Frjáls verslun - 01.11.1975, Qupperneq 25
ein'kanlega um fjármál og fyr-
irtækjarekstur. Það er selt í
600 þús. eintökum. Money hóf
göngu sína 1972 og hefur vegn-
að vel. Eintakafjöldi hefur vax-
ið úr 250 þús. eintökum í 600
þús. eintök og auglýsingatekj-
urnar voru í fyrra 3,4 milljónir
dollara. People hóf göngu sína
í febrúar 1974 og er eins konar
heimilisblað með efni af ýmsu
tagi. Það kemur út í 1 milljón
eintaka á viku.
Síðast en ekki sízt ber að
nefna Sports Illustrated, sem
varð tvítugt í fyrra og er nú í
fjórða sæti af bandariskum
tímaritum hvað auglýsinga-
tekjur snertir. Auglýsingatekj-
ur jukust úr 2,9 milljónum
dollara 1955 í 71 milljón 1974.
• SPORTS ILLUSTRATED
Við áttum þess kost að
skoða aðalstöðvar Sports Illu-
strated á tveimur hæðum Time-
Life byggingarinnar og ræða
þar við nokkra forstöðumenn
deilda, einkanlega þá sem ann-
ast útbreiðslumál og auglýs-
ingasölu, Eins og nafnið bendir
til, fjallar Sports Illustrated um
íþróttir og útivist, málefni, sem
bandarískur almenningur hef-
ur lifandi áhuga á. Þó að segja
megi að hlaðið sé sérhæft að
þessu leyti, hefur það þó í vit-
und kaupenda áunnið sér sess
sem fréttatímarit og keppir því
um auglýsingar og áskrifendur
við Time, Newsweek og U.S.
News and World Report.
Starfsmenn Sports Illustra-
ted sögðu frá því hvernig þeir
undirbjuggu svolítinn leik fyr-
ir ráðamenn auglýsingafyrir-
tækja, sem eiga hlutverki sínu
samkvæmt að velja fjölmiðla
fyrir auglýsingar viðskipta-
manna sinna. Settar voru ýms-
ar tölur á blað, sönn einkenni
fjögurra raunverulegra tíma-
rita, en í leiknum voru þau að-
eins merkt A, B, C, D. Tölurn-
ar voru ekki ósvipaðar innbyrð-
is, en munurinn var þó greini-
legur.
Fulltrúar auglýsingastofanna
voru spurðir um nöfn þessara
timarita, sem tölurnar áttu við.
Sumir gátu fljótlega sagt til
um Time, því að tölurnar voru
í því tilfelli hærri en hinar. En
þeir gátu ekki greint á milii
Newsweek, U.S. News og
reyndar Sp>orts Illustrated, sem
kom þeim mjög á óvart.
„Þessi leikur færði okkur
sjaldan viðskipti — ekki einu
sinni að við kæmum frekar til
álita. En undrunarsvipurinn og
í sumum tilfellum tortryggni
fulltrúa auglýsingastofanna —
hafði þau varanlegu áhrif, að
við settumst niður til að skil-
greina nákvæmlega markaðs-
vandamál okkar“, sögðu tals-
menn blaðsins.
• TÖLVUNOTKUN
Amerískir auglýsendur hafa
aðgang að ýmsum upplýsingum
um markaðinn, sem þeir hyggj-
ast ná til, og fjölmiðlana, sem
eiga að flytja boðskap þeirra.
Allt er þetta vandlega athugað
áður en ákvarðanir eru teknar
um dreifingu auglýsingafjár-
magnsins milli fjölmiðla eða
milli tímarita innbyrðis t. d.
Fyrirtækið Simmons hefur yfir
að ráða mjög flóknum upplýs-
ingum af þessu tagi og með
tölvuvinnslu er hægt að fá
sundurliðaðar upplýsingar um
rétta f jölmiðilinn fyrir ákveðna
vörutegund með tilliti til þess
hvernig áhorfenda- eða lesenda-
hóourinn er samsettur.
Þannig getur auglýsandi ætl-
að að ráðstafa 400 þús. dollur-
um til að auglýsa í tímaritum.
Segjum að um vínauglýs-
ingu sé að ræða. Hann vill
fyrst og fremst ná til karl-
manna, sem hafa 20 þús. doli-
ara eða meira í árslaun og
kauna þrjár flöskur af Skota
eða meira á mánuði. Hægt er
að gefa sér fleiri forsendur áð-
ur en tölvuvinnslan fer fram
en áraneur hennar birtist í því,
að tölvan gerir lista yfir helztu
tímaritin og hvað auglýsandinn
þarf að verja mörgum dollur-
um til að ná til hverra þúsund
manna af þeim flokki, sem for-
sendurnar gerðu ráð fyrir.
• ,,LÚXUS“-VÖRUR
í Sports Illustrated birtast
aðalleea auglýsinear frá fram-
ieiðendum bíla, áfeneis og tó-
baks auk sportvöru. Auglýsing-
arnar bera það reyndar með
sér. að lesendur blaðsins eru
yfirleitt vel búnir efnum og
svo er um mörg timarit vestan
hafs. Auglýsendur hafa öðlazt
á þessu skilning og með mjög
nákvæmu mati á fjölmiðlunum
og markaðinum hafa þeir valið
tímaritin til að auglýsa lúxus-
vörur og þjónustu, auk sér-
hæfðra auglýsinga, sem t. d.
eru ætlaðar stjórnendum í fyr-
irtækjarekstri. Dagblöðin eru
ekki talin skæðir keppinautar
tímaritanna á auglýsingamark-
aðinum vegna þess að í þeim
er aðaláherzlan lögð á auglýs-
ingu á daglegum neyzluvörum.
Samkeppnin er miklu heldur
við sjónvarpið.
• TÍMARIT OG SJÓNVARP
Hjá Sports Ulustrated feng-
um við þær upplýsingar, að
auglýsendur geri sér í æ rík-
ari mæli grein fyrir því, að
tímaritsauglýsing er vel fallin
til eins konar áherzluauka með
sjónvarpsauglýsingu. Athygli á-
horfandans á nýrri bíltegund
er kannski vakin í sjónvarpi
með stuttri auglýsingamynd,
sem kostar tugi þúsunda doll-
ara í sýningu í hvert skipti.
Hún er stutt og öllum mikil-
vægum upplýsingum um eigin-
leika bílsins verður ekki kom-
ið til skila. Þar tekur tímaritið
við. Á fimmta hundrað síðui’
af bílaauglýsingum birtust í
Sports Illustrated í fyrra, lang-
flestar í lit.
Þá er það staðreynd, sem
bandarískir auglýsendur gera
sér grein fyrir, að um 90 sent-
um af hverjum dollar, sem eytt
er í endursýningu á sjónvarps-
auglýsingu, er raunverulega
varið til að nálgast sama fólkið
aftur og aftur. Hins vegar býð-
ur tímaritsauglýsingin upp á
allt aðra og meiri möguleika.
Hjá Sports Ulustrated bentu
forstöðumenn auglýsingadeild-
arinnar líka á, að tímaritin
hefðu mikið forskot fram yfir
sjónvarpið í birtingu litauglýs-
inga. Áferðin í prentun tíma-
ritanna gæfi möguleika á
fyrsta flokks útkomu mismun-
andi li-ta en sjónvarpið ætti
víða langt í land með að skila
litsendingum almennilega
vegna erfiðra móttökuskilyrða
víða í borgum og af öðrum á-
stæðum.
FV 11 1975
23