Frjáls verslun - 01.02.1976, Blaðsíða 57
vígasta áætlunarleiS á landinu.
— Þarna er um að ræða aðeins
35 kílómetra leið, sagði Ást-
valdur, — en hæðin á heiðinni
er 615 metrar og því mikinn
bratta á að sækja. Snjóþyngsl-
in eru líka mikil, en einna verst
er bleytan. Heiðin dregur til
sín mikla úrkomu eins og
strandfjöll gera oftast og það
verður til þess að vegurinn
veðst oft upp og rennur úr
honum.
BRAUTRYÐJENDUR f
FERÐUM SNJÓBÍLA
Yfir vetrartímann ryður
Vegagerðin heiðina tvisvar í
viku, ef ekki er slæmt veður.
Þegar mestur er snjórinn laga
þeir aðeins til þannig að snjó-
bílar komist yfir. Að sögn Ást-
valdar er Seyðisfjörður fyrsti
staðurinn sem notaði snjóbíl til
reglulegra ferða og var braut-
ryðjandinn í þessum ferðum
Þorbjörn Arnoddsson. En þó
snjóbílaferðirnar séu mikið
notaðar yfir ófærutímann er
ekki um mikinn hagnað að
ræða af þessum ferðum. — Far-
gjöldin á þessari leið geta aldr-
ei orðið það mikil að þetta beri
sig, sagði Ástvaldur. — Við
höfum tvo menn stöðugt við
þetta og yfirleitt höldum við
tveimur snjóbílum tilbúmum.
Viðhaldskostnaður sl. vetur var
um tvær og hálf milljón á 100
ferðum eða um 25 þúsund á
ferð, meðan tekjurnar urðu
hæstar um 15 þúsund á ferð.
LÁG FLUTNINGSGJÖLD
Flutningar eru að vísu miklir,
bæði á pósti og vörum, en
flutningsgjöldin eru svo lág að
þau borga ekki einu sinni laun
bílstjórans. Mitt álit er það,
sagði Ástvaldur, — að þetta
verði ekki rekið mikið lenigur
sem einkarekstur. Opinberir
aðilar hljóta að verða að taka
við þessu.
NÝLAGNING VEGAR YFIR
HEIÐINA NAUÐSYNLEG
Um samgöngubætur fyrir
staðinn sagði Ástvaldur m.a. —
Við viljum láta ljúka við ný-
lagningu vegarins yfir heiðina
og við viljum láta gera það vel.
Það hefur oft gengið illa að
sannfæra vegayfirvöld um mik-
ilvægi þess að vegur standi vel
af sér snjóa. Meginsjónarmiðið
við vegalagningu hefur alltaf
verið fjárhagsleg hagkvæmni
við sjálfa lagninguna. Það er
forsenda þess að Ihér sé búandi
að hægt sé að halda uppi al-
mennilegum samgöngum. Ég
býst ekki við að hægt sé að
halda vegi opnum allan ársins
hring hér. Slíkt verður ekki
hægt nema byggt verði yfir
veginn og það kostar svimandi
upphæðir. Hins vegar má
lengja færa tímabilið verulega
ef vegurinn er lagður með tilliti
ti'l snjóa. Annað atriði sem taka
þyrfti til athugunar er útvegun
betri snjóbíla. Þessir sem við
höfum núna eru ófullkomnir og
ekki er neitt betra fáanlegt í
heiminum. Við hér hjá Stál sf.
treystum okkur til að smíða
snjóbíl, sem tæki þessum fram
ef við fengjum fé til þess. En
það er sjálfsagt of mikil bjart-
sýni að vonast til slíks.
BAU.TULTÓS A HEIÐINNI
Þót.t. leiðin til Egilsstaða sé
ekki lömg getur ferðalag þangað
með snjóbíl tekið nokkuð lang-
an tíma. Ferð með stóra snió-
bílnum tekur allt að 5 klukku-
stundum ef aðstæður eru erfið-
ar. — Það er villugjarnt á heið-
inni í mvrkri, sagði Ástvaldur,
og nokkrir staðir eru hættu-
legir. Nú er búið að setja uop
ijósvita á hættulegasta staðn-
um á heiðinni, en þar er um að
ræða nokurs konar baujuljós,
sem blikkar eftir að myrkur er
skollið á. Ef þetta gefst vel
munum við revna að fá þetta
unn á fleiri stöðum. Að lokum
vil ég taka bað fram. að það
vgeri varla hægt að halda upoi
bessum ferðum ef ekki fengjust
til bess færir bíistjórar. Nú eru
hiá okkur bræður tveir, sem
heita Sigurður og Bergur Tóm-
assvnir og er það á þeim sem
hiti og þungi þessarar starf-
semi hvílir, en þeir eru bæði
færir og duglegir bílstjórar
sagði Ástvaldur.
Bæjarmálefni:
IVIörg
verkefni
*
a
dagskrá
Jónas Hallgrímsson,
bæjarstjóri á Seyðisfirði.
Það sem helst vakti athygli á
Seyðisfirði á sl. ári var ákvörð-
un Strandfaraskips landsins í
Færeyjum að láta bílaferju sína
lenda þar. Þegar Frjáls vcrslun
heimsótti Seyðisfjörð fyrir
skömmu var bæjarstjórinn þar,
Jónas Hallgrímsson fenginn til
að ræða stuttlega um tilkomu
bílaferjunnar og áhrif hennar á
staðnum.
— í fyrsta lagi vil ég taka
fram, sagði Jónas, að mér þyk-
ir ákaflega skemmtilegt að sigl-
ingar frá Seyðisfirði skuli vera
hafnar á ný, en héðan var beint
samband við Evrópu um síð-
ustu aldamót. Við höfðum pata
af þessum fyrirætlunum færey-
inganna í janúar á sl. ári og
snérum okkur þá strax til
þeirra og buðumst til að taka á
móti ferjunni. Um tíma var ó-
ljóst 'hvort Seyðisfjörður eða
FV 2 1976
57