Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1976, Side 52

Frjáls verslun - 01.02.1976, Side 52
F.V.: — Telur þú, að íbúðir, sem byggingarmeistarar ætia að hefja framkvæmdir við á þessu ári, muni reynast auðselj- anlegar þegar þar að kem'ur? M.J.: — Við erum í öldudal núna og ég er ekki viss um að við séum á uppleið enn. Ég er núna að skila af mér háhýsi sem tók rúmt ár að selja. Ann- að háhýsi, sem ég byggði þar á undan seldist á einum mán- uði og hið fyrra á sjö dögum. Þetta segir sína sögu. Það kemur varla annað til greina en að lengja greiðslu- tímann en það þýðir aftur á móti að eitthvað dregur úr byggingarhraðanum. Það getur enginn fjármagnað heilt fjölbýlishús úr eigin vasa. Meira verður að koma til. Lána- fyrirkomulag er mjög ótryggt. Þá á ég fyrst og fremst við hús- næðismálastjórnarlán. Menn renna alltaf blint í sjóinn með afgreiðslutímann á því. Þetta er eins og hvert annað fjárhættu- spil. Við höíðum t.d. síðasta há- hýsið okkar fokhelt í febrúar i fyrra. Við áttum hins vegar að skila af okku'- fyrir áramótin en fengum lánin í október-nóv- ember. Það var ekki komin króna í lán á níu hæða blokk um það leyti sem við vorum að skila af okkur. Við urðum auð- vitað að hægja ferðina nokkuð og sums staðar urðum við á eftir áætlun. Það kemur sér þess vegna mjög ilia, þegar fólkið fær ekki lánin fyrr en seint og síðar meir, því að mjög fáir eru í þeirri aðstöðu að geta brúað bilið með öðrum ráðum. Lífeyrissjóðirnir eru aftur á móti orðnir svo sterkir allflest- ir að fólk, sem kaupir af manni, fær lán úr þeim um leið. F.V.: — Þegar minnzt er á fjárfestingu almennings í í- búðarhúsnæði fer ekki hjá því að upp rifjist cndurteknar ’um- ræður um að byggingarkostn- aður þurfi að lækka. Er einhver sjáanleg leið til að ná því marki, sem allir virðast sam- mála um að þurfi að stefna að? M.J.: — Ef sveitarfélögin gera áætlanir um lóðaúthlutan- ir þannig að tiltækar séu upp- lýsingar fyrir byggingaraðila um hvað mikið þeir geti fengið af lóðum, hvar og hvenær, má lækka byggingarkostnað veru- lega. Þetta fyrirkomulag gerði ít- arlega áætlunargerð mögulega. Mannaráðningar réðust af henni og skipulag framkvæmd- anna kæmist í fastara form. Byggingartíminn myndi þar ai leiðandi styttast og byggingar- kostnaðurinn lækka um leið. Það fer ekki á milli mála. Þarna er á ferðinni stjórnun- aratriði af hálfu hins opinbera, sem byggingarmeistarar ráða ekki við. í sambandi við umræður um háan byggingarkostnað er á- stæða til að rifja upp þátt ríkis- ins í íbúðarhúsabyggingum. Ríkisvaldið er stærsti bygging- araðilinn hér á landi og þar á ég við framkvæmdanefnd bygg- ingaáætlunar og verkamanna- bústaði. Ég fæ ekki séð að ríkið hafi byggt ódýrar en einka- framtakið, þó að því hafi ekki verið veitt sambærileg kjör með ómældum lóðum og ó- mældu fjármagni. Við höfum ekki fengið að spreyta okkur á þeim grundvelli. í Breiðholti I vorum við byggingarmeistararnir með okkar íbúðir á nákvæmlega sama verði og framkvæmda- nefndin, en ég tel, að við höfum verið einum flokk ofar í gæð- um. Það var viðurkennt, að hús framkvæmdanefndar héldu ekki vatni og vindi. Til viðbótar betri fyrir- greiðslu sveitarfélaganna með lóðaúthlutunum þarf ennfrem- ur að koma til tryggt fjármagn til að auka byggingarhraðann. Þar með yrði meira framleitt yfir árfð á lægra verði, Ég þori að fullyrða, að með samræmdum aðgerðum af þessu tagi mætti lækka bygg- ingarkostnað um 25% frá því sem hann er nú. F.V.: — Nýleg úttekt á bygg- ingariðnaðinum og skýrsla Rannsóknarráðs um hana hefur verið mikið rædd opinberlega einkanlega vissir þættir henn- ar. Hvert er þitt álit á niður- stöðunum og þessum umræð- um, sem fylgt hafa á eftir? M.J.: — Það vill nú oft verða svo, að þegar skipað er í nýja nefnd gleymist þeir, sem vinna að viðkomandi verkefnum. Þannig var um þessa nefnd, sem átti að gera úttekt á bygg- ingariðnaðinum. Byggingar- mennirnir gleymdust. Vegna mótmæla eftir á var þó gerð nokkur bragarbót þarna á. Mitt álit er, að þegar svona nefnd standi upp frá störfum sé útkoman akkúrat einskis virði. Þegar gleymist að kalla þá til samstarfs í svona nefnd, sem hafa raunhæfast mat á vandkvæðunum og því, sem af- lögu fer, er ekki hægt að taka mark á niðurstöðunum. Þetta var eins og að skipa múrara til að rannsaka sjóslys. í umræðunum, sem eftir fylgdu var svo til eingöngu ráð- izt á byggingarmeístarana eins og við var að búast eftir þessa furðulegu aðferð við skipun nefndarinnar. Hlutur arkitekta og verkfræðinga hefur t.d. gleymzt. Það er talað um upp- mælingartaxtana og afhverju þeir lækki ekki vegna endur- tekningar í verkinu. En hefur einhver spurt, hvað arkitektar slái af, þegar byggð eru mörg hús eftir sömu teikningum. Hvað lækkar taxtinn hjá verk- fræðingum? Sáralítið. Á það er sjaldnast minnzt, því að full- trúar þessara stétta eru yfir- leitt í nefndunum og standa að niðurstöðunum. F.V.: — Er samt ekki gagn- rýnin á uppmælingartaxtana réttmæt og þurfa þeir ekki nauðsynlega að breytast í sam- ræmi við breyttar starfsaðferð- ir og aukna hagkvæmni í bygg- ingarframkvæmdum? M.J.: — Ég fellst fullkomlega á það. Iðnaðarstéttirnar hafa engan veginn fylgzt nógu vel með. Sem dæmi get ég nefnt, að þótt byggingarkrani sé sett- ur upp á byggingarstað og allt efni híft upp með honum verð- ur kostnaður við handlang hjá múrurum alveg hinn sami. Fyr- ir tuttugu árum eða svo var samið við múrara um 35% álag fyrir handlang ef þeir sáu um það sjálfir. Þá báru þeir líka sand og sement upp á bakinu. í dag er þetta allt hift á staðinn 52 FV 2 1976

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.