Frjáls verslun - 01.03.1985, Page 8
I FRETTUM
Forstjóraskipti hjá SH í ár
— Kristján Ragnarsson talinn líklegasti arftaki
Eyjólfs ísfelds Eyjólfssonar
BÚIST er við því að
Eyjólfur ísfeld Eyjólfs-
son, forstjóri Sölumið-
stöðvar hraðfyrstihús-
anna, muni láta af því
starfi sínu á þessu ári.
Þó hefur blaðið fyrir því
öruggar heimildir aö
Eyjólfur hafi ekki sagt
starfinu lausu né heldur
hafi honum verið sagt
upp. Hins vegar er það
almennt álitiö aö hann
muni láta af störfum í ár,
enda er hann 65 ára
gamall.
Ýmsir hafa verið
nefndir tii sögunnar sem
væntanlegir arftakar
Eyjólfs. Samkvæmt
heimildum Frjálsrar
verslunar eru það eink-
um þrír menn sem til
álita koma, en þeir hafa
missterka stöðu innan
stjórnar Sölumiöstöðv-
arinnar, þó allir njóti þeir
mikils trausts sem hæfir
einstaklingar á sínu
sviði. Þeir þrír sem
nefndir hafa veriö eru
þeir Kristján Ragnars-
son, formaður Lands-
sambands ísl. útvegs-
manna, Friðrik Pálsson
framkvæmdastjóri Sölu-
sambands ísl. fiskfram-
leiðenda og Brynjólfur
Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Bæjarut-
gerðar Reykjavíkur og
stjórnarmaður í SH.
Eftir því sem Frjáls
verslun kemst næst er
Kristján
Brynjólfur
staða Kristjáns Ragn-
arssonar talin sterkust
þeirra þriggja manna
sem nefndir eru, en
staöa þeirra Friðriks og
Brynjólfs svipuð. Þá
má þess einnig geta aö
ýmsir hafa verið orðaðir
við starf Eyjólfs og má
þar meöal annarra nefna
Guömund H. Garðars-
son, en samkvæmt
heimildum blaðsins mun
hann ekki þess fýsandi
að gefa kost á sér.
Þá má foks geta um aö
skipulagsbreytingar eru
til umræðu á skipuiagi
Sölumiöstöðvarinnar og
hefur ráðgjafarfyrirtæki
unnið að úttekt á þvi
sviði. Er jafnvel talið að
forstjóraskipti hjá SH
muni tengjast þessum
skipulagsbreytingum
sem þar með kæmu til
framkvæmda í ár.
Óvíst um pílagríma-
flug Flugleiða í ár
Óvíst er hvort af píla-
grímaflugi verður hjá
Flugleiðum í ár. Svo sem
flestum mun kunnugt er
tímatal múhammeðstrú-
armanna annað en okkar
og færist því „pílagríma-
tíminn" til árlega og
nálgast æ meira aðal
annatímann í flugi Flug-
leiöa. Undanfarin ár hafa
Flugleiðir eingöngu not-
að leiguflugvélar til píla-
grímaflugsins og voru
erlendar áhafnir á þeim
vélum. Hins vegar önn-
uðust Flugleiöir skipulag
flugsins og alla af-
greiöslu og tókst það
mjög vel.
8