til
sögunnar og breytti öllum að-
stæðum fyrir miðstöðina.
15% SAMDRÁTTUR VEGNA
VINSTRI BEYGJU BANNS
í viðtali við Sverri Þor-
steinsson, sem rekur Hlíða-
grill í Suðurveri, kom fram,
hversu háðar verzlunarmið-
stöðvar eru umferðaræðum.
Breytingar, sem voru gerðar á
beygjum í grennd við Suður-
ver, og einnig Norðurver,
höfðu veruleg áhrif á viðskipti
í verzlunarmiðstöðvunum.
Sverrir segir, að salan hafi
minnkað um 15% í nóvember,
þegar bönnuð var vinstri
beygja frá Kringlumýrarbraut,
en hún er nú aftur leyfð.
Grillin virðast yfirleitt
ganga vel, og þeim hefur fjölg-
að jafnt og þétt allra seinustu
árin, síðan Askur ruddi braut-
ina í þessari þjónustu.
„Viðskiptavinir Hlíðagrills
eru úr öllum áttum,“ segir
Sverrir. „Mikið frá Kópavogi
og alla leið frá Keflavík. Þá
eru alltaf stöðug viðskipti við
fólkið í nágrenninu, og
menntaskólanema í Hamra-
hlíð.“
„Meira þyrfti að hugsa fyr-
ir bílastæðum, þegar verzlun-
armiðstöðvar eru skipulagðar.
Lóðum er úthlutað, en ekki
hugsað nóg um þörfina fyrir
bílastæði með vaxandi fólks-
fjölda og bílaeign.“
FV 3 1972
39