Frjáls verslun - 01.02.1976, Síða 90
AUGLÝSING
VOLVO:
IMær óstöðvandi í torfærum
Volvo jeppinn 4140.
Sænsku Volvo verksmiðjurn-
ar hafa nú byrjað framleiðslu
á nýjum jeppa, sem ber heitið
VOLVO JEPPINN 4140. Útlit
þessa jeppa svipar í fljótu
bragði til gamla Lapplander
jeppans, en þessi er mun breið-
ari og betur innréttaður. Hann
verður fáanlegur með spili og
kraftúttaki. Vélin er 90 ha.
benzínvél.
Einnig er hægt að fá jeppann
með sex strokka benzínvél,
tveimur afturöxlum og drifi á
sex hjólum. Þessir sérstöku
kostir eru sagðir gera jeppann
óstöðvandi í torfærum. Báðar
þessar gerðir verða til seinni
hluta þessa árs.
í Ungverjalandi er nú hafin
framleiðsla á Lapplander
3314L, og verður sá jeppi
einnig fáanlegur hér seinni
hluta þessa árs. Umboðsaðili
jeppanna hér er Veltir hf. Suð-
urlandsbraut 16. Ekkert liggur
enn fyrir um verð á þeim.
Búist er við, að VOLVO
JEPPINN 4140 verði nokkuð
dýr miðað við aðra jeppa, enda
er hann mjög vel útbúinn og
eins og áður er sagt sérstak-
lega hannaður fyrir hvers kon-
ar torfærur.
ItROMCO:
Sameinar alla helztu kosti jeppa
Ýmsar breytingar hafa verið
gerðar á 76 árgerðinni af Ford
Bronco og má þar m. a. nefna
nýtt hemlakerfi, þ. e. a. s. afl-
hemla, diskahemla að framan í
stað skálhemla og aukin hemla-
flöt að aftan. Bronco er nú fá-
anlegur með nýrri styrktri
fjöðrun. Einnig er jafnvægis-
stöng að framan.
Fordumboðin Kr. Kristjáns-
son og Sveinn Egilsson hf. selj-
endur Bronco jeppanna hafa
nú sameinast í eitt umboð sem
er til húsa í Skeifunni 17.
Aðalkostir Bronco byggjast
á því, að notagildi hans er mik-
ið. Hann sameinar alla helstu
kosti jeppa. Hann er í senn góð-
ur ferða- og torfærujeppi, fjöl-
skyldu- og lúxusbíll. Vinsældir
hans byggjast á áðurtöldum
Ford Bronco.
90
FV 2 1976