Frjáls verslun - 01.04.1979, Blaðsíða 59
þess fær hann mánaðarlega
20.000 dollara greiðslu frá fyrir-
tækinu.
Atvinnuástand bæjarbúa taldi
Ásbjörn vera með bezta móti mið-
að við árstíma en það væri helzt í
byggingariðnaðinum sem ástand-
ið væri slæmt. Þar væri helzt lé-
legu tíðarfari um að kenna.
Félagslíf hefur alltaf verið blóm-
legt í Hafnarfirði og mörg félög eru
þar með öfluga starfsemi. Hæst
ber íþróttafélögin F.H. og Hauka
sem hafa margar deildir innan
sinna vébanda en þau eru samt
langt í frá að vera einu íþróttafé-
lögin. Því til stuðnings nægir að
nefna golfklúbbinn Keili, fim-
leikafélagið Björk og Sundfélag
Hafnarfjarðar. Þar að auki eru
starfandi björgunarsveit, karlakór,
lúðrasveitir, skátafélag, tónlistar-
félag, góðtemplarafélag og fleiri
og fleiri félög og klúbbar.
Afkoma almennings góð
Við höfðum samband við einn af
framámönnum peningamála
bæjarins og hann tjáði okkur að
afkoma fyrirtækja og almennings
væri mjög góð í Hafnarfirði. Samt
hefðu komið upp vandamál og al-
varlegasta ástandið skapaðist er
frystihúsin stöðvuðust, á síðari
hluta síðasta árs. Þeir atburðir
leiddu af sér að afkoma allra fyrir-
tækja og bæjarbúa versnaði enda
er fiskiðnaðurinn undirstaða at-
vinnulífsins. En nú væru fiskiðju-
verin að rétta úr kútnum og þá
fylgdu önnur fyrirtæki með.
Eitt er það atriði sem er dálítið
sláandi í sambandi við bankamál
bæjarins en það er að mjög stór
hluti fjármuna Hafnfirðinga og
hafnfirzkra fyrirtækja virðist vera
geymt í bönkum höfuðborgarinnar
og hefur verið gizkað á að um 5
milljarðar væru í bönkum bæjarins
en aftur á móti lægju um 12 mill-
jarðar króna í bönkum í Reykjavík.
Þetta virðist samt vera að breytast
því að mikil innlánsaukning hefur
verið hjá bönkunum undanfarið.
Stærsti banki Hafnarfjarðar er
Sparisjóður Hafnarfjarðar og er
hann einn stærsti og elzti spari-
sjóður landsins.
Það má segja að sérstaða Hafn-
arfjarðar sé mikil. Hann stendur í
mjög fögru bæjarstæði og eins og
áður hefur komið fram er mjög góð
hafnaraðstaða frá náttúrunnar
hendi. Segja má að bærinn sam-
eini kosti höfuðborgarinnar svo og
kosti landsbyggðarinnar.
Opið til 9 alla daga
Úrval af kjötvörum
HVAMMSKJOR
Smárahvammi 2 — Sími: 54120