Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1972, Blaðsíða 21

Frjáls verslun - 01.03.1972, Blaðsíða 21
inn opnaður á sörau slóðum, því að vallastæði þótti mjög áKjósanlegt einmitt þarna. — Og á þessum tímum hafa félagsmennirnir sjálfir orðið að leggja það á sig í sjálfboða- vinnu að koma upp leiKvangi? — Já. Þá urðu félagsmenn- irnir sjálfir að vinna að þeim máium, því að styrkur frá op- inberum aðilum var sama og enginn. /eiiingar hjá okkur i knatt- spyrnunni lágu fullkomlega möri írá því i lok september fram til mánaðamóta apríl- maí. Á þessum tíma var þó lögð áherzla á, að við stund- uðum fimleika, og gerði ég það líka. — Þú hvarfst af landi brott árið 1935 og hófst þá nám í Danmörku. Hvemig var því háttað? — rig lærði húsasmíði hér heima, en fór utan til fram- hatasnáms. Fyrst lærði egbygg- ingairæði og iauk prófi i henni I9dö og íeKk þá inngöngu í listahásKÓiann, þar sem eg var við nam tii ársins 1940. Var sjaiíu náminu lokið, en próf- ið var eitir, þegar Danmörk var hernumm. Það var ætiun- in að iara heim i sumarieyfi með Guiiiossi, sem átti að sigia 10. aprii, en daginn áður reöust Þjoðverjar inn í Dan- mórKu og iogðu hald á gamla Guiiioss. Isienzk yfirvöld gerðu margar tilraunir til að íá skipið aihent aftur og heim- ild iyrir það til að sigia heim með Isiendinga, sem staddir voru á Norðurlöndunum, en það tókst ails ekki. Biðum við reyndar í tvo mánuði eftir máiaiokum. Þá var af hálfu íslenzkra stjórnvalda leitað til Þjóðverja og Breta og farið fram á, að Esjan fengi að sigla út og sækja Islendinga. lig, kona mín og sonur vorum því í hópi þeirra 250 íslendinga, sem ferðuðust norður til Pets- amo haustið 1940 til þess að komast um borð í Esjuna. Sem kunnugt er var það sögufræg ferð, en eftir tafir og yfir- heyrslur í Skotlandi og eins á ytri höfninni í Reykjavík kom- umst við þó heim heilu og höldnu. — Voru nokkur verkefni fá- anleg í byggingaiðnaðinum á íslandi fyrst eftir hernám Breta? — Nei, það var lítið að gera. 1940 voru aðeins byggðar 25 íbúðir í Reykjavík, svo að ekki 1 teiknistofunni í Ármúla. var um það að ræða að fá starf á teiknistofu hjá öðrum. En við félagarnir Sigvaldi Thordarson réðumst þó i það að opna sjálfir stofu, sem við rákum í sjö ár. í fyrstu var ekki mikið á döfinni, en þegar líða tók á stríðið og þörfin varð meiri og peningaráð fólksins jukust, þurfti vita- skuld að byggja, bæði fyrir íbúa borgarinnar og hina mörgu aðkomumenn, sem til Reykjavíkur komu. En ég átti alitaf eftir að taka prófið og Sigvaldi hafði ekki lokið sínu námi. Við fórum því út til Kaupmannahafnar og tókum próf frá listaháskólan- um 1947. Eftir það rak ég síð- an teiknistofu um tíma með Kjartani Sigurðssyni, arkitekt, og einn frá 1950 til 1958, að ég tók tvo af samstarfsmönn- um mínum, þá Jósef Reynis, arkitekt, og Ólaf Júlíusson, byggingafræðing, í félag með mér og höfum við rekið teikni- stofuna í sameiningu síðan. — Hvað eru það mörg liús í Reykjavík, sem þú hefur teiknað? — Ég hef ekki haft tölu á því, en þau eru mörg. Aðal- lega hef ég teiknað íbúðarhús fyrir einkaaðila og ennfremur fyrir Byggingasamvinnufélag Reykjavíkur, en síðar fyrir Reykjavíkurborg, þegar hún ákvað að hefja byggingu íbúðarhúsnæðis í stórum stíl, til þess meðal annars að út- rýma öllum þeim herskálum, sem búið var í. — Er hægt að lýsa því í stuttu máli, hvernig húsbyggj- andi og arkitekt bræða sam- an hugmyndir sínar um útlit húss og innri skipan? — Það þurfa að fara fram viðræður við húsbyggjandann um stærð húsnæðis, fjölskyldu- stærð og viðhorf hans almennt til þeirra heimkynna, sem hann ætlar að skapa sér. Að þessu loknu getum við tekið til starfa og mótað tillögur að því húsi, sem við teljum henta. Sjónarmið eigandans eru tek- in til greina, þegar yfir þessar hugmyndir okkar er farið, og við segjum sjálfir, að því meira af pappír, sem við hend- um í bréfakörfuna, þeim mun betra verði húsið og fallegra. — Hvað' kostar vinna arki- tekts við meðaleinbýlishús? Hún mun nema 3-4% af byggingarkostnaði hússins. — Arkitektinn fylgist með fram- vindu mála allt frá frumundir- búningi og þar til smíði húss- ins lýkur. Hann er ráðgjafi eigandans um útlit og fyrir- komulag í kringum húsið, við efnisval og litaval inni og úti. Það er því hluti af starfi okk- ar að fylgjast með húsinu á hinum ýmsu byggingarstigum. Sé aftur á móti um daglegt eftirlit að ræða þarf að semja um það sérstaklega. Ef teikna á gott einbýlishús tekur það fjóra til sex mánuði. FV 3 1972 21

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.