Frjáls verslun - 01.04.1977, Side 75
ræst. Því það er ekki nóg me'ð
að þessum aðilum gangi vel
sambýlið heldur búa þeir nú
í húsnæði, sem er ódýrara en
gengur og gerist úti í bæ. Það
hefur líka sýnt sig að þau fyrir-
tæki, sem hér eru til húsa, hafa
stækkað örar en sambærileg
fyrirtæki úti í bæ og það bend-
ir vissulega til þess að þetta
umhverfi sé þeim í hag.
Síðan barst talið að hinu fyr-
irtækinu — Frum.
— Það hefur sýnt sig að öll
fyrirtækin, sem hér eru til húsa
cg notfæra sér þjónustu Frum,
eru mjög ánægð, sagði Árni.
— Til að byrja með heyrðust
hér raddir um að þjónusta okk-
ar væri þess eðlis að það borg-
aði sig miklu betur að annast
hana sjálfur, þar á ég t. d. við
póstþjónustu, verðútreikninga,
gerð tollskýrslna og fleira.
Menn gerðu sér greinilega ekki
ljóst að heildsalar, sem eyða
tíma sínum í þessi verk, eru
að nota dýran vinnukraft, oft-
ast dýrasta vinnukraftinn, þá
sjálfa, í snatt, sem ótrúlega
mikill tími fer í.
SPARNAÐUR 3-4 MILLJ. Á
FYRIRTÆKI
— Nú höfum við líka í aug-
ljósum reikningsdæmum stað-
festingu á þeim sparnaði, sem
felst í því fyrir fyrirtækin að
notfæra sér þá sameiginlegu
þjónustu, sem við bjóðum upp
á. Gróft reiknað hefur komið
í Ijós að meðalstórt fyrirtæki
hér sparar 3-4 milljónir á ári
með því. Mestur sparnaður felst
í því fyrir fyrirtækin að noi-
færa sér telexþjónustu okkar,
aksturinn, póstþjónustuna og
tollskýrslugerðina. Ef hvert
fyrirtæki fyrir sig þyrfti að
hafa sinn eigin telex þyrftu
þau að greiða 59 þúsund krónur
á mánuði í fastagjald til Pósts
og síma. Hér þurfa þau að
greiða 8 þúsund krónur á mán-
uði fyrir sömu þjónustu. Gera
má ráð fyrir að fyrirtæki, sem
annast sjátft tollskýrslugerð,
eyði í það um 2.6 milljónum á
ári. Hér borga þau 1 milljón
króna. Ég læt þessi tvö dæmi
duga, en þannig væri hægt að
bera saman alla þjónustuliðina
og útkoman yrði alltaf okkur í
hag miðað við þann heildsala,
sem þarf að annast allt sjálfur.
Næsta skref í samstarfsátt
hér í Sundaborg, sem Frum h.f.
vinnur nú að, er kaup á tölvu-
samstæðu, sem fyrirtækið mun
reka, og annast allt bókhald,
þ. e. fjárhags-, viðskipta- og
birgðabókhald, fyrir fyrirtækin
hér.
Stefnum við að því að þróa
hér sérhæfða tölvuvinnslu fyr-
ir heildverslanir og bjóða þá
jafnframt þjónustuna út fyrir
veggi hússins, en brýn þörf er
nú í atvinnugreininni fyrir
slíka vinnslu.
Hjá Frum vinna í dag 8
manns. Þrír eru í tollasamstarfi,
1 í bæjarferðum, 2 í tollskýrslu-
gerð, 1 vélabókari, 1 gjaldkeri,
2 í mötuneyti og síðan fram-
kvæmdastjórinn.
Jarðvinnuverktakar og leiga á vinnuvélum
ÝTUTÆKNI HF.
Sími 52222
Trönuhrauni 2
Hafnarfirði
FV 4 1977
75