Frjáls verslun - 01.02.1989, Side 10
FRÉTTIR
OLÍSDEILAN: HVAÐ VELDUR REIÐI LANDSBANKANS?
Menn hafa velt fyrir sér ástæðum þess að Lands- bankinn skuli ganga svo hart fram gegn OLÍS eins og raun ber vitni. Talið er að einkum megi rekja ástæður þess til persónu- legra samskiptaörðug- leika við Óla Kr. Sigurðs- son og trúnaðarbrests milli bankans og hans. OLIS hefur um langt skeið verið eitt erfiðasta vandræðamálið í Lands- bankanum. Bankinn hef- ur haft miklar áhyggjur af fyrirtækinu og viljað fylgjast grannt með gangi mála þar. Landsbankinn hefur lagt í mikla vinnu til að átta sig á stöðu OL- IS. Þannig var settur á laggirnar starfshópur í bankanum nú í vetur und- ir formennsku Brynjólfs Helgasonar, aðstoðar- bankastjóra. Auk hans voru í hópnum Helgi Bachmann, Jón Snorri Jónsson og Jóhannes Jó- hannessen. Niðurstaða hópsins var sú að fyrirsjá- anlegur lausafjárskortur OLIS hlypi á hundruðum milljóna króna og ástand- ið væri algerlega óviðun- andi fyrir bankann. Óli Kr. Sigurðsson rit- aði bankastjórum Lands- bankans bréf þann 2. september og lagði fram hugmyndir sínar um fjár- hagslega endurskipulag- ningu OLÍS. Þær fólust m.a. í sölu eigna. Selja átti Vöru- inarkað OLIS í Hvera- gerði, skrifstofuhúsnæði á Akureyri, skrifstofu- húsnæði í Hafnarstræti 5, hlutabréf í Hraðfrysti- húsi Eskifjarðar hf., hlutabréf í Granda hf. og hlutabréf í Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunni hf. á Akranesi. Þá var rætt um eigin hlutabréf OLIS í félaginu, sem námu 28% af heildar- hlutafé félagsins. En ólöglegt er að félag eigi meira en 10% í sjálfu sér. Þá lýsti Óli Kr. sig reiðu- búinn að kaupa sjáifur viðbótarhlutafé að fjár- hæð 100 milljónir króna í félaginu. Þær kröfur voru gerðar til Landsbankans að hann lengdi lánin, lækkaði vexti og gæfi 6 mánaða aðlögunartíma þar til greiða þyrfti af lánum. Það óvænta gerðist. Landsbankinn gekk að þessu umyrðalaust, sagð- ist tilbúinn að standa við sitt og óskaði eftir að Óli Kr. hæfist þegar handa um að frainkvæma tillög- ur sínar. En þá sá Óli Kr. Sigurðsson allt í einu öll tormerki á að standa við þá tillögu sem hann hafði lagt fram skömmu áður. Þá var bankastjórum Landsbankans nóg boðið. Þeir mátu það svo að þessum manni væri ekki treystandi. Þarna varð endanlegur trúnaðar- brestur. Eftir þetta hefur Landsbankinn haldið uppi harðri stefnu gagn- vart OLIS sem gengur út á að fá botn í málið og tryggja hagsmuni bank- ans til frambúðar. I þeirri framtíðarmynd Landsbankans er Óli Kr. Sigurðsson ekki.
FRAMTÍÐ OLÍS: KAUPA ESSO OG SHELL?
Forstjóri OLÍS hefur skýrt frá því í fjölmiðlum að erlend olíufélög, Texa- co og Mobil, séu tilbúin að kaupa á bilinu 14-28% í OLÍS. Þessir aðilar munu hafa lýst sig reiðubúna að skoða möguleika á hluta- fjárkaupum - en með skil- yrðum. Báðir útiloka hinn frá eignaraðild og viðskiptum, báðir útiloka BP frá eignaraðild og við- skiptum og báðir gera það að skilyrði að þeir fái stóran langtímavið- skiptasamning fyrir vik- ið. Þannig að skilyrði og fyrirvarar eru ýmsir. Varla þarf að búast við því að þessi erlendu olíu- félög kaupi hlut í OLÍS. Margir spá því að í kjöl- far þeirra átaka sem nú hafa orðið opinberlega milli Landsbankans og OLÍS, verði félagið selt hinum olíufélögunum tveimur sem munu þá skipta rekstri OLÍS á milli sín.
Óli Kr.
FRAMLEIÐUM:
Auglýsingaskilti úrplasti.
Plast i mörgum litum og þykktum.
Plast undir skrifborösstóla.
Sérsmíðum alls konar plasthluti.
Sjáum um viðgerðir og viðhald
á Ijósaskiltum.
Plastgler í báta og bila.
10