Frjáls verslun - 01.11.1975, Síða 49
Samliiarmaéur
Eyþór Tómasson, forstjóri Lindu:
„Islenzkur iðnaður er olnbogabarn
og hefur verið það í fjölda óra’"
Augu íslenzkra stjórnvalda fyrir mikilvægi hans
virðast ekki hafa opnazt
Akureyri hefur löngum verið sett í saniband við iðnað, enda
blómstrar hann þar í ýmsurn myndum. Eitt af stærstu iðnfyrir-
tækjum bæjarins er Súkkulaðiverksmiðjan Linda hf. en það fyrir-
tæki er þekkt um allt larfd fyrir framleiðslu sína.
nýja húsið haustið 1961 og hef-
ur það dugað okkur til dagsins
í dag þrátt fyrir mikla fram-
leiðsluaukningu og fjölgun
véla.
Forstjóri Lindu og aðaleig-
andi frá upphafi hefur .verið
Eyþór Tómasson, eða Eyþór í
Lindu eins og Akui’eyringar
kalla hann. Eyþór hefur látið
til sín taka á fleiri sviðum en
við sselgætisframleiðslu. Hann
hefur sýnt félagsmálum mik-
inn áhuga og eru nefndirnar
og stjórnirnar ófáar, sem hann
hefur setið í um dagana.
Súkkulaðiverksmiðjan Linda
er nú til húsa í 2800 fermetra
iðnaðaiShúsnæði við Hvanna-
velli. Þar starfa 40 manns allt
árið og ársframleiðslan er um
200 tonn af sælgæti. Vélakost-
ur er mjög góður og í stöðugri
endui-nýjun. Allt ber þetta
vitni um ódx-epandi dugnað Ey-
þórs, sem fi'á upphafi hefur
verið lífið og sálin á bak við
fyrirtækið. Frjáls verslun
heimsótti Eyþór í skrifstofu
hans á annarri hæð í verk-
smiðjuhúsinu og innti hann m.
a. eftir því, hver aðdragandinn
að stofnun fyrirtækisins hefði
verið.
Eyþór: — Það var þannig, að
ég rak verslun hér á Akureyri
í 20 ár, sem hét Verzlunin
London. Þar verslaði ég með
ýmsar vörur, þar á meðal sæl-
gæti. Á þessum árum gekk það
mjög treglega að fá vörur af
þessu tagi frá framleiðendum
og mjög lítið magn fékkst i
einu. Mér datt þá í hug, að ekki
væri svo vitlaust að hefja fram-
leiðslu á sælgæti. Þetta leiddi
svo til Iþess að Súkkulaðiverk-
smiðjan Linda hf. var stofnuð
1948. Linda hóf starfsemi sína
í 200 fermetra húsnæði í Hóla-
braut 16. Til þess að koma
framleiðslunni af stað fékk ég
hingað færa erlenda sérfræð-
inga. Enskur sérfræðingur kom
frá Cadbui’y til að aðstoða við
súkkulaðiframleiðsluna, en til
að aðstoða við konfektgerðina
fékk ég þýskan sérfræðing.
Fyrirtækið óx hratt og þrátt
fyrir viðbyggingu við Hóla-
braut 16 varð ég að ráðast í
byggingu nýs verksmiðjuhúss
1959. Verksmiðjan flutti svo í
Eyþór
Tóniasson
hefur auk
rekst’urs
fyrirtækisins
stundað
margvísleg
félagsstörf af
mikilli elju.
F.V.: — Hvernig gengur
rekstur fyrirtækisins núna?
Eyþór: — Það var mikil
framleiðsluaukning hjá okkur
árin 1973 og 1974 en í ár hefur
orðið töluverður samdráttur,
sem er líklega afleiðing minnk-
andi kaupgetu fólks. Mér finnst
þessi samdi'áttur sérstaklega
áberandi hvað snertir sölu á
ýmsum smástykkjum. Bendir
það til að krakkar hafi minni
peninga milli handanna nú en
oft áður. Hvað rekstrarafkomu
viðvíkur, þá hefur hún verið
nokkuð góð undanfarin ár og
við í’eiknum með að útkoman
verði sæmileg í ár líka.
F.V.: — Hvað framleiðið þið
helst, og hvernig stenst ykkar
FV 11 1975
47