Frjáls verslun - 01.02.1976, Síða 59
Reyðarfjörður yrði fyrir valinu,
en færeyingarnir ákváðu þetta
og gerðu það ekki fyrr en IV2
mánuði áður en siglingar áttu
að hefjast. Seyðisfjarðarkaup-
staður lét þá koma upp aðstöðu
fyrir ferjuna og ferðamenn.
Mér fannst að allir legðu hart
að sér til að þetta væri mögu-
legt og hér eru líka yfirleitt
allir ánægðir með viðskiptin
við Smyril fyrsta sumarið. Að
vísu getum við ekki sýnt fram
á neinn hagnað af þessu, en við
munum reyna að auka þjón-
ustuna smám saman. Það er að-
eins eitt atriði sem við erum
ekki alveg ánægð með, sagði
Jónas, — og það er tíminn sem
ferj'an kemur á. Hún leggur að
á laugardagskvöldi og þá er
dýrt að halda uppi þjónustu.
Þegar sem mest var deilt um
höfn fyrir ferjuna var gjarnan
bent á það að Fjarðarheiði gæti
orðið erfið fyrir bíla með aft-
anívagna. Jónas var spurður
um það hvað reynsla fyrsta
sumarsins hefði sýnt.
HEIÐIN ENGINN ÞRÖSK-
ULDUR
— Reynslan sýndi að heiðin
var enginn þröskuldur og allar
hrakspár um það urðu að engu,
sagði Jónas. Hins vegar þótti
mörgum útlendingum það stór-
kostleg sjón þegar þeir komu
fram á norðurbrún heiðarinnar
og horfðu upp á hérað. Mér
finnst það ekki svo lítils virði
að geta boðið upp á slíkt útsýni.
Að sögn Jónasar var sam-
vinna við tollgæslu og útlend-
ingaeftirlit gott fyrsta sumarið.
— Hér var komið upp 50 m2
tollskoðunarhúsi og aðstöðu til
bifreiðaskoðunar áður en sigl-
ingar hófust, sagði Jíónas. Við
ætlum líka að koma upp full-
komnu vörugeymsluhúsi þarna,
því vöruflutningar með ferj-
unni voru að vinna á. Það
stendur til að samræma þessa
aðstöðu vöruafgreiðslu fyrir
Ríkisskip og ætlumst við til að
þetta verði komið upp fyrir
vorið.
En á Seyðisfirði gerist ýmis-
legt fleira en að Smyrill lendi
þar og var bæjarstjórinn því
beðinn að segja frá helstu verk-
efnum bæjarsjóðs.
Götumynd
úr
Seyðis-
fjarðar-
kaupstað.
UNDIRBÚNINGUR SJÚKRA-
HÚSBYGGINGAR
Eitt af þeim verkefnum sem
unnið er að núna, sagði Jónias
Hallgrímsson bæjarstjóri, er
undirbúningur sjúkrahússbygg-
ingar. Arkitektateikningar
liggja nú fyrir, en Jón Haralds-
son teiknaði húsið, og verið er
að byrja á tækniteikningum.
Við gerum okkur vonir um að
fá framkvæmdafé í þetta á
næsta ári. Þetta hús á að vera í
senn sjúkrahús, heilsugæslu
stöð og dvalarheimili fyrir
aldraða. Gamla sjúkrahúsið er
síðan um aldamót og gott vitni
um þann stórhug sem ríkt
hefur við byggingu þess, er að
nýja sjúkrahúsið mun rúma
alveg jafn marga sjúklinga, eða
24. Með tilkomu nýja sjúkra-
hússins skapast starfsaðstaða
fyrir tvo lækna, en það tel ég
skilyrði fyrir svo einangraðan
stað sem Seyðisfjörð að hafa
læknisþjónustu í lagi sagði Jónr
as. Til þess að sýna hve mikið
kappsmál sjúkrahúsbyggingin
er fyrir kaupstaðinn, þá hefur
bæjarstjórn ákveðið að leggja
meira fé í þetta en ríkið á þessu
ári.
GATNAGERÐ FYRIR 26
MILLJÓNIR
Á Seyðisfirði er mikiil áhugi
fyrir varanlegri gatnagerð og
stendur til að framkvæma fyrir
26 milljónir á þessu ári á því
sviði, en að sögn Jónasar er
framkvæmdin algerlega háð
því að nægilegt fé fáist til fram-
kvæmdanna. Samgöngumál
staðarins eru líka alltaf í
brennidepli og sagði Jónas að
nú mætti vonast eftir ein-
hverri bót þar á. — Á síðasta
ári var 3M; km. langur kafli af
veginum yfir Fjarðarheiði
byggður upp, sagði Jónas og
hefur það sýnt sig í vetur að
þessi kafli stendur vel af sér
snjóa. Á þessu og næsta ári
viljum við klára þá 3V2 km.
sem eftir eru, en það mun kosta
75 milljónir með byggingu
tveggja brúa.
VIRKJUNARMÖGULEIKAR í
FJARÐARÁ KANNAÐIR
Eins og víða annars staðar
eru orkumál mikið rædd á
Seyðisfirði, og sagði Jónas að
staðarbúar hefðu sínar tillögur
til úrbóta á því sviði. — Bæj-
aryfirvöld hér eru að láta rann-
saka Fjarðará hér í Seyðisfirði
með tilliti til virkjunar, sagði
Jónas. — Okkur sýnist að hag-
kvæmasta virkjunarstærðin hér
sé 18 megawatta virkjun og án
stóriðju er þetta heppileg stærð.
Ég vil líka benda á að aldrei
verður vatnsþurrð í þessari á.
Við teljum að þetta yrði hag-
kvæmt fyrirtæki og að full
þörf verði fyrir þessa orku á
veitusvæðinu þegar byggingu
virkjunarinnar yrði lokið. Eins
og er skila virkjanirnar á veitu-
svæðinu ekki meiri orku en
það, að díselrafstöðvar á Seyð-
isfirði eyða olíu fyrir rúma eina
milljón króna á dag meðan
verksmiðjurnar eru í gangi.
Skýrslur um rannsóknirnar á
Fjarðará verða til á næstunni
og þá verður það í hendi Al-
þingis að ákveða um framhald-
ið, sagði Jónas.
FV 2 1976
59