Frjáls verslun - 01.02.1976, Page 63
Vélsmiðjan Stál:
Vinnur við nýsmíðar,
viðgerðir og verzlun
með heimilistæki
Hefur stórt verkefni fyrir Lagarfossvirkjunina
Manni finnst einna skást að
halda sig í hæfilegri fjarlægð.
Flotvarpan rányrkju-
valdur.
Þar sem skoðunum vestfirð-
inga og austfirðinga ber ekki
saman um gæði flotvörpunnar
var Jón spurður um álit á
henni.
— Við hérna fyrir austan
höfum viljað láta banna notk-
un flotvörpu og aðalástæðan
fyrir því ei' sú, að við teljum
að hún valdi rányrkju. Ráða-
menn eru hins vegar tvístíg-
andi í málinu og það hefur
komið í veg fyrir að menn hafi
fengið sér þetta. Þeir sem nota
flotvörpu jöfnum höndum
með botnvörpunni hafa vissu-
lega betri aðstöðu til að veiða
mikið, en ég tel að við verð-
um bráðum að takmarka veið-
arnar og þá getum við ör-
ugglega veitt allt sem við meg-
um í botnvörpu, sagði Jón.
Um aðra aðstöðu um borð í
Gullveri sagði Jón, að þeir
geymdu fiskinn í kössum í
annarri lestinni, en ísuðu þó
fyrst í hina lestina því hámark
væri að geyma kassafiskinn í
viku í kössunum. Jón taldi þó
að sá fiskur kæmi betur út úr
mati. Um borð í Gullveri er
ísvél, en Jón sagði að hún væri
lítið notuð og mest af ísnum
tekið í landi.
Bezt að semja strax.
Þá var Jón spurður álits á
samningum í landhelgisdeil-
unni við breta. — Þetta ástand
er óviðunandi eins og er, sagði
Jón. — Ég tel að það sé bezt
að semja strax við bretana, en
þó ekki á sama hátt og við
þjóðverjana. Þeir fengu allt
of mikinn afla og öll svæði
sem þeir fóru fram á að fá.
Austfirðingar fóru illa út úr
þessu, því þjóðverjarnir fengu
að veiða allt árið í 2 ár á bezta
en viðkvæmasta þorskgöngu-
svæðinu.
Vélstniðjan Stál s.f. á Seyð-
isfirði er nokkuð áberandi fyr-
irtæki á staðnum. Annar aðal-
eigandi þess og fratnkvæmda-
stjóri er Pétur Blöndal, vél-
smiður. Þegar Frjáls verzlun
heimsótti Seyðisfjörð fyrir
skömmu var Pétur beðinn að
segja frá fyrirtækinu og starf-
semi þess.
— Fyrst og fremst er þetta
vélsmiðja, sagði Pétur. — Við
höfum að vísu smíðað stál-
báta, en hættum því á miðju
síðasta ári. Núna vinnum við
að nýsmíðum, viðgerðum og
bílaviðgerðum. Svo höfum við
verslun í sambandi við fyrir-
tækið og þar eru seldar véiar,
raftæki, heimilistæki, hljóm-
burðartæki, barnavagnar, reið-
hjól,verkfæri og ýmislegt
fleira. Aðal verkefni fyrirtæk-
isins um þessar mundir er
smíði á lokum fyrir vatnsmiðl-
unina hjá Lagarfossvirkjun og
er það æði stórt verkefni á
okkar mælikvarða. í virkinu
öllu verða 4 svona lokur, hver
þeirra er 20 metrar að lengd
og 45 tonn að þyngd. Á hverri
þeirra er vökvaþrýstibúnaður
til að opna og loka og er gert
ráð fyrir að þeim útbúnaði
verði fjarstýrt. Síðan er hit-
unarbúnaður á hverri loku svo
hægt sé að bræða ís af þeim
á vetrum. Hitunarbúnaðurinn
á öllum lokunum væri nægi-
legur til að hita ca. 10 íbúðar-
hús. Við erum búnir að flytja
eina loku á staðinn og setja
hana upp, en við reiknum með
að vera ár með smíðina í allt.
Töluverð sala í
heimilistækjum.
:í verzlun fyrirtækisins eru
alltaf þó nokkur viðskipti þótt
ekki sé verzlunin þar sem mest
umferð er í bænum. Þetta er
eina verzlunin sinnar tegund-
ar á Seyðisfirði og er því ekki
nema von að margir þurfi að
leggja leið sína þangað. —
Pétur Blöndal í vélsmiðju Stáls
hf.
Það er alltaf töluverð sala í
heimilistækjum hérna, sagði
Pétur. — Eins fer mikið af
hljómplötum og tónböndum.
Aðal vandamálið í sambandi
við verzlunina er það hvað
vörulager þarf að vera stór.
Þetta vandamál er líka til
staðar hjá vélsmiðjunni, því
efnislagerinn þar þarf alltaf að
vera nokkuð drjúgur. Á þann
hátt verður reksturinn dálítið
þungur í vöfum, en samgöng-
ur eru það erfiðar að ekki
verður neitt fengið samdægurs.
Við látum flytja alla létta
vöru til okkar með flugvélum
en þungavöruna með skipum. í
FV 2 1976
63