Frjáls verslun - 01.03.1974, Blaðsíða 43
Vesturland:
Áætlanir um varanlega gatnagerð
á öllum þéttbýlissvæðunum
Guðjón Ingvi Stefánsson, framkvæsndastjóri Samtaka sveitarfélaga í
Vesturlandskjördæmi greinir frá lielztu framkvæmdum og atvinnulífi
í kjördæminu
Samkvæmt síðustu endanlegu íbúatölum, sem gefnar hafa
verið út af Hagstofu Islands, voru íbúar í umdæmi Vestur-
landskiördæmis samtals 13402 1. des. 1972.
Sá mannf jöldi skiptist þannig á þéttbýlisstaði, að á Akra-
nesi, sem er eini kaupstaðurinn í umdæminu, bjuggu 4356
íbúar, í Borgarnesi 1243, Hellissandi og Rifi 594, Ólafsvík
1057, Grundarfirði 602, Stykkishólmi 1045 og Búðardal 222
íbúar.
1 dreifbýlinu skiptust íbúar þannig, að í Borgarfjarðar-
sýslu voru þeir 1414, Mýrasýslu 950, Snæfellsnessýslu 993
og í Dalasýslu 927.
íbúar Vesturlands voru
6,36% af heildarmannfjölda
landsins 1. des. 1972, og hef-
ur þetta hlutfall farið nokkuð
lækkandi síðustu áratugi, en
þó mun hægar, en víðast hvar
annars staðar úti um land.
Samkvæmt bráðabirgðatöl-
um um mannfjölda, 1. des.
1973 hefur svipuð þróun hald-
ið áfram, þ. e. að íbúum í
þéttbýli hefur fjölgað ört, en
í dreifbýli hefur mannfjöldi
að mestu staðið í stað.
15%
HEILDARFRAMLEIÐSLU
LANDBÚNAÐARAFURÐA
Atvinnulíf á Vesturlandi
hefur mótazt af því, að í hér-
aðinu er mikið undirlendi og
því góð skilyrði fyrir landbún-
að og svo af því, að skammt
undan ströndinni eru ein feng-
sælustu fiskimiðin við landið.
í sveitunum er atvinnan bund-
in framleiðslu á landbúnaðar-
vörum, en þéttbýlið hefur
myndazt vegna útgerðar og
fiskvinnslu eða vegna þjón-
ustu við landbúnaðinn og úr-
vinnslu landbúnaðarafurða.
Ýmsar aðrar greinar iðnaðar
og þjónustu hafa þó vaxið
verulega seinni árin.
Auk þessa eru 18 garðyrkju-
býli. Nærri lætur, að fram-
leiðslan á Vesturlandi sé um
15% af heildarframleiðslu
landbúnaðarafurða á landinu.
Stærð skipastólsins á Vest-
urlandi var í árslok 1972
10906 brúttólestir, þar af 8452
brúttólestir í fiskiskipum, sem
er rúmlega 10% af heildar-
fiskiskipastól landsmanna.
í eftirfarandi töflu eru nokkrar upplýsingar um stöðu land
búnaðarins á Vesturlandi skipt eftir sýslum.
Byggðar jarðir 1.1. 71 Tún, rækt’un (ha) 1.1. 71 Nautgripir 1972 Sauðfé 1972
Borgarfj. sýsla 215 5148 3642 31627
Mýrasýsla 178 3603 2385 36126
Snæfellsnessýsla 190 3615 1830 33348
Dalasýsla 164 3073 1329 35499
FV 3 1974
43