Frjáls verslun - 01.03.1974, Blaðsíða 65
Sana hf:
Gosdrykkjaframleiðslan fer ört vaxandi
Rætt við Hlagnús Pórisson, framkvæmdastjóra
Sana h.f. er búin fullkoninustu tækjum til ölffamleiðslu.
Sana h.f. var stofnað á
Siglufirði árið 1929 undir
nafninu Efnagerð Siglufjarðar.
Starfaði fyrirtækið á Siglufirði
fyrstu árin, en fluttist síðan
til Ak'ureyrar 1943 og nefndist
um skeið Efnagerð Akureyrar.
Eins og nöfnin benda til var
framleiðslan að mestu alls
konar efnagerðarvörur, en þó
hófst framleiðsla á drykkjar-
vörum þegar á Siglufirði.
Nafnið Sana var upphaflega
skrásett sem vörumerki, en
þegar viðskiptavinirnir og all-
ur almenningur notaði það í
daglegu tali sem nafn á fyrir-
tækinu sjálfu var Sana nafnið
tekið upp sem heiti hlutafé-
lagsins.
F.V. ræddi nýlega við
Magnús Þórisson, fram-
kvæmdastjóra Sana h.f. og
spurði hann um starfsemi
fyrirtækisins. Að sögn hans
var ákveðið að hefja ölgerð
árið 1965. Framkvæmdir við
þá uppbyggingu hófust í maí
1966 og á næstu sjö mánuðum
var lokið við breytingu á hús-
næði og niðursetningu véla,
ásamt öllum þeim störfum
sem nauðsynleg voru til þess
að framleiðsla gæti hafizt.
Sana h.f. er búin öllum nýj-
ustu og fuilkomnustu tækjum
til ölframleiðslu, að sögn
Magnúsar og var haft samráð
við danska fyrirtækið Alfred
Jörgensen um val á vélum og
framleiðsluaðferð, en það fyr-
irtæki hefur áratuga reynslu í
hinni tæknilegu hlið ölfram-
leiðslunnar og fjölmargar nýj-
ungar sem notaðar eru við öi-
framleiðslu í ýmsum löndum
hafa fyrst orðið til á rannsókn-
arstofum þessa danska fyrir-
tækis, og er það til ráðuneytis
um byggingu ölgerða víða um
hei^h, að sögn Magnúsar.
Sagði Magnús að gosdrykkja-
framleiðslan færi nú ört vax-
andi og væru helztu fram-
leiðsluvörur Sana h.f. nú
Thule lageröl, Mix, Engifer,
Morgan Cream Soda, Malt öl
og fleira. Þá framleiðir Sana
h.f. einnig appelsínusafa,
blandaðan ávaxtasafa, grape-
fruitsafa, eplasafa og sykur-
snauðan appelsíusafa.
Fyrst á árinu 1970 var stofn-
að nýtt fyrirtæki í Kópavogi,
Ö1 og gos h.f. og annast það
dreifingar á Thule lageröli og
öðrum framleiðsluvörum Sana
h.f. á Suður og Vesturland.
Hefur sala á Sana vörum
sunnanlands aukizt jafnt og
þétt frá því að Ö1 og gos var
stofnað, að sögn Magnúsar.
Sagði Magnús, að T'hule
lagerölið væri vinsælast af öll-
um framleiðsluvörum Sana, og
sagði hann, að sérlega væri
vandað til framleiðslu þess og
ávallt reynt að framleiða það
með sem mestri fyllingu.
Framleiðsla á veiku öli er
mjög viðkvæm, að sögn Magn-
úsar, og hefur mörgum reynst
erfitt að framleiða gott öl með
litlum styrkleika. — Þetta hef-
ur þó tekizt mjög vel með
T'hule lageröl, eins og eftir-
spurn sýnir, sagði Magnús í
lok samtalsins.
Almennt Ieiguflug með
farþega og vörur bæði innan-
lands og til nágrannaland-
anna.
Aðeins flugvélin fær betri
þjónustu en þér.
fLUGSTOÐIH
REVKJAVÍKURFLUGVELLI
SÍMI 11422
FV 3 1974
65