Frjáls verslun - 01.02.1976, Blaðsíða 79
Brúnás hf., Egilsstöðum
Hefur fengið danskt sérleyfi
fyrir húseiningaframleiðslu
Framleiðsla á hurðum með plastklæðningu fyrirhuguð
Eitt af stærstu byggingarfyrirtækjunum á Ayisturlandi heitir
Brúnás h.f. Fyrirtækið byggir íbúðir og opinberar byggingar um
allt Austurland og hei'ur smíðað innréttingar allt vestur á Vest-
firði. Þegar Frjáls verslun átti leið um Egilsstaði fyrir skömmu,
en þar er heimilisfang Brúnáss, var einn af stjórnarmeðlimum
hlutafélagsins Þórarinn Hallgrímsson beðinn að' segja lesendum
hlaðsins nánar frá fyrirtækinu.
— Aðal starfsemin er bygg-
ingar og bjóðum við í verk sem
við teljum okkur geta tekið. í
sambandi við þetta rekum
við svo trésmíðaverkstæði og
steypustöð og erum með eitt-
hvað af þungavinnuvélum. Eins
og er erum við að byggja 16
íbúða leigublokk fyrir Egils-
staðakauptún, en við höfum á
undanförnum árum byggt t. d.
5 símstöðvar á Austurlandi og
skilað þeim alveg tilbúnum.
Fyrirtækið smíðar líka innrétt-
ingar eftir pöntun og við höf-
um m. a. smíðað innréttingar
í 24 íbúðir á Hornafirði.
NÝ FRAMLEIÐSLA
Hjá Brúnás er ný framleiðsla
á döfinni, en það eru hurðir
með plastklæðningu. — Við
fengum alveg nýtt bandarískt
sérleyfi, sem gildir fyrir Norð-
urlönd, sagði Þórarinn. Við
kaupum plastfilmu sem heitir
„formi clad“ og mótum hana
fyrst í mótum sem við gerum
sjálfir og límum hana síðan á
venjulega hurð. Við byrjuðum
að gera tilraunir með þetta í
október eða nóvember í haust
og erum lítið farnir að selja
ennþá, það eru eiginlega bara
sýningarhurðir sem eru tilbún-
ar. Við ætlum að setja þessar
hurðir í blokkina sem við erum
að byggja og þá ætti fljótlega
að sjást hvernig þær reynast.
Við erum bjartsýnir á að þessi
framleiðsla gangi vel. Þessar
hurðir eiga að vera léttari í
viðhaldi og auðveldara að þrífa
þær. Það er líka hægt að
munstra plastfiknuna alla vega
og þá verða hurðirnar ódýrari
en munstraðar viðarhvu’ðir. Við
komum til með að hafa þessar
hurðir til í mörgum litum og
í viðarlíki.
DANSKT SÉRLEYFI
Brúnás h.f. var stofnað árið
1958 og eru eigendurnir nú 35.
Talsverður vöxtur hefur verið
í fyrirtækinu síðan og var velta
síðasta árs um 90 milljónir
króna. Brúnás h.f. kom sér upp
nýju húsnæði fyrir 6 árum og
hafa eigendurnir verið að ganga
frá því smám sarnan. Áætlanir
eru uppi um að byggja við
þetta hús stóran vinnusal, en
ekki er ráðið hvenær það verð-
ur. — Annars er aðal draumur-
inn að koma upp húseininga-
verksmiðju, sagði Þórarinn. —
Við erum búnir að fá danskt
sérleyfi fyrir steyptum eining-
um með einangruninni steyptri
í. Nú stendur bara á því að
fjármagna fyrirtækið og virð-
ist það ætla að verða erfitt,
Við ætlum þó ekki að slá striki
yfir þessar áætlanir alveg
strax, sagði Þórarinn. — Það
er erfiðast að fjármagna fjár-
festingarþætti eins og svona
verksmiðju, en auðveldara að
fjármagna útboðsverk. Þá koma
greiðslur eftir samningum svo
það er engin óvissa fyrir banka
að lána smávegis í svoleiðis.
Annars er rekstrarfjárskortur-
inn sá sami hér og alls staðar
annars staðar.
FV 2 1976
79