Frjáls verslun - 01.03.1985, Blaðsíða 13
EFNAHAGSMÁL
Afrekslisti efnahagsmál 1984:
íslendingar skipa
eftir sem áður 13. sætið
— japanir í fyrsta sæti
„Er botninum náð í efnahags-
málum okkar íslendinga",
spurðum við fyrir einu ári síöan
við birtingu afrekalista efna-
hagsmálanna ársins 1983.
Margt benti þá til að svo hafi
verið og fæst það staðfest með
þróuninni í fyrra. Við skipum
reyndar enn 13. sætið en höfum
bætt við okkur stigum og fjar-
lægst löndin fyrir neðan okkur.
Skýrust merki um bætta stöðu
er mikil minnkun verðbólgu, þó
svo við séum enn konungar kon-
unganna á því sviði, og aukning
þjóöarframleiöslu og fjármuna-
myndunar. Efnahagur okkar ber
þó enn mikil sjúkleikaeinkenni.
Þau helstu eru mun meiri verð-
bólga en í viðskiptalöndum
okkar og vaxandi og mikill halli
á viðskiptum okkar við útlönd.
Líklega er viðskiptahallinn al-
varlegasta efnahagsvandamál
okkar og á hann eftir að setja
svip á íslenskt þjóðlíf á næstu
árum.
Ekki er að vænta stökkbreyt-
inga í efnahagslífi okkar á þessu
ári: þjóðarframleiðsla mun vaxa
lítillega, fjármunarmyndun verð-
ur nokkuð en hæg, atvinnuleysi
verður áfram lítiö, verðbólgan
meiri en í viöskiptalöndum
okkar, viðskiptahallinn ugg-
vænlegur en launaþróun er
óráðið dæmi. Við verðum lík-
lega í svipuðum félagsskap
áfram fyrir neðan tíunda sætið.
HM í efnahagsmálum 1984
Röð 1984 Land Stig Röð 1983
1. Japan 77 (1)
2. Noregur 70 (2)
3. Sviss 68 (5)
4. Austurríki 56 (10-11)
5-7. Bandaríkin 55 (8)
Danmörk 55 (12)
Vestur-Þýskaiand 55 (2)
8. Svíþjóð 54 (10-11)
9. Holland 47 (7)
10. Kanada 46 (9)
11. Bretland 45 (3)
12. Belgía 44 (14)
13. ísland 43 (13)
14. Finnland 40 (6)
15. Frakkland 30 (15)
16. Ítaiía 28 (16)
ísland situr enn í 13. sæti þriðja árið í röð.
Við höfum þó heldur bætt við okkur stigum og
höfum fjarlægst langlegusjúktingana Frakk-
land og ítaliu. Japanir, Norðmenn og Sviss-
lendingar sýna aö venju yfirburði. Athyglisvert
er klifur Austurríkis og hrap Vestur-Þýska-
lands, Bretlands og Finnlands.
13