Frjáls verslun - 01.02.1976, Qupperneq 48
Samtiðarmaður
IVtagnús Jensson, byggingarmeistari:
„l\leð samræmdum aðgerðum
mætti lækka byggingarkostnað
um 25%”
Fyrirgreiðsla sveitarfélaga við loðarúthlutnanir þarf að batna
og tryggja þarf fjármagn til að auka byggingarhraðann
I röðum byggingarmanna á íslandi er“u margir dugnaðarmenn, sem hafa sýnt það með atorku sinni
að þeir eru færir um að leysa af hendi með prýði vandasöm verkefni á sínu sérsviði og það við erfið-
ustu skilyrði. Þessir menn hafa átt drjúgan þátt í þeirri þróun að íslendingar búa þegar á heildina
er litið mjög vel, þannig að eftir því er tekið af hálfu gesta erlendis frá, er miða ástandið í húsnæð-
ismálum hér við aðstæður, sem þeir hafa kynnzt í heimalandi sínu eða annars staðar.
Magnús Jensson er einn af eigendum Miðáss-Miðafls. Þeir félagar
byrjuðu að byggja saman 1967 og liafa byggt og selt hátt á annað
hundrað íbúðir.
Magnús G. Jensson, bygging-
armeistari í Reykjavík, er einn
þeirra manna, sem hafa byggt
mismunandi stór íbúðarhús til
sölu á undanförnum árum i
samvinnu við fleiri stéttar-
bræður sína. Magnús á nú sæti
í skipulagsnefnd Reykjavíkur
og þótti því kjörið að ræða við
hann um málefni byggingariðn-
aðarins og skipulagsmálin, sem
hafa augljóslega mikil áhrif á
byggingarstarfsemina.
Magnús Jensson byrjaði 14
ára gamall að starfa á trésmíða-
verkstæði hjá Guðmundi Guð-
mundssyni í Víði en ári síðar
réðst hann til Almenna bygg-
ingarfélagsins á verkstæði, en
hóf svo nám í trésmiði 16 ára
gamall. Magn.ús fékk meistara-
réttindi 1956 og hefur unnið við
húsbyggingar meira og minna
síðan. Hann er nú einn af eig-
endum byggingarfélaganna
Miðáss og Miðafls.
Við vikum í upphafi samtals
okkar við Magnús að viðhorf-
unum í byggingariðnaðinum á
líðandi stund:
F.V. — Um all Iangan tíma
hafa heyrzt spár 'um yfirvof-
andi atvinnuleysi í byggingar-
iðnaðinum, sem ekki hafa
reynzt réttar. Hvernig er á-
standið að þessu leyti nú og
hvað kann að gerast á næstu
mánuðum?
M.J.: — Það fer ekki á milli
mála, að atvinnuleysi er þegar
fyrir hendi í byggingariðnað-
inum. Það eru mörg ár síðan að
trésmiðir og múrarar hafa far-
ið á atvinnuleysisskrá fyrir ára-
mót. Þetta gerðist hins vegar
nú og eru nú á milli 30 og 40 í
hvorri stétt skráðir atvinnu-
lausir. Stirð og erfið veðrátta
48
FV 2 1976