Frjáls verslun - 01.04.1979, Qupperneq 61
Nanna dóttlr Lisu og Björns við brennsluofninn fyrir keramlkið.
framleiöir steypumót og allt efni og
skyldar vörur til keramiskrar
fönduriðju. Duncan Ceramics er
almennt talið hafa gert keramiska
listiðju að almenningseign en það
hefur sérhæft sig á þessu sviði allt
frá 1923.
Námskeiðin — vaxandi
vinsældir
Þau hjónin, Lísa og Björn,
sögðu það vera útþreiddan mis-
skilning hjá mörgum, sem við listir
fást, að það væri lítið hægt að læra
sér til gagns á þessu sviði þar sem
fólk fengi uppsteypta hluti í hend-
urnar í stað þess að móta hlutina
sjálft.
Þeir sem hafa kynnzt þessu af
eigin raun eru þó á allt annarri
skoðun. Uppsteyptir eru þessir
hlutir skemmtilegt hráefni sem fólk
getur beitt sköpunarmætti sínum
og hugarflugi til þess að gera að
persónubundnum listmunum.
Hlutina þarf að vinna undir skreyt-
ingu eða málun, síðan þarf að beita
ýmsum efnum og aðferöum til þess
að laða fram hin ýmsu blæbrigði.
Eftir að munirnir eru fullunnir frá
hendi þess sem tekur þátt í nám-
skeiöinu, eru þeir glerjaðir og inn-
þrenndir.
Hjá Keramikhúsinu eru haldin
regluleg námskeið á hverjum vetri.
Hvert námskeið stendur yfir í 5
vikur, eitt kvöld í viku. Námskeiðin
hafa átt sívaxandi vinsældum að
fagna og koma margir þátttakend-
ur langt að, en þaó eru mest kon-
ur. Auk skrautmuna búa þátttak-
endur gjarnan til ýmsa persónu-
einkennda nytjahluti, svo sem
matarföt, kaffibolla, glös, salat-
diska, sultuglös og jafnvel heilu
matarstellin. Margir hafa fundið í
þessu skemmtilegt tómstunda-
starf, meira að segja eru dæmi um
það að fjölskylda hafi sjálf gert all-
ar jólagjafir á þennan hátt og auk
ánægjunnar og óvenjulegra gjafa
sparað sér mikil útgjöld.
Hjá Keramikhúsinu fá þeir sem
þetta föndur iðka allt sitt efni og
áhöld auk þess sem fyrirtækið
innþrennir muni fyrir þá.
STOFNANIR,
FÉLÖG
VERZLUNARRÁÐ
ISLANDS
er allsherjarfélagsskapur kaup-
sýslumanna og fyrirtækja. Til-
gangur þess er að vinna að sam-
eiginlegum hagsmunum þeirra, að
styðja að jafnvægi og vexti efna-
hagslifsins og efla frjálsa verzlun
og frjálst framtak.
Verzlunarráð íslands,
Laufásvegi 36,
Reykjavík.
Sími 11555.
Skrifstofan er að Hagamel 4, sfmi
26850.
V erzlunarmannaf élag
Reykjavíkur.
KAUPMANNASAMTÖK
ÍSLANDS
Marargötu 2.
Símar 19390-15841.
FÉLAG ÍSLENZKRA
STÓRKAUPMANNA
er hagsmunafélag stórkaupmanna
innflytjenda og umbo&ssala.
FÉLAC ISLENZKRA STÓRKAUPMANNA
TJARNARCÖTU 1« — REYKJAVlK — SlMl 10S50.
óvenjulegt
fyrirtæki
i Hafnarfiröi
61