Frjáls verslun - 01.02.1976, Blaðsíða 9
Allmiklar breytingar
hafa orðið á skipan sendi-
herraembætta undanfar-
ið. Frekari breytinga er
að vænta á næstunni sum-
part vegna óska einstakra
manna. Þannig mun í ráði
að Haraldur Kröyer, sem
nú er sendiherra í Wash-
ington, flytjist til Genfar
í aðalstöðvar EFTA. Ingvi
íngvarsson, sendiherra
hjá Sameinuðu þjóðunum
fer þá líklcga til Washing-
tan en Tcmas Tómasson,
sendiherra hjá NATO
mun væntanlega flytjast
til New Ycrk og taka við
sendiherraembættinu hjá
S.Þ.
Það hefur valdið al-
menna undran, að sjó-
menn skyldu sigla skip-
um sínum í höfn á þeim
tíma, sem vænta mátti
uppgripa á loðnuvertíð-
inni. Ekki er að efa, að
verkfallsboðun á þessum
mikla bjargræðistíma hafi
valdið hneykslan og sár-
um vonbrigðum margra í
sjómannastétt. En leiðtogi
sjómanna og verkfalls-
postuli í áratugi Jón Sig-
urðsson leit málin öðrum'’
augum. Þegar hann var
búinn að skipa flotanum
að hætta veiðum og sigla
í höfn kom hann galvask-
ur til fundar við sam-
starfsmenn sína í samn-
inganefnd sjómanna, sem
sátu þungir á brún í Toll-
stöðvarhúsinu, og sagði:
„Gleðilega hátíð, piltar.“
Menn voru sízt í hátíða-
skapi og tóku lítt undir
kveðjuna.
Pétur Guðjónsson legg-
ur oft land 'undir fót í
margvíslegum erinda-
gjörðum. Hann fer í verzl-
unarferðir vestur um haf,
skíðaferðir til Sviss og
gengur þess á milli á fund
æðstu manna nágranna-
þjóðanna til að ræða land-
helgismál og utanríkis-
pólitík. í símaskrá Man-
hattaneyju í New York er
nafn Péturs að finna, og
þegar hann fór til land-
helgisviðræðna við tals-
menn Bonn-stjórnarinnar
í fyrrasumar var eftir því
tekið, að Pétur ók í
stærstu gerð af Mercedes
Benz, silfurgráum á lit,
sem vakti óskipta athygli
nærstaddra. Þetta farar-
tæki 'rnun Pétur eiga enda
er bíllinn skráð'ur á tolla-
númeri fyrir útlendinga.
Er hann geymdur á meg-
inlandinu en gripið til
hans, þegar cigandinn
hefur bar viðdvöl á ferð-
um sínum. Það er sómi af
því að eiga slíka fulltrúa,
sem geta mætt helzta fyr-
irfólki heimsins kinnroða-
laust við nánast hvaða
tækifæri sem er.
í Reykjavíkurhöfn ligg-
ur fley eitt fagurt, sem
Grjótjötunn nefnist. Að-
aleigandi þess mun heita
Kristinn Finnbogason.
Sagan segir, að Búnaðar-
banki fslands hafi lánað
einhverjar smáupphæðir
út á þetta skip og sé nú
svo komið, að bankinn
vilji ráðstafa því. Ekki er
talið ósennilegt að líkleg-
ir kaupendur Grjótjötuns
geti fengið fyrirgreiðslu
upp á 30—40 milljónir í
bankanum, kaupi þeir
skipið. Allmarga menn,
sem vilja hugsa sig um,
höfum við hitt á förnum
vegi.
Enn gengur í samein-
ingarátt með Alþýðu-
flokksmönnum og Sam-
tökunum. Nú Iiggur nokk-
uð ljóst fyrir, að Karvel
Pálmason muni ganga yf-
ir í þingflokk Alþýðu-
flokksins á næstunni og
verður þá Magnús Torfi
einn í þingflokki eins og
Bjarni Guðna forð'am.
Gerist þetta í þann mund
sem ákvcðið er, að Jón
Baldvin Hannibalsson
flytjist frá ísafirði til að
veita Alþýðublaðinu pólit-
íska forsjá. Verður Árni
Gunnarsson ritstjóri með
Jóni Baldvini og annast
fréttaskrif. Ýmsir kratar
telja sig loksins sjá grilla
í foringjaefni með Jóni
Baldvini.
Þótt leynt fari og þvert
ofan í yfirlýsingar for-
svarsmanna Ríkisútvarps-
ins mun ákveðið, að sjón-
varpið hefji útsendingar á
flestu ef ekki öllu dag-
skrárefni sínu næsta
haust, á tíu ára afmæli
sínu. Framkvæmdastjóri
sjónvarpsins og yfirverk-
fræðingur voru nýlega á
ferð í Noregi til að kynna
sér, hvernig Norðmenn
hefðu skipt frá svart/
hvítu yfir í litsendingar.
Áformað mun vera að
kaupa sjónvarpstökuvélar
fyrir gerð innlends efnis í
litum fljótlega, þannig að
islenzka sjónvarpið geti
sent út fréttaþætti og
annað efni unnið í sjón-
varpssal í litum í haust.
FV 2 1976
9