Frjáls verslun - 01.03.1974, Blaðsíða 61
getum ekki náð þeirri ihag-
kvæmni í framleiðslu, sem
æskilegt væri.
— Hvernig er með útfl’utn-
ing?
— Við vitum, að okkar vor-
ur standast fyl’lilega gæðasam-
anburð við erlendar vörur, en
til þess að koma þeim á mark-
að erlendis þarf gífurlega
miklar auglýsingar og á því
hefur þetta strandað til þessa.
Við munum þó ennþá halda
áfram að leita fyrir okkur um
þessa hluti, og við trúum því,
að það muni takast.
— Hvað um umbúðir og
hönnun þeirra?
— Við kaupum mikið af
okkar umbúðum frá íslenzkum
aðilum, svo sem frá Kassagerð
Reykjavíkur og Sigurplasti h.f.
Hönnun umbúða höfum við að
miklu leyti annazt sjálfir.
Fulltrúar frá Wella hafa lýst
ánægju sinni með okkar vöru-
hönnun, og telja hana með því
bezta sem þeir hafa séð hjá
framleiðendum Wella vara.
Það hefur jafnvel komið til
tals, að þeir tækju sjálfir upp
nokkrar umbúðir óbreyttar. í
sambandi við val umbúða set-
ur markaðurinn okkur einnig
talsvert miklar takmarkanir,
því sumt sem við e. t. v. vilj-
um kaupa erlendis frá, getum
við ekki fengið, nema í mjög
stórum upplögum, sem tæki
okkur mörg ár að selja.
— Að síðustu Haildór, hver
eru framtíðaráform ykkar?
— Við náðum á síðasta ári
miklum áfanga, þegar öll okk-
ar starfsemi fluttist hingað
inneftir. Það sem nú er fram-
undan er fyrst og fremst bætt
þjónusta við okkar viðskipta-
menn og endurbætur á fram-
leiðslúháttum, með aukinni
vélvæðingu. Segja má að þess-
ar endurbætur séu þegar hafn-
ar, því við fáum nú á næstu
dögum nýja og fullkomna vél
til áfyllingar á spraybrúsa. Nú,
en það kemur alltaf að sama
vandkvæðinu, sem er of lítill
markaður. Þrátt fyrir fulla að-
ild að Ffíverzlunarbandalaginu
lítum við björtum augum á
framtíðina í þessari iðngrein
og teljum enga ástæðu til að
halda að hún verðd undir í
harðnandi samkeppni. Vöru-
vöndun og góð þjónusta er
aðalatriðið.
Fullkomnasta
trésmlöaverkstaeölö
á mlnsta gölffletl
fyrlr helmlll, skóla og verkstœðl
Hin fiölhaefa 8-11
verkefna frésmiðavél:
Bandsög, rennibekkur,
hjólsög, frœsari, band-
slípa, diskslípa, smergel-
skífa og útsögunarsög.
Fáanlegir fylgihlutir:
Afréttari þykktarhefill
og borbarki.
verkfæri & járnvörur h.f.
DALSHRAUNI 5, HAFNARFIRÐI, SÍMI: 53333
Frjáls verzlun
íþróttablaðið
Sjávarfréttir
*
Eru gefin út af
Frjálsu framtaki hf.
*
Gerizt áskrifendur
sími 82300 - 82302
FV 3 1974
61