Frjáls verslun - 01.02.1976, Qupperneq 86
AUGLÝSING
SCOUT:
IMargvíslegir notkunarmöguleikar
Véladeild SÍS hefur flutt inn
Scout jeppana frá Internation-
al Harvester í Bandaríkjunum.
Sérstakir kostir Scout jeppans
eru, hve lítið hann breytist á
löngu árabili. Hann hefur að-
eins einu sinni tekið stökk-
breytingu, sem var árin
1971-72, þegar farið var að
kalla hann Scout II, eða aðra
kynslóð slíkra bíla.
Scout Traveller.
Útlitsbreytingar eru smá-
vægilegar, en boðið er í árgerð
’76 fjölbreytilegra val í innri
klæðningu þeirra, auk þess sem
um nokkrar mikilvægar tækni-
legar breytingar er að ræða.
Við viljum því nefna, að ár-
gerð ’76 býður kaupendum: 1)
Fjölbreytt úrval fallegra lita
og litaskiptinga úti sem inni,
og stóla með háu baki og al-
klæðningu 2)Elektróniska
kveikju, sem er mikilvægt ný-
mæli 3) 4 strokka vélar, eru
nú aftur boðnar, seigar og
sparneytnar 4) Lengri Scout
með 118” millibili má nú fá,
auk hins venjulega með 100”
millibili milli öxla 5) Sérstaka
útgáfu með fábreyttum búnaði
fyrir bændur og fyrirtæki sem
vinnujeppa, þar af leiðandi ó-
dýrari.
Scout II gegnir mörgum
hlutverkum. Hann er fjöl-
skyldubíll, ferðabíll, vinnujeppi
og fyrir þann sem hefur efni á,
sannkallaður lúxusbíll.
í þessu sambandi er rétt að
benda á búnað, svo sem vinnu-
véladrif og dráttartengi fyrir
bændur og síðan sjálfskipt-
ingu, vökvastýri og leður-
klæðningu fyrir þann sem bið-
ur um lúxusbíl.Einmitt þetta.
hve vel hann sameinar alla
þessa notkunarmöguleika og
valkosti er veigamesta atriðið
í því, hve vinsældir Scout jepp-
ans hafa aukist.
Salan á síðasta ári var góð
og seldust um 70 Scout jeppar.
Var hann því næst söluhæsti
benzínjeppinn á markaðnum.
En hvers vegna er Soutinn
svo vinsæll? Hann er rúmgóð-
ur án ytri fvrirferðar, þægileg-
ur fyrir ökumann sem og alla
farþega, öruggur á vegi og
lipur I akstri. Viðhald og við-
gerðir eru í lágmarki.
Ódýri vinnubíllinn kostar
kr. 2.150 þúsund og dýrasti
lúxusbíllinn um kr. 2.750 þús-
und. Algengustu gerðirnar
koma þarna á milli.
Scout.
86
FV 2 1976