Frjáls verslun - 01.02.1976, Blaðsíða 17
Skíða-
lönd
við
Reykja-
vík
llm sjö eða átta
lyftur að ræða
í Bláfjöllum
Unnendur vetraríþrótta í
Reykjavík nota hverja frístund
til aft' iðka þessar íþróttir með-
an snjór og færi gefst. Nokkur
góð skíðalönd eru í nágrenni
borgarinnar og fékk F.V. upp-
lýsingar hjá Stefáni Kristjáns-
syni, íþróttafulltrúa Reykjavík-
ur um aðstöðu til iðkana vetr-
aríþrótta í þessum skíðalönd-
um.
í Bláfjöllum standa nokkur
bæjar- og sveitarfélög að upp-
byggingu svæðisins, en það eru
Reykjavík, Kópavogur, Sel-
tjarnarnes og Selvogshreppur.
Þau reka þar 3 skíðalyftur, en
alls eru á svæðinu 7—8 skíða-
lyftur, því ýmis skíðafélög hafa
þar rekstur.
Lyfturnar á Bláfjallasvæðinu
eru opnar virka daga frá kl.
13.00—21.00, nema á þriðju-
dögum og fimmtudögum er op-
ið til kl. 22.00. Á laugardögum
og sunnudögum er opið frá kl.
10.00—18.00. Skíðabrekkurnar
eru upplýstar. Á næstunni mun
koma snjótroðari í Bláfjöll til
að troða og jafna brekkur.
Einn skáli er í Bláfjöllum,
þar sem almenningur getur
borðað nesti sitt og haft afdrep.
Einnig er hjálparsveit skáta á
slysavakt um helgar.
Þá er annað skíðaland
Reykjavíkur í Hveradölum. Þar
er ein skíðalyfta og hún er opin
á sama tíma og í Bláfjöllum. í
Hveradölum er góður skáli með
veitingasölu.
SKÍÐALÖND ÍÞRÓTTA-
FÉLAGA
í nágrenni Kolviðarhóls eiga
þi'jú íþróttafélög skíðaskála.
Víkingur, Valur og ÍR. Skáli
Víkings er nýlega vígður. Þar
eru 2—3 skíðalyftur og brekk-
ur upplýstar. S'káli ÍR er í
Hamragili. Þar er ein togbraut
og brekkur eru upplýstar. Val-
ur hefur eingöngu skíðaskála á
svæðinu.
Þá er loks að nefna skíða-
land, sem á vaxandi vinsældum
að fagna, en það er Skálafell.
Þar hafa KR, Iþróttaf. kvenna
og skíðadeild Hrannar skála.
Þar eru 4—5 mismunandi stór-
ar lyftur, sem opnar eru alla
virka daga og um helgar, þegar
snjór er. Þar er mikill rekstur
að sögn Stefáns.
Dalvík:
Reisa
nýja
miðstöð
stjórn-
sýslu
Fleiri staðir með
svipuð áform
Búið er að steypa upp kjall-
ara væntanlegrar stjómsýslu-
miðstöðvar á Dalvík, en ætlun-
in er að bar verði til húsa ýms-
ar skrifstofiur og þjónustustofn-
anir, svo sem skrifstofur bæjar-
ins, fógetaskrifstofan, afgreiðsla
Sparisjóðs Svarfdæla, verka-
lýðsfélög, útgerðaraðilar o. fl.
Stjórnsýslumiðstöðinni var val
inn staður á túninu fyrir sunn-
an Kaupfélag Eyfirðinga á Dal-
vík og er stöðin 640 fermetrar
að grunnfleti.
Verður húsið á þremur hæð-
um og er heildarflatarmál
hennar áætlað 2300 fermetrar.
Kostnaður við að steypa upp
kjallarann var um 18 milljónir
króna og eru það Dalvíkurbær
og Sparisjóður Svarfdæla sem
eru eignaraðilar að þeim hluta
verksins sem lokið er.
ÓVISSA UM FJÁRMÖGNUN
Hilmar Daníelsson, forseti
bæjarstjórnar á Dalvík sagði í
viðtali við Frjálsa verslun, að
enn væri ekki ljóst hvernig
heildarverkið yrði fjármagnað.
í byrjun hefðu heimamenn ver-
ið bjartsýnir um að fá lán úr
Byggðasjóði til verksins, en
lánsbeiðninni hefði verið hafn-
að. En þrátt fyrir daufar undir-
tektir Byggðasjóðs réðust Dal-
víkingar í verkið, enda er hús-
næðisskortur fyrir skrifstofur
og þjónustustofnanir mjög mik-
ill á staðnum. Sagði Hilmar, að
FV 2 1076
17