Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1976, Side 45

Frjáls verslun - 01.02.1976, Side 45
Akureyri: Byggingarfyrirtækin smíða og selja raðhús til einstaklinga Fjögur fyrirtæki starfa nú að raðhúsasmíði og hið fimmta er að bætast í hópinn Á liöfuðborgarsvæ'ðinu mun Iítið scm ekkert vera gert af bví að byggingarfyrirtæki smíði rað- hús til sölu á frjálsum markaði. Ef menn vilja eignast íbúð í raðhúsi liafa þeir orðið að finna sér sjálfir aðila til þess að byggja með, eða stofna byggingarfélög til þess að koma húsinu upp. Á Akureyri hefur hins vegar annar háttur verið hafður á. Þar hafa byggingarfyrirtæki ráðist í smíði raðhúsa og almenningi verið gefinn kostur á að kaupa íbúðir í þeim, ýmist á fokheldu stigi eða fullfrágengnar. Hefur þetta mælst vel fyrir og sala íbúða í raðhúsum yfirleitt gengið vel. Byggingarfyrirtækin á Akureyri veita mönnum valkosti við kaup á íbúðarhúsnæði. Þau hafa raðhúsaíbúðir á boðstólum ekki síður en hlokkaríbúðir. Alls fjögur byggingarfyrir- tæki á Akureyri smíða raðhús og það fimmta er að bætast í hópinn. Fyrirtæki þessi eru Hí- býli, Pan, Jón Gíslason og Börkur, en Aðalgeir og Viðar s.f. eru að bætast í hópinn. Frjáls verslun hafði samband við Hörð Túliníus hjá fyrirtæk- inu Híbýli og innti hann nánar eftir raðhúsasmíði í bænum, Hí- býli h.f. var stofnað árið 1970 og hóf þá strax smíði raðhúsa og er nú búið að reisa 9 rað- húsalengjur með alls 79 íbúð- um. MIKILL ÁIIUGI Á RAÐ- HÚSUM Hörður sagði að áhugi fólks á Akureyri fyrir raðhúsum væri mjög mikill. Höfuðástæðurnar fyrir því væru trúlega tvær. Annars vegar það að í raðhúsi væri hver íbúð alveg sjálfstæð eining og ekkert er þar sam- eiginlegt með öðrum sem í rað- húsinu búa, og hins vegar það að verðmunur á íbúð í blokk og íbúð í raðhúsi hefur ekki verið svo ýkja mikill. — Á síðasta ári seldi t. d. Híbýli Akureyrarbæ fjórar íbúðir að stærð 82 m2 á föstu verði fyrir 4.4 milljónir, full- frágengnar. Á sama tíma voru seldar íbúðir í blokk að svip- aðri stærð á 4-4.2 milljónir króna, sagði Hörður. Síðan vék Hörður að því að þótt sala raðhúsanna gengi vel væri þrautin þyngiú að fjár- magna byggingarfyrirtæki í dag. BREYTA ÞARF LÁNA- KERFI — Það er liðin sú tið að fólk lét vinna án afláts án þess að gera sér grein fyrir kostnaðin- um. Þá var hægt að fara í lána- stofnanir eftir á og verða sér úti um fjármagn, sagði Hörður. — En nú þarf fólk að gera sér fyrst grein fyrir því hvað hlut- irnir kosta og haga sínum segl- um samkvæmt því. Þetta hefur orðið til þess að auka mikið eftirspurnina eftir minni íbúð- um. Ef þessu heldur áfram á hlutfallið milli stærða íbúða í byggingu eftir að raskast veru- lega. Það eina sem getur stopp- að þessa þróun er að lánakerfi þess opinbera breytist til batn- aðar þannig að ekki verði sama lánsfjárupphæð til lítilla og stórra íbúða eins og gert er í dag. — En þótt um litlar íbúðir sé að ræða er oft erfitt að ná inn fjármagninu sem við höfum lagt í þær og eigum við að öllu jöfnu mikið fjármagn útistand- andi. Það sem hefur bjargað okkur er fyrst og fremst góður mannskapur. Híbýli er með milli 25 og 30 starfsmenn og allt eru það úrvals menn. FV 2 1976 45

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.