Frjáls verslun - 01.03.1985, Blaðsíða 87
VIÐSKIPTAÞING
„ísland framtíðarinnar
- land tækifæra eða stöðnunar?”
VIÐSKIPTAÞING Verzlunar-
ráös íslands var haldiö á dögun-
um undir kjöroröinu ÍSLAND
FRAMTÍÐARINNAR - land
tækifæra eöa stöönunar? Ragn-
ar S. Halldórsson formaöur
Verzlunarráösins setti þingiö en
síöan voru flutt mörg athyglis-
verö erindi. Þau fluttu Jónas H.
Haralz sem fjallaði um ísland og
umheiminn. Gunnar M. Hansson
flutti erindi um ísland og tækni-
nýjungar. Höröur Sigurgestsson
fjallaði um vaxtarskilyrði at-
vinnulífsins og Ingjaldur Hanni-
balsson fjallaöi um vaxtarmögu-
leika atvinnulífsins. Þá flutti Pehr
G. Gyllenhammar forstjóri Volvo
AB og sérstakur gestur þingsins
erindi um framtíö Evrópu. Loks
voru panelumræður sem í tóku
þátt þeir Þorsteinn Pálsson,
Halldór Ásgrímsson, Eggert
Hauksson og Friörik Pálsson.
Umræðunum stjórnaöi Ólafur B.
Thors. Frjáls verzlun birtir hér á
eftir helstu niöurstööur erinda
ræöumanna aö Pehr G. Gyllen-
hammar undanskildum, en eins
og lesendum blaðsins er kunn-
ugt var forsíöuviötal viö Gyllen-
hammar í síöasta blaöi.
Ragnar S. Halldórsson sagöi
m.a.:
Viö getum vafalaust veriö
sammála um, aö heimurinn er
ekki aö farast. Hvert viö stefnum
hins vegar má ræöa frá ýmsum
sjónarhornum.
Flestum er Ijóst, aö upplýs-
ingabyltingin er aö taka við af
iðnbyltingunni. Tækniframfarir
veröa sífellt örari og m.a. þær
auövelda okkur að ná þvi mark-
miöi aö sem mest hagsæld veröi
fyrir sem flesta íbúa jaröarinnar.
Heimurinn er einnig minni en
áður. Það er styttra milli staða,
þrátt fyrir sömu vegalengdir
vegna sibættra samgangna og
fjarskipta.
Heimurinn verður i vaxandi
mæli ein heild, eitt viðskipta-
svæði. Alþjóðlegt samstarf hefur
aukist og fjölmiölar af ýmsu tagi
hafa fært fjölskyldur heimsins
nær hverri annarri. Hungursneyö i
Eþiópiu kallar strax á liösinni „ná-
granna“ þeirra um allan heim.
Á markaðnum eru neytendur
betur vakandi um rétt sinn.
Þjóðfélagiö á Vesturlöndum er
opnara, frjálslegra en áður. Al-
mennt starfsfólk tekur virkari þátt
i stjórnun fyrirtækja. Menn
treysta meira á sjálfan sig en var
fyrir áratug og i skipan atvinnu-
og kennslumála meira á einka-
reksturinn en hið opinbera. Lýð-
ræði virðist þvi vaxa ásmegin,
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
ýmissa kúgunarafla til að draga
úrþví.
Lokaorö
Þessirstraumar, sem nú ganga
yfir heiminn urðu okkur i Verzlun-
arráði islands hvatning til að fjalla
um stöðu þessara mála i nútið og
sérstaklega i framtiö á þessu
Viðskiptaþingi.
Maðurinn er á flestan hátt sinn-
ar eigin gæfu smiður. Hann getur
haft mótandi áhrif á umhverfi sitt
og framtið. Það er þvi mikils um
vert að við reynum að átta okkur
á því hvert stefnir og gerum okkur
grein fyrir hvað framundan er.
island er land tækifæranna, ef
83