Frjáls verslun - 01.10.1986, Side 7
itstjórnargrein
Frjáls
verslun
Stofnað 1939
Sérrit um viðskipta-,
efnahags- og atvinnumál
Endurbættur
listi
RITSTJÓRIOG
ÁBYRGÐARMAÐUR:
Kjartan Stefánsson
LJÓSMYNDIR:
Loftur Ásgeirsson
Grímur Bjarnason
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sjöfn Sigurgeirsdóttir
ÚTGEFANDI:
Frjálst framtak hf.
Tímaritið er gefið út í samvinnu
við samtök í verslun og viðskiptum
SKRIFSTOFA OG
AFGREIÐSLA:
Ármúli 18, sími 82300
Auglýsingasími 31661
RITSTJÓRN:
Ármúli 38, sími 685380
STJÓRNARFORMAÐUR:
Magnús Hreggviðsson
AÐALRITSTJÓRI:
Steinar J. Lúðvíksson
SKRIFSTOFUSTJÓRI:
Halldóra Viktorsdóttir
ÁSKRIFTARVERÐ:
995 kr. júlí—des.
(eintak í áskrift 199 kr.)
LAUSASÖLUVERÐ:
239 kr.
SETNING, PRENTUN OG
BÓKBAND:
Prentstofa G. Benediktssonar
LITGREININGAR:
Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni
og myndir.
Frjáls verslun birtir að þessu sinni listann yfir 100 stærstu fyr-
irtækin á íslandi 1985. Er það orðinn árlegur viðburður að birta
þennan lista en hann hefur breyst mikið að uppbyggingu í tímans
rás. Fyrst þegar listinn birtist náði hann yfir 3 blaðsíður og aðeins
voru birtar upplýsingar í tveim dálkum. Nú fyllir listinn allt blaðið
og upplýsingar um stærstu fyrirtækin eru í 22 dálkum og fjöldi
sérlista er birtur að auki. Allt í allt eru gefnar upplýsingar um
hvorki fleiri né færri en 1000 íslensk fyrirtæki og stofnanir en
fjöldi þeirra var rúmlega 400 á síðasta lista.
Mikil vinna hefur verið lögð í að safna þessum upplýsingum
saman og vinna úr þeim. Æ meira hefur verið leitað til fyrirtækj-
anna sjálfra umfram þá vitneskju sem lesa má úr opinberum
gögnum. Ánægjulegt er hve viðbrögð fyrirtækjanna hafa verið
jákvæð og hve mikinn áhuga þau sýna á að vera með á fyrirtækja-
lista Frjálsrar verslunar. Greinilegt er að þessi listi hefur hlotið
almenna viðurkenningu innan atvinnulífsins sem mikilvæg heim-
ild um stærð, rekstur og fjárhagslega stöðu íslenskra fyrirtækja.
Forráðamenn fyrirtækja sækja gjarnan í þennan lista til að fá
einhverja viðmiðun til að sjá hvar þeir sjálfir eru á vegi staddir.
Óhætt er að fullyrða að gildi Iistans með þeim breytingum sem nú
hafa verið gerðar hefur aldrei verið meira.
Margar mikilvægar breytingar hafa verið gerðar á listanum að
þessu sinni. Æ fleiri fyrirtæki eru fús að gefa upplýsingar um
rekstur og efnahag sem til skamms tíma lágu ekki á lausu svo sem
um hagnað, eigið fé, heildareignir og heildarskuldir. Er það tím-
anna tákn að aðgangur að upplýsingum er miklu auðveldari en
áður. Forsvarsmenn fyrirtækja er miklu opnari gagnvart upplýs-
ingamiðlun enda er umræða um viðskiptalífið á margan hátt miklu
jákvæðari og málefnalegri en áður var. Til dæmis má nefna að
skilningur fólks á nauðsyn hagnaðar er greinilega vaxandi. Þá
hefur breytt starfsumhverfi, meira frjálsræði og aukin samkeppni
gert það að verkum að hagur fyrirtækja byggist meira á góðri
stjórnun og fjárhagslegri uppbyggingu en tengsl inn í stjórnkerf-
ið beint eða óbeint hafa miklu minna að segja en áður.
Auk aðallistans þar sem stærstu fyrirtækjum landsins er raðað
eftir veltu hefur Frjáls verslun birt sérlista þar sem fyrirtækjum í
ákveðnum atvinnugreinum er raðað eftir stærð. Þessir listar eru
miklu fullkomnari nú auk þess sem tvær tegundir sérlista hafa
bæst í hópinn. í fyrsta lagi eru listar þar sem fyrirtækjum er raðað
eftir ýmsum rekstrarþáttum og í öðru lagi eru listar þar sem
stærstu fyrirtækin í hverju kjördæmi koma fram.
Þótt gildi fyrirtækjalista Frjálsrar verslunar hafi aldrei verið
meira en nú má að sjálfsögðu alltaf gera betur. Nú þegar er í gangi
umræða um hvernig bæta megi listann á næsta ári. Ýmsar hug-
myndir hafa komið fram og eru allar ábendingar frá lesendum
Frjálsrar verslunar vel þegnar.
7