Frjáls verslun - 01.04.1979, Page 13
s r
vinnubankans voru nokkru fyrir of-
an meöallag, og hækkaði hlutdeild
hans í heildarútlánum viðskipta-
bankanna úr 6,3% í 6,4%. Af skipt-
ingu útlána er það m.a. að segja, að
vaxtaaukalán jukust úr 15,1% árið
1977 upp í 26,5% árið 1978.
Heildarvelta bankans nam á ár-
inu 228, 1 milljarði og jókst um
52,2%. Færslu- og afgreiðslufjöldi
varð 2.001 milljón, sem er 7,6%
aukning. Viðskiptareikningar voru í
árslok 53.427 og fjölgaði um 2.615
á árinu. Starfsmenn við bankastörf
voru 115 í árslok og fjölgaði aðeins
um einn á árinu.
Bankinn starfrækir nú ellefu úti-
bú og tvær umboðsskrifstofur utan
Reykjavíkur, auk aðalbankans og
tveggja útibúa í höfuðstaðnum. Var
þróunin hjá útibúunum í heild
ágæt, en þó nokkuö misjöfn. Á ár-
inu var hafin bygging nýs húss fyrir
útibúið á Vopnafirði, sem starfað
hefur í leiguhúsnæði við mikil
þrengsli. Hefur smíði hússins
gengið vel, og er áætlaö að það
verði tilbúið til notkunar í næsta
mánuði.
Ný bókaútgáfa
Nýlega hefur verið stofnuð bóka-
útgáfa að tllhlutan Kristilegs Stúd-
entafélags og hlaut nafnið SALT.
Tilgangur útgáfunnar er ,,að bæta
úr mjög brýnni þörf á útgáfu kristi-
legra bóka og rita á (slandi".
Gefnar hafa verið út 5 bækur,
ætlaðar bæði til gjafa sem einka-
nota, auk allmargra bæklinga sem
hafa komið að góðum notum í um-
ræöuhópum og leshringjum. Bóka-
útgáfan hefur stofnað áskrifenda-
klúbb, en meðlimir hans skuld-
binda sig til að kaupa eitt eintak af
hverri bók eða bæklingi sem SALT
gefur út.
Stjórnarformaður SALTS er
Guðmundur Hallgrímsson, lyfja-
fræðingur. Framkvæmdastjóri er
Gunnar Jóhannes Gunnarsson.
SHALOM, útgáfufyrirtæki Ungs
fólks með hlutverk, er að gefa út
hollenska barnabók, sem er hugs-
uð sem svar við hinni umræddu bók
Félagi Jesús. Heitir bókin ,,Það er
satt — og allirættuað vita það". Er
bókin byggð þannig upp að börn og
foreldrar lesi hana saman og ræði
efni hennar. SHALOM gefur auk
þess út snældur (kassettur) með
kristnum söngvum og fræðsluefni.
✓ V
Kalda borðið
í Blómasalnum
Bjóðið viðskiptavinum í kalda borðið í hádeginu
eða upp á fjölbreyttan matseðil í Blómasal.
Munið hin vinsælu skemmtikvöld með dagskrám
tileinkuðum ýmsum þjóðlöndum nær og fjær og
girnilegum sérréttum.
Verið velkomin í gistingu og mat
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
13