Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1976, Page 18

Frjáls verslun - 01.02.1976, Page 18
Frá Dalvíkurkaupstað. Dalvíkingar teldu stjórnsýslu- miðstöð mjög hagkvæma lausn fyrir hinn almenna borgara og ekki síður fyrir þá sem hafa á höndum hina ýmsu þjónustu- starfsemi. í stjórnsýslumiðstöð fær viðskiptavinurinn hina ýmsu þjónustu á sama stað og þeir sem hafa aðstöðu í mið- stöðinni geta sameinast um marga rekstrarþætti. í stjórnsýslustöðinni er gert ráð fyrir að verði sameiginleg- ur fundarsalur, sem jafnframt verður dómssalur. Þá verður þar sameiginleg skrifstofuþjón- usta og símaþjónusta, sem rek- in verður annað hvort í tengsl- um við bókhaldsþjónustuna eða bæjarskrifstofuna. Hugmyndin er sú að þjónustan nái til póst- þjónustu, bankaþjónustu og af- greiðsluþjónustu fyrir einstaka aðila. Einnig er stefnt að því að tekin verði upp samræmd þjónusta um reikningsfærslu, sem allir geti nýtt sér. Þá verð- ur í húsinu eldtraust skjala- geymsla og möguleiki að fela skrifstofuþjónustu umsjón með skjalavörslu. SVIPUÐ ÁFORM VÍÐAR Dalvík er eini staðurinn úti á landsbyggðinni sem hefur hafið byggingu stjórnsýslumið- stöðvar, en ýmsir fleiri staðir svo sem ísafjörður, Húsavík og Siglufjörður hafa áhuga á byggingu slíkra stöðva og reyndar var það ísafjörður sem fyrstur hreyfði við hugmynd- inni þó enn hafi ekkert orðið úr framkvæmdum þar. Hilmar Daníelsson, forseti bæj- arstjórnar. Bygging stjórnsýslumið- stöðva er í samræmi við hug- myndir landshlutasamtaka sveitarfélaga um mögulegar leiðir til örvunar tilfærslu á þjónustustarfsemi út á land og tii eflingar þeirrar þjónustu- starfsemi sem fyrir er. í fram- haldi af þessu hefur Fjórðungs- samband Norðlendinga leitað eftir því við Framkvæmda- stofnun ríkisins að gerð verði áætlun um þörfina fyrir stjórn- sýslumiðstöðvar í samstarfi við viðkomandi sveitarfélög. Áskell Einarsson, fram- kvæmdastjóri Fjórðungssam- bands Norðlendinga, sagði í viðtali við F.V., að ein megin orsök byggðaröskunar væri sú, að dreifbýlið hefði setið eftir um aukningu mannafla í þjón- ustugreinum. Þróttmikið at- vinnulíf krefðist aukinna þjón- ustustarfa á öllum sviðum og það skipti miklu máli fyrir byggðaþróunina, að sá atvinnu- auki sem fylgir aukinni þjón- ustuþörf félli til í byggðarlög- unum eða nágrenni þeirra. Séu þessi skilyrði ekki fyrir hendi þurfa heimamenn með ærnum kostnaði að leita annað með fyrirgreiðslu. Því væri ekkert vafamál, að í nútímaþjóðfélagi gæti staðsetning þjónustustarf- semi hreinlega ‘haft áhrif á það hvar fólk vill búa og þá um leið hvar heppilegt er að reka framleiðslufyrirtækin. EFLING FRAMLEIÐSLU- BYGGÐALAGA — Uppbygging stjórnsýslu- miðstöðva er liður í skipulags- bundnu starfi til að efla fram- leiðslubyggðalögin og sporna gegn efnahagslegri skiptingu þjóðfélagsins í framleiðslu- byggðalög og þjónustukjarna, sagði Áskell. Síðan vék hann að því að sú stefnubreyting hefði orðið nú, að áætluð væri aukin dreifing á ýmiss konar þjónustu í þjóðfélaginu og einn- ig á ýmsum þáttum stjórn- sýslu. Því hlyti sú spurning að vakna með hvaða hætti mætti koma þessari nýskipan á með sem mestri hagkvæmni og án þess að efnt væri til of mikils kostnaðar. Auk þess nefndi Áskell, að nú hefðu 23 heildsölufyrirtæki í Reykjavík stofnað með sér samstarfsfyrirtækið Heild hf. og með því komið upp sam- starfi á flestum sviðum skrif- stofuþjónustu. Nefndar hafa verið háar tölur um sparnað þessara fyrirtækja. í ljós hef- ur komið, að með samstarfi þessu hefur skapast möguleiki til að taka upp nýja tækni, sem engin skilyrði voru fyrir meðan fyrirtækin störfuðu sitt í hvoru horni. Við athugun hefur kom- ið í Ijós, að margt í þessum rekstri má staðfæra fyrir al- menna þjónustustarfsemi úti í dreifbýlinu. Sagði Áskell, að öll þessi atriði styddu þá skoð- un, að stjórnsýslumiðstöðvar væru hentug lausn fyrir byggðakjarna úti á landi. 18 FV 2 1976

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.