Frjáls verslun - 01.04.1979, Blaðsíða 47
Frystar sjávarafurðir fyrir
13 milljónir dollara til Sovét
Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna hefur
flutt út frystan fisk til
Sovétríkjanna síðan
1946.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hefur selt hraðfrystar sjávarafurð-
ir til Sovétríkjanna allt frá 1946.
Fyrsti samningurinn var gerður í
maí á dögum hinnar svonefndu
nýsköpunarstjórnar. Útflutningur-
inn til Sovétríkjanna nam þá
13.700 smálestum, eða 54% af
framleiðslu ársins, en þá voru að-
eins seld 2900 tonn til Bandaríkj-
anna, eða 11% af heildarfram-
leiðslunni, en Bandaríkin eru nú
stærsti markaðurinn fyrir þessa
framleiðslu.
Ef þessar tölur eru bornar sam-
an við árið 1977, kemur í Ijós, að
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
seldi til Sovétríkjanna 9.986 tonn,
en til Bandaríkjanna 47,375 tonn.
Þessar upplýsingar fékk F.V. hjá
Guðmundi H. Garðarssyni hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
en 72 frystihús víðsvegar á landinu
eru í SH.
— Varóandi útflutning Sölu-
miðstöðvarinnar til Sovétríkjanna
á árinu 1979 er það að segja, sagði
Guðmundur, að 16. janúar voru
gerðir samningar við sovéska inn-
kaupafyrirtækið Prodintorg um
sölu á frystum sjávarafurðum. Eru
það 5.400 smálestir af karfa,
löngu, keilu, steinbít og grálúðu-
flökum, 500 smálestir af ufsaflök-
um og 4000 smálestir af heilfryst-
um fiski að verðmæti 13 milljónir
dollara.
Gegnum árin hefur mest verið
flutt út til Sovétríkjánna af karfa og
ufsaflökum. Á síðustu árum hefur
hlutur grálúðu aukist í samræmi
við auknar veiðar á henni.
Stór hluti af þessum útflutningi
er í 7 punda umbúðum, verulegt
magn er í 8 kg. umbúðum, og
einnig er flutt út í blokkum. Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna og
sjávarafurðadeild SIS semja sam-
eiginlega við þessa aðila í Sovét-
ríkjunum, en samið er til eins árs.
Guðmundur H. Garðarsson
sagði, að ýmist væri samið í
Moskvu eða hér heima, en samn-
ingar hafa oftast verið undirritaðir í
Moskvu. Hann sagði að þessi 72
frystihús innan SH hefðu að sjálf-
sögðu leyfi til að framleiða fyrir
þennan markað, en þau hagnýttu
sér það misjafnlega. Einstaka
frystihús hafa framleitt mjög mikið
fyrir Sovétmarkaðinn, sérstaklega
þau hús, sem eru með togara, sem
veiða mikið karfa og ufsa.
Þær frystu sjávarafurðir sem
fluttar eru til Sovétríkjanna héðan
frá íslandi eru seldar í verslunum
m.a. í Moskvu.
Stærsti markaðurinn fyrir frystar
sjávarafurðir frá íslandi er í
Bandaríkjunum. I ár er næst
stærsti markaðurinn í Bretlandi og
þriðji stærsti í Sovétríkjunum.
Einnig er selt til V-Þýskalands,
Hollands, Belgíu, Frakklands,
Portúgal, Ítalíu, Sviss, Danmerkur,
Noregs, Svíþjóðar og Japan.
47