Frjáls verslun - 01.02.1976, Qupperneq 20
GETA EKKI FJÁRMAGNAÐ
LAGERINN
En af hverju hafa viskífram-
leiðendur í Skotlandi minnkað
framleiðsluna úr því að þeir
geta búizt við bærilegri sölu-
aukningu á heimsmarkaði?
Svarið er einfaldlega það, að
framleiðendurnir eiga í erfið-
leikum með að fjármagna
birgðahald. Orsakir þessa eru
verðbólga, háir vextir, hráefn-
iskostnaður og efnahagsörðug-
leikar í helztu markaðslöndum.
Viskíið, sem framleitt var í
fyrra, fer ekki til neytenda fyrr
en eftir að meðaltali sex ár. Á
meðan verður að geyma lager-
inn og fjármagna hann. Um
þessar mundir nema viskí-
birgðir í Skotlandi rúmlega
einum milljarði gallona, sem
eru metnar á 2,5 milljarða
sterlingspunda. Framleiðendur
hafa af þessum sökum fallið frá
hugmyndum um að auka birgð-
ir á þessu ári.
Ekki eru allir á einu máli
um að viskíþurrð sé framund-
an. Distillers Company, sem
framleiðir sex af hverjum tíu
seldum flöskum af Skota í
heiminum, segist hafa framleitt
meira viskí undanfarið en spá-
menn hafi talið nauðsynlegt.
Þetta var gert sem varúðarráð-
kosið þessa erfiðu tima til að
þrengja að framleiðslunni á
heimamarkaði. í síðasta fjár-
lagafrumvarpi var 64 pensum
bætt við gjöld ríkisins á hverri
flösku af Skota, þannig að sam-
anlagt eru þau nú £2.57.
VAXTALAUS LÁN TIL
RÍKISINS
Bróðurpartinn af þessu gjaldi
verða framleiðendur að greiða
um leið og þeir selja viskíið.
Síðan þurfa þeir að bíða í rúm-
lega sex vikur áður en þeir fá
endurgreiðslu frá smásalanum.
Talsmenn framleiðenda halda
því fram, að með þessum hætti
veiti viskíframleiðendur ríkis-
stjóminni að staðaldri vaxta-
laus lán að upphæð 60—100
milljón sterlingspund. Undir
þessu verða framleiðendur að
standa óstuddir og því hefur
framleiðsluskerðingin orðið
miklu meiri en ella hefði þurft
að vera.
STYTTUR VINNUDAGUR
Afleiðing þessa er einnig sú,
að í sumum verksmiðjunum
hefur vinnudagurinn verið
styttur og þannig hefur vinna
minnkað hjá þeim 24 þúsund
starfsmönnum, sem viskífram-
leiðsluna stunda, og ennfremur
þeim 10 þúsund, er starfa við
hliðargreinar ýmsar í Skot-
landi. Þessi árátta brezku
stjórnarinnar til að nota þessa
Víða um
lönd hefur
verðið á
viskíflösk-
unni verið
hækkað
mikið að
undan-
förn'u til
að drýgja
gjald-
heimtu
hins
opinbera
í efnahags-
kreppunni.
Viskí-
bruggun í
fullum
gangi.
Eftir
nokkur ár
verður
þessi
vökvi
kominn á
markað í
skrautleg-
um flösk-
um.
Þangað til
þarf
mikið
fé til að
fjármagna
birgða-
haldið.
stöfun gegn óvæntum sam-
drætti í framleiðslu síðar meir.
Af þessari ástæðu segist fyr-
irtækið geta hægt á bruggun
nýs viskís í ár þó að langtíma
söluáætlanir standi óbreyttar.
Þessi samdráttur yrði að fara
fram í þrjú eða fjögur ár áður
en áhrifa hans gætti að ein-
hverju marki.
Framleiðendum þykir heldur
kaldhæðnislegt, að brezka
stjórnin, sem nýtur góðs af sölu
Skotans með tekjum af skött-
um og öðrum álögum, hefur
FV 2 1976
20