Frjáls verslun - 01.02.1976, Síða 61
Þjónusta:
Hótel
Fjörður
— eign Seyðisf jarðar-
bæjar
Bæjarsjóður Sey'ðisfjarðar á
lítið hótel, sem heitir Hótel
Fjörður. Þegar Frjáls verslun
heimsótti Seyðisfjörð fyrir
skömmu var hótelstjórinn, Ingi-
björg Kristófersdóttir sótt heim
og spurð um starfsemi hótels-
ins.
— Þetta húsnæði var notað
sem eins konar farfuglaheimili
áður, sagði Ingibjörg, en þegar
bæjarsjóður auglýsti þetta á
leigu til hótelreksturs ákvað ég
að slá til. Mér fannst það alveg
nauðsynlegt að hafa hótel hér á
staðnum og það rak á eftir mér
að leggja í þetta. Hins vegar
var þetta ekki fyrr en í okt. sl.
svo ég get lítið sagt um reynslu
af rekstrinum.
NÝTING SÆMILEG í VETUR
Hótelið hefur 5 herbergi með
11 rúmum og sagði Ingibjörg
að nýtingin hefði verið alveg
sæmileg í vetur. — Það er
margs konar fólk sem á erindi
hingað að vetrinum og þá þarf
það auðvitað á gistingu að
halda, sagði Ingibjörg. En þeg-
ar vorar og siglingar Smyrils
byrja færist meira líf í þetta.
Eins og er erum við bara tvær
hérna, en í vor verðum við lík-
lega að fjölga starfsfólki og
auka þjónustuna á allan hátt.
Það er erfitt að vera með fjöl-
breyttan mat á boðstólnum t.d.
þegar ekki er mikill straumur
af gestum. f sambandi við ferð-
ir Smyrils kemur fólk oft
nokkrum dögum áður, bæði til
að skoða sig um á staðnum og
eins til að vera alveg öruggt
um að koma í tæka tíð. Þá er
jafnvel skortur á gistirými hér.
Skuttogarinn Gullver við bryggju á Seyðisfirði.
Sjávarútvcgur:
„Tel best að semja
við Bretana strax“
— segir Jón Pálsson, skipstjóri
Skuttogarinn Gullver NS 12 er gerður út frá Seyðisfirði af
hlutafélagi sem nefnist Gullberg hf. Aðaleigendur eru Ölafur
Olafsson og Jón Pálsson, skipstjóri á Gullveri. Þegar Frjáls
verslun heimsótti Seyðisfjörð fyrir skömmu vildi svo vel til
að Gullver lá við bryggju og var tækifærið notað til að taka
Jón Pálsson skipstjóra tali.
Að sögn Jóns var skipið
keypt frá Danmörku vorið
1972 og var það eiginlega eini
skuttogarinn sem danir áttu.
Hann var smíðaður í Fred-
rikshavn og er svipaður minni
togurunum sem eru til hérna.
Veiðar hafa gengið vel á tog-
aranum frá því hann kom, en
árið 1974 féll úr nokkur tími
vegna bilunar.
— Við uppgötvuðum það í
febrúar að vélin var biluð og
var þá ákveðið að fara með
skipið til Færeyja til viðgerð-
ar, sagði Jón. — Það tók þá
dálítinn tíma að athuga hvað
ætti að gera og var það að lok-
um ákveðið að skipta um vél.
Vélaskiptingin tók svo 5 mán-
uði og voru þá 7 mánuðir
farnir í þetta allt. Árið 1975
gekk svo allt alveg sæmilega
og ársaflinn hjá okkur var
2.600 tonn, sem er svona í
meðallagi. Hins vegar hafa
fyrstu túrarnir á þessu ári
verið lélegir. Við höfum hald-
ið okkur á Austfjarðamiðum
undanfarið og aflað lítið þar.
Við erum þó að vona að fiskur
fari að ganga á svæðið.
Lítt hrifnir af nærveru
Bretanna.
Gullverið hafði að undan-
förnu verið að veiðum nálægt
breska togaraflotanum og var
Jón skipstjóri lítið hrifinn af
nærveru hans. — Maður get-
ur varla kastað trolli þegar
þeir eru nálægt, sagði Jón. —
Þeir eru til alls líklegir, sér-
staklega þegar varðskipin eru
að fást við þá. Við höfum að
vísu ekki orðið fyrir beinni
áreitni núna af þeirra hálfu,
en það kom fyrir í síðasta
þorskastríði. Núna koma
dráttarbátarnir æðandi á nótt-
unni með ljóskastara til að
athuga hvaða skip sé á ferð.
FV 2 1976
61