Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1975, Page 46

Frjáls verslun - 01.11.1975, Page 46
fyrirtækja innbyrðis né gagn- vart innflutningi, en slík at- hugun, þ. e. gagnvart inn- flutningi, verður væntanlega liður í athugun á áhrifum EFTA-aðildar á islenzkan iðn- að, sem nú er unnið að. Svo virðist hins vegar sem afkomu- hlutfall vörugreina iðnaðar í heild hafi verið næsta stöðugt á undanförnum árum, enda hefur almennt efnahagsástand einkennzt af mikilli eftirspurn cftir hvers konar vöru og þjónustu, og íslenzkur iðnaður nýtur vafalaust enn talsverðr- ar tollverndar auk þess sem önnur vernd, t. d. fjarlægðar- vernd, er veruleg í mörgum greinum. Einnig má nefna gengisskráningu, sem hlýtur að ráða miklu um samkeppnis- aðstöðu vöruframleiðslu gagn- vart innflutningi. VERÐSTÖÐVUN EÐA AÐHALD AÐ VERÐHÆKK- UNUM Það, sem hæst hefur borið í umræðum um verðlagsmál iðn- aðarins að undanförnu, er sú verðstöðvun, sem talið er að hafi verið hér í gildi svo til óslitið frá haustinu 1970. Rétt- ara væri þó að nefna þetta á- stand aðhald að verðhækkun- um eða einfaldlega verðlags- eftirlit, þar sem allar verð- hækkanir hafa verið háðar samþykki stjórnvalda. Yfir- lýst markmið þessarar stefnu í verðlagsmálum hefur verið að draga úr verðbólgu, en árang- ur þessara aðgerða í þá átt virðist þó harla lítill. Verð- lagseftirlitið hefur hins vegar ef til vill haft einhver áhrif á tekjuskiptinguna í þjóðfélag- inu og sennilega einnig til þess ætlazt. Um það, hvort þessi verðlagsmálastefna hafi haft afgerandi áhrif á vöxt og við- eang íslenzks iðnaðar á undan- förnum árum, verður engu slegið föstu að óathuguðu máli. Þó er sennilegt, að verðlagsað- hald og verðlagseftirlit hafi verið afar mismunandi í ein- stökum greinum iðnaðar þar sem starf verðlagsyfirvalda hefur einkum beinzt að því að halda aftur af verðhækkunum á svokölluðum nauðsynjavör- um. En einmitt í þessu felst nokkur hætta af ströngu verð- lagseftirliti um langan tíma, þar sem það getur beinlinis haft áhrif á framboð einstakra vörutegunda án þess að til þess sé ætlazt, auk þess sem það getur haft áhrif á skipulag at- vinnugreina, er þær aðlaga sig eftiiiitskerfinu. VERZLUN Það sem sagt var hér að framan almennt um verðmynd- un í iðnaði á að sjálfsögðu einnig við um verzlun. Al- gengasta form verðmyndunar er hlutfallsleg álagning á inn- kaupsverð vöru (vörunotkun), sem ætlað er að bera uppi bein- an kostnað við dreifingu vör- unnar og skila fyrirtækinu hagnaði af starfsemi sinni. Verzlunin ræður því nokkru um endanlegt útsöluverð vöru (þar sem ekki er um verðlags- ákvæði að ræða), og framleið- andi getur því verið í óvissu um endanlegt útsöluverð eigin vöru og þar með um sam- kemjnisaðstöðu hennar á mark- aði. Verzlúnin getur því oft t.ekið mun beinni þátt í sam- keppninni en iðnaðurinn, ef svo mætti að orði komast. Verðmyndun í verzlun hér á landi hefur um langt skeið verið í afar föstum skorðum og undir eftirliti í formi há- marksálagningar og bámarks- verðs. í kaflanum um landbún- að hér að framan var minnzt á smásöluálagninPu á landbúnað- arvörum, sem ákveðin er af sexmannanefnd sem föst krónutala og aðeins með til- lögurétti kaupmanna. Há- marksútsöluverð búvöru er þannig ákveðið af sexmanna- nefnd. Verðlagsnefnd ákveður hámarksverð á ýmsum inn- lendum iðnaðarvörum. auk hess sem nefndin ákveður öll álagningarhlutföll í heildsölu og smásölu. ÁlaCTningarhlutföll hafa verið hækkuð nokkrum sinnum á undanförnum árum, einkum í kjölfar verulegra launahækkana og hefur hækk- unin vfirleitt verið sú sama á allri álagningu. Við gengis- lækkanir hefur hins vegar skapazt sú regla, að líta á á- lagningu í reynd sem fasta krónutölu, og krónutalan ver- ið hækkuð sem nemur áætl- aðri hækkun rekstrarkostnað- ar beinlínis af völdum gengis- breytingarinnar. Þetta hefur falið í sér lækkun álagningar- hlutfalls. Um langa hríð hafa staðið deilur um þetta verðlagskerfi og áhrif þess á verðlag og starfsemi verzlunar. Þótt svo virðist sem áhrif verðlagseftir- lits hafi reynzt fremur lítil í þá átt að draga úr verðbólgu, þá má telja sennilegt, að við afnám verðlagsákvæða yrði um verðhækkun að ræða á ýmsum vörum og þar með hækkun al- menns verðlags, a. m. k. fyrst á eftir. Innbyrðis afstaða á- lagningarhlutfalla hefur hald- izt óbreytt um langt árabil, og hefur því ekki verið unnt að breyta álagningarhlutföllum innbyrðis með tilliti til breyttra dreifingarhátta og að- drátta. Álagning á ýmsum vör- um er því sennilega óeðlilega lág miðað við dreifingarkostn- að, en of há á öðrum vörum. VERÐSAMKEPPNf L*TT VIRK NEMA FYRIR LTTINN HLUTA VÖRUFRAMRODS Einnig hefur þetta kerfi verið fremur talið ýta undir óhag- kvæm innkaup en að það hvetti til hagkvæmra aðdrátta. Á- lagning á vörum með láea á- lagningu myndi því fljótlega hækka, þar sem það væri al- mennt talið nauðsynlegt, en hins vegar er óvíst, að um lækkun álagningar yrði að ræða, úr því að verzlunin hef- ur ekki þegar séð sér hag í að lækka hana í því skyni að auka sölu. Með þessu er dregið í efa. að verðsamkeppni sé mjög virk nema fyrir lítinn hluta vöruframboðs, hvort sem það er vegna beinnar eða óbeinnar samstöðu eða samvinnu verzl- unarfyrirtækja um innkauo og verðlagningu eða af öðrum á- stæðum, auk þess sem verð- lagseftirlit getur átt hér nokk- urn þátt í. Samkeppni getur hins vegar birzt í annarri mynd 44 FV 11 1975

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.