Frjáls verslun - 01.03.1985, Blaðsíða 52
meira. Þaö er Ijóst aö fjölgunin
getur ekki haldiö endalaust
áfram og því hljóta einhverjir
staöir aö hætta ef heldur áfram
eins og veriö hefur,“ sagöi Erna.
„Það hefuroröiö mikil breyting
undanfarin ár, fólk er meira úti á
vinnumarkaðinum en áöur var og
þaö hefur sitt aö segja, þvi þá
notfærir fólk sér veitingaþjónustu
i auknum mæli,“ sagöi Erna.
Ekki mikið um eigendaskipti
á veitingastöðum
Erna var spurö aö þvi hvort
mikiö væri um aö veitingastaðir
skiptu um eigendur og svaraði
hún þvi til aö alltaf væri eitthvaö
um slikt og benti þaö auðvitað til
þess aö staöirnir gengju ekki
sem skyldi og ættu i einhverjum
erfiöleikum i þessari höröu sam-
keppni sem rikti á markaðinum.
Blaðið leitaöi til Sverris Krist-
inssonar fasteignasala á þvi
hvort mikið væri um þaö aö veit-
ingastaöir skiptu um eigendur.
„Þaö er eitthvaö um þaö,“ sagöi
Sverrir, „en það er ekki mikið. Ég
geri hins vegar ráö fyrir þvi aö
svona staöir fari aö einhverju
leyti beint á milli manna, en komi
ekki út á fasteignamarkaðinn.
Það er ekki hægt aö tala um
markaö á svona stööum. Við vit-
um um sölum á minni veitinga-
stööum, en þaö er ekki óeðlilega
mikiö um þaö“ sagöi Sverrir.
Einn aöili sem nýlega hefur
hafiö veitingarekstur i Reykjavík
sagöi í samtali viö blaðið aö hon-
um virtist stööug aukning vera á
feröinni í þessari atvinnugrein og
mikil þörf fyrir veitingastaöi, sér-
staklega krár. Þarna sé verið aö
fullnægja þörf sem sé fyrir hendi.
Hann taldi þaö hafa mikil áhrif á
þaö hvort einhver staöur nyti vin-
sælda, væri þaö umhverfi sem
fólki væri boðið upp á innandyra.
Ef staðurinn væri ekki fallega
innréttaður, þá kæmi fólk ekki
þangað, viöskiptavinirnir sæktust
eftireinhverri sérstakri „stemmn-
ingu“.
Eigendurnir á staðnum
Varöandi samkeppnina á
þessum markaöi, nefndi einn aö-
ili þaö i samtali viö blaöiö aö meö
auknum fjölda veitingahúsa, yrði
verðsamkeppnin hörö og menn
kæmust þar meö ekki upp meö
aö verðleggja veitingar og þjón-
ustu óhóflega. „Menn geta ekki
látiö þessi fyrirtæki ganga nema
meö þvi aö halda kostnaði i lág-
marki, hafa góöa hráefnisnýtingu
og rýrnun í lágmarki. Þetta þýöir
þaö að eigendur þurfa aö vera
sjálfir á staönum, enda hefur
þróunin veriö i þá átt undanfarið,"
sagöi hann. „Ef litið er á þá staöi
sem ganga vel, kemur i Ijós aö á
nær öllum eöa öllum þeim stöð-
um eru eigendurnir á staðnum og
fylgjast meö og hafa hönd á
rekstrinum," sagöi þessi maöur.
50
Ef þú ert vandlátur á mat
og vilt fá góða þjónustu
í huggulegu umhverfi
þá er Alex staðurinn fyrir þig.
Höfum opið frá kl. 10 — 23.30 alla daga
Alex Laugavegi 126
Borðapantanir í síma 24631