Frjáls verslun - 01.02.1976, Page 75
Bæjarstjórinn í Neskaupstað:
„Tel að við verðum að fá sam-
tengingu við Kröfluvirkjun.46
„Austfirðingrar virðast hafa verið mjög
óheppnir með val á virkjunum.“
Þegar Frjáls verslun heimsótti Neskaupstað' fyrir skömmu bar ekki á öðru en allt mannlíf væri að
færast í samt lag eftir hörmungar þær sem yfir staðinn dundu á síðasta ári. Bæjaryfirvöld hafa lagt
hart að sér við uppbyggingarstarfsemi, svo og bæjarbúar allir og fjöldi aðkomumanna, sem 'unm
ið hafa á staðnum. En bæjarfélagið hefur haft fleiri verkefn'um að sinna og var bæjarstjórinn,
Logi Kristjánsson inntur eftir því hvaða verkefni hefðu verið helst á döfinni.
Logi Kristjánsson, bæjarstjóri: „Við vcrðum að veita stíft aðhald
ef ekki á að lilunnfara okkur í samgöngumálum“.
— Við höfum leitast við að
halda eðlilega áfram með þau
verkefni, sem þegar voru á-
ætluð þegar snjóflóðin komu,
sagði Logi. — Einna hæst ber
þar byggingu sjúkrahúss, sem
varð fokhelt í haust, og verið
er að vin-na í núna. Bygging
þess kemur til með að kosta
um 300 milljónir, en þegar eru
farnar í þetta 70—80 milljónir.
Á þessu nýja sjúkrahúsi verða
tvær deildir fyrir utan heilsu-
gæslustöð og endurhæfingar-
deild. Þegar þetta verður kom-
ið upp verður hér þörf fyrir 4
lækna, en hér eru bara 2 eins
og er. Hér er um fjórðungs-
sjúkrahús að ræða, sem þjóna
á all stóru svæði og kemur það
til með að bæta aðstöðu okkar
verulega.
ENDURBYGGING VATNS-
VEITU
Endurbygging vatnsveitu
stendur yfir í Neskaupstað.
Farið var að bera á vatnsskorti
í bænum og var það því brýnt
verkefni. — Við verðum að
sækja vatnið 14 kílómetra leið
inn í botn fjarðarins, en þar eru
lindir, sagði Logi. Sl. sumar var
steyptur upp jöfnunartankur,
en við verðum að gera ýmsar
lagfæringar á dreifikerfinu áð-
ur en við leggjum leiðsluna inn
í fjörð. Við þurfum líka að gera
miklar lagfæringar á gatna-
kerfinu í bænum, en mikið af
götunum skemmdist af umferð
þungavinnuvéla eftir snjóflóð-
ið. Við áætlum að eyða 35—-38
milljónum í gatnagerð á árinu
og það er mikið fé þegar tekju-
áætlun bæjarins hljóðar upp á
120 milljónir.
LEIGUÍBÚÐIR t BYGGINGU
Eins og víða annars staðar
stendur yfir bygging leiguíbúða
í Neskaupstað. — Okkur var
út'hlutað 24 íbúðum samkvæmt
lögunum um 1000 leiguíbúðir
utan Reykjavíkur en heimild
fékkst til að byrja á 12, sagði
Logi. Við höfum boðið út bygg-
ingu þeirra, og var byrjað á 4,
sem við vorum búnir að fá fé í
og eru þær nú fokheldar.
Eitt af stóru verkefnunum í
Neskaupstað er hafnargerðin.
— Uér er risin upp ný höfn
innst í firðinum, sagði Logi. —
Það var mikið unnið við hafn-
argerðina sl. sumar og er unnið
við hana enn. Síldarvinnslan
fékk eina nothæfa viðlegu-
kantinn á staðnum og þá var
ekki annað að gera en að hefj-
ast handa. Það var fjárfest fyr-
ir 160 milljónir á sl. ári í þess-
ari framkvæmd, en fyrir það
fé fékkst mikið. Hafnargerðin
var fremur ódýr vegna þess að
allt var grafið út á þurru og
uppgröfturinn fluttur tiltölu-
lega stutt, því hann var notað-
ur í uppfyllingu undir verk-
smiðjuna.
W 2 1976
75