Frjáls verslun - 01.11.1975, Blaðsíða 7
i sKutlu máli
# Svalbarði
Norðmenn hyggjast styrkja yfirráð
sín á Svalbarða með því að veita meira
fé til íbúa bar, en láta þeim jafnframt
í té sjálfsforræði í ríkara mæli. Norð-
menn eru í minnihluta á eynni, en
stefnt er að 'því að treysta itök þeirra
með þessum hætti. Ekki er talið ólík-
legt að norska ríkið falist eftir námu-
félaginu norska í einkaeign, sem þar
hefur verið starfrækt, en rekstur þess
hefur legið niðri um tíma.
0 Stfórnarskrá Sviss í
cndurskoðun
Stjórnarskrá Sviss er í endurskoð-
un. Ekki er búist við róttækum breyt-
inffum, en það þykir orðin plága að
þurfa að hlaupa til þjóðaratkvæða-
írreiðslu um léttvæe: málefni oft á ári.
Sá lágmarksfjöldi sem krafist getur
þjóðaratkvæðis um tiltekið málefni
hefur verið óbreyttur í áratugi.
Stjórnmálaflokkar eiga erfitt upp-
dráttar við þessar aðstæður.
# Lög um nafnlausar
innistæður
Ijög hafa nú verið sett í Danmörku
þess efnis að skattayfirvöld fái aðfrang-
að nafnlausum innistæðum í bönkum
og sparisióðum. Var þetta reyndar
svo viðkvæmt mál að þetta er ekki tek-
ið skýlaust fram í lagatextanum, held-
ur í framsögu ráðherrans með frum-
varpinu. Bankamenn telja lítinn akk
í þessu fvrir skattamenn þar sem
peningarnir muni einfaldlega finna sér
aðra farvegi.
# Breytist aðild fjölþjóða-
f yrirtækja ?
Á það hefur revnt á undanförnum
árum að mörg fjölþjóðafvrirtæki hafa
farið illa út úr verkföllum og stighækk-
andi launakröfum. Eru bílaverksmiðj-
ur í Bretlandi í eigu bandarískra fvinr-
tækia gott dæmi um slíkt. Er nú svo
komið að ekki er talið ólíklegt að fjöl-
bióðafyri}-tækin muni skipta um
stefnu og telja þann kost vænstan, að
eiga sem minnst, til bess að staðar-
menn nevðist til að axla meiri ábyrgð
sjálfir.
# Matvæli taka síðast við sér
I kjölfar orkukreppunnar hafa mörg
haglíkön verið gerð til að spá í fram-
tíðaiþróun. Flest bendir til þess að
framleiðsla muni aftur fara að aukast
í flestum vestrænum ríkjum frá 1976.
Þó bendir margt til þess að matvæla-
markaðir muni ekki styrkjast eins
hratt og aðrir afurðamarkaðir.
# Rússar einoka orkuna
austantjalds
Megnið af þeirri olíu og því gasi, sem
Austur-Evrópuþj óðir nota, kemur i'rá
Rússum. Allir gera sér Ijóst að mcð
jtessu verða ríkin mjög háð seljandan-
um. Nú er einnig að því stefnt að Sovét-
í'íkin sjái ríkjunum fyrir kjarnorkuver-
um, sem þau ein annast um framleiðslu
á. Einnig gefur að skilja hvaðan úraní-
um kemur til vinnslu í kjarnorkuverun-
um.
# Brezk - japönsk samvinna
um flugvélasmíði ?
Fulltrúar flugvélaverksmiðja í Jap-
an hafa verið í heimsókn hjá brezkum
starfsbræðrum sínum til þess að ræða
samstarf á tæknisviðinu og möguleika
á sameiginlegri framleiðslu flugvéla. I
förinni voru fulltrúar frá japönsku
iðnfyrirtækjunum Mitsubishi, Kawas-
aki ogFuji. Heimsóttu þeir verksmiðjur
BAC, Rolls-Royce og Hawker Siddley.
BAC hefur reynt að vekja á'huga Jap-
ana á sameiginlegri framleiðslu nýrrar
útgáfu af BAC One-Elven, þó að þeir
séu þegar skuldbundir til samstarfs
við Boeing um smíði á þriggja hreyfla
þotu.
# SKF fjárfestir heima og
erlendis
Sænsku kúluleguverksmiðjurnar SKF
ætla að ráðast í fjárfestingu upp á 840
millj. sænskra kr. á næstu fimm árum
vegna endurbóta á verksmiðjum sín-
um í Gautaborg. I mörgum þeirra
verða teknar í notkun nýjar hálfsjálf-
virkar vélar, sem leysa töluverðan
mannafla af hólmi. Þá hefur SKF opn-
að nýja verksmið.ju i Singapore í sam-
vinnu við þýzkt dótturfyrirtæki. Þessi
verksmiðja mun sérhæfa sig í fram-
leiðslu vélhluta fyrir vefjariðnað.
FV 11 1975
7