Frjáls verslun - 01.04.1979, Qupperneq 20
- „í ávaxtaflutningum á
Miöjaröarhafi fyrir ungverska
og alsírska aöi!a„
Næg verkefni
fyrir öll skip
Nesskip
Nesskip h.f. var stofnað í byrjun
árs 1974. Fyrirtækið á nú í dag 3
skip: Suðurland, Vesturland og
ísnes, samtals 4753 br. rúmlestir.
Að sögn Guðmundar Asgeirsson-
ar framkvæmdastjóra Nesskips
h.f. eru næg og góð verkefni fyrir
öll skipin og hafa þau verið í
flutningum milli Islands og
meginlandsins, milii hafna þar og
einnig talsvert milli hafna hér
heima.
Suðurland hefur verið í saltfisk-
flutningi héðan til Miðjarðarhafs-
landanna enda er það skip sér-
staklega útbúið sem kæliskip.
Vesturlandið hefur aðallega verið í
mjölflutningi héðan og á heimleið
hefur skipið ýmist verið leigt stóru
skipafélögunum eða flutt heila
farma. ísnes vareingöngu erlendis
á síðasta ári og flutti skipið um
154.000 tonn í 40 ferðum. ísnes
mun verða í hráefnisflutningum
fyrir Járnblendifélagið Grundar-
tanga en einnig mun pað verða
eitthvað í flutningum milli hafna
erlendis.
,,Við erum að hugsa um að
reyna að fá okkur annað skip
ámóta og Isnesið til þess að við
getum tryggt Grundartangaverk-
smiðjunni sem mest öryggi í hrá-
efnisöflun. Mestur hluti hráefnis-
ins kemur frá Norður-Noregi en
einnig frá nokkrum öðrum stöðum
í Evrópu," sagði Guðmundur.
Samtals munu skip félagsins hafa
flutt yfir 200.000 tonn á síðasta ári.
Hjá Nesskip h.f. starfa nú um 50
fastráðnir starfsmenn.
Hvalvík lestar salt á Spáni
- „Getur borgaö sig aö leigja
skip fyrir 500 tonna frakt„
„Viö byrjuðum meö bjartsýnina
eina sem veganesti. Ég var búinn
aö vera skipstjóri og stýrimaður
bæöi heima og erlendis nokkuð
lengi og langaði til að reyna að
gera út sjálfur," sagði Finnbogi
Kjeld, forstjóri skipafélagsins
Víkur h.f. „Nú eigum við tvö skip
Hvalvík og Eldvík, sem samtals
hafa 7200 tonna burðargetu. Við
erum með þau í svo nefndum
leigusiglingum, sem Bretinn kall-
ar „tramping“. Við siglum talsvert
fyrir erlenda aðila, þegar ekki eru
næg verkefni fyrir skipin í ís-
landssiglingunum.
Við stofnuðum fyrirtækið '69 og
það voru bara góð ár fram að árinu
1975. Útkoman 1978 varð svo aftur
þokkaleg. Þetta stefnir allt f rétta
átt," sagði Finnbogi.
Hann kvað Eldvíkina vera út-
búna sem kæliskip og því mikið
notaða við saltfiskflutningana.
,,Við erum mest í þungavöruflutn-
ingum. Flytjum mikinn saltfisk fyrir
SÍF til Spánar, Portúgals, Ítalíu og
Grikklands og tökum þá gjarnan
með okkur heim salt frá Suð-
ur-Spáni en við störfum í nánum
tengslum við Saltsöluna h.f. Við
höfum líka talsvert verið í flutning-
um milli Grænlands og Danmerk-
ur. Við fluttum rörin fyrir hitaveitu-
framkvæmdirnar í Keflavík og
Akureyri, gjall fyrir Sementsverk-
smiðjuna, loðnumjöl flytjum við og
svo sáum viö um skreiðarflutning-
ana til Nígeríu í fyrra svo eitthvað
20