Frjáls verslun - 01.02.1976, Blaðsíða 41
Smári hf. á Akureyri:
Selur fjögurra herbergja íbúðir á verði
sem er 26% undir byggingarvísitölu
Rætt við framkvæmdastjórann, Tryggva Pálsson
Síðastliðin tvö ár hefur fyrirtækið Smári h.f. á Akureyri náð umtalsverðuni árangri til lækk-
unar byggingarkostnaðar íbúðarhúsnæðis og sem dæmi má nefna að 4 herbergja íbúðir, sem fyrir-
tækið selur fullfrágengnar til afhendingar á miðju næsta sumri, kosta aðeins kr. 4.900.000, sem er
26% undir byggingarvísitölunni eins og hún var 1. nóv. sl. Margir byggingaraðilar og framámenn
byggingarmála á Stór-Reykjavíkursvæðinu hafa lagt Ieið sína til Akureyrar til þess að skoða og
kynna sér aðferðir Smára h.f. við þessa uppbyggingu og hafa nú þegar nokkrir aðilar tekið sams
konar steypumót í notkun og Smári notar og nokkrir ætla að taka slík mót í notkun nú í vor.
Eitt fjölbýlishúsið, sem Smári hf. er með í byggingu á Akureyri.
Frjáls verslun hafði nýlega
tal af framkvæmdastjóra Smár-
ans, Tryggva Pálssyni, og innti
hann nánar eftir þeim leiðum,
sem fyrirtækið hefur farið til
þess að halda byggingarverði
jafn mikið niðri og áður segir.
BYRJUÐU ÁRIÐ 1968.
— Það var fyrst árið 1968
að við byrjuðum að byggja
íbúðir til endursölu, sagði
Tryggvi. — Þá voru þessar
framkvæmdir í svo litlum
mæli að ekki reyndist kleift
að byggja á verði undir bygg-
ingarvísitölu. Og þó notuðum
við strax ný steypumót sem
voru bylting frá hinni hefð-
bundnu aðferð með borðum.
NOTUÐU BREIÐFJÖRÐSMÓT
Við notuðum hin svokölluðu
Breiðfjörðsmót, klædd með
krossviði, en þau mót eru eins
og kunnugt er íslensk uppfinn-
ing. Þessi mót notuðum við
fram til ársins 1974. Fyrstu
fjögur árin sem við störfuðum
byggðum við eingöngu einnar
hæðar raðhús, en árið 1972
byrjuðum við á okkar fyrsta
fjölbýlishúsi og þá kom strax
í ljós sú nauðsyn að beita fljót-
virkari aðferðum við uppbygg-
inguna.
KYNNTU SÉR NÝJAR
AÐFERÐIR
Þetta fyrsta fjölbýlishús okk-
ar var í smíðum í tvö ár, og
var sá tími notaður til endur-
skipulagningar. Við kynntum
okkur nýjar aðferðir og þau
steypumót sem við notum nú
eru árangur þeirrar endurskipu-
lagningar og langrar leitar að
bestu steypumótunum. Mótin
sem við völdum hafa það fram
yfir mörg önnur að ekkert tengi
gengur gegnum veggi utan
tengja niður við gólf, og áfastir
vinnupallar eru á þeim. Eftir
að hafa steypt upp tvö fjöl-
býlishús í þessum mótum erum
við komnir með vinnueiningu á
hvern fermetra niður í um það
bil 1 klukkustund og er þá
meðtalið uppsetning, steypu-
vinna, frátekt og hreinsun, en
hreinsunarkostnaður sem verið
hefur all verulegur hverfur nú
svo til alveg. Uppsteypa á þess-
um 30 íbúða fjölbýlishúsum
sem við höfum byggt undan-
farin tvö ár hefur tekið okkur
um 60-70 daga með um 15
mönnum, og eru þar af 6 tré-
smiðir auk verkstjóra. Við vor-
um mikið búnir að kynna okk-
ur forsteyptar einingar með það
í huga að lækka byggingar-
kostnaöinn, en þegar svo af-
kastamikil mót eru fáanleg og
FV 2 1976
41