Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 50
TOLVUR
C s \ SKPLUS \F'HQNE . ADR
- Index
.■ Summary ===
Search
Attached Note
Edit Entry
Insert Entry
Delete Entry
Communications
Glossary
Pr int
Options
New Phonebook
F1 Help F3 New Book
FE F4 Print
-Move Shift-Esc-Exit All
F5 2oom
F6 Switch
Esc-Exit
F7
F8 Hangup
F9 Note
FIO Menu
í Sidekick Plus frá Borland er allt sem þarf til að sækja rafeindapóst reglu-
lega á sjálfvirkan hátt að því tilskildu að mótaldið sé fyrir hendi og áskrift að
gagnaneti með „pósthólfi“. Hér er síða úr „símaskránni". Hægt er að láta
kerfið hafa samband við viðkomandi númer með því að velja „Communi-
cations“ , styðja á „Return“, velja „Dial“ og styðja aftur á Return. Með því að
velja „Search“ er hægt að láta tölvuna leita uppi númer, nafn eða heimilis-
fang í skránni sé t.d. eitt þeirra vitað.
ftSCXI Table
1ersion 1.OOA
- ----- ci n
Control Characters
Edit Paste Buffer
Paste Options
Save Setup
Go to
14 OE 1 1 S O F
16 10 18 12 1 17 11 Á 19 ,
13
20 21
22 16 23 17 |
25 26 19 1A 27 1B |
28 1C 29 1D I
30 1E 31 1F
F1 Help F3
F2 F4
-Move Shift-Esc-Exit All
F5 Zoom
F6 Switch
Esc-Exit
F7
F8
F9 Edit
FIO Menu
Sá sem nennir að leggja á sig smá pælingar getur tekið ASCI-töfluna út úr
aðalkerfinu þannig að mun minna fari fyrir þeirri sérútgáfu af SKP. Þetta
þýddi m.a. að hann gæti nýtt nýju tæknina í sambandi við ASCI-töfluna án
þess að þurfa að dragast með allt kerfið.
til þess að gefa sér tíma til þess í
upphafi.
ASCI-taflan hefur einnig verið end-
urbætt að því leyti sem snertir vinnu
með innihaldið. Nú er hægt að sækja
stafi í töfluna og flytja t.d. inn í rit-
vinnsluskjal án þess að þurfa að muna
töflunúmer stafsins. Það er einnig
mikið hagræði að því að eins konar
safnlínu hefur verið komið fyrir í
ASCI-töflunni. Til að skýra þetta nán-
ar getum við ímyndað okkur vinnu í
skjali þar sem koma fyrir raðir stafa
sem ekki eru á hnappaborðinu. Þá
getum við sótt þá í töfluna og flutt
fyrst í safnlínuna, hvern á fætur öðr-
um og flutt síðan alla röðina í einu lagi
yfir í skjalið. í þessu getur falist mikið
hagræði.
„Outlook" nefnist nýr hluti í SKP
sem ekki var í eldra kerfinu. Með
þessu kerfí er hægt að skruna í gegn-
um skjöl, afmarka eða undirstrika orð
eða línur og raða upp, merkja, núm-
era, steypa saman og geyma. Hægt
er að raða tilvísunum upp í aðal-,
milli-, og undirfyrirsögn og vinna síð-
an með þessi gögn á ýmsan hátt.
Þetta kerfi er með íslensku stafina og
má nota til ritvinnslu í stað Notepad.
„File Manager" er einnig nýtt
kerfi. Þetta er skrástjóri sem fram-
kvæmir DOS-skipanir á einfaldan og
hraðvirkan hátt. Hægt er að afrita
skrár og skjöl, eyða, færa til, um-
skíra, prenta og skoða hvaða skrá
sem er í hvaða skjalaskrá sem er.
Hægt er að lista skrár samkvæmt for-
skrift, hægt að Ieita í skrám og búa til
undirefnisskrár. í þessu kerfi er einn-
ig auðvelt að forsmða 360, 720, 1220
og 1440 kb diska eftir því hvaða drif er
í tölvunni.
Klippið (Clipboard) er tæki sem
gerir kleift að steypa saman hlutum úr
ólíkum eða aðskildum kerfum, innan
eða utan við Sidekick Plus. Það er
t.d. hægt að nota þetta tæki til að
flytja hluta af töflu t.d. sem gerð er
með Multiplan inn í ritvinnsluskjal
sem gert er með Word eða WordPer-
fect. Eigi að breyta innihaldinu í SKP,
áður en það er flutt áfram yfir í næsta
kerfi, verður að gera það í Notepad
og því mega ekki vera íslenskir stafir í
textanum. Tölustafir skapa ekkert
vandamál.
En eins og ég sagði í upphafi þá er
talsverður munur á SKP og SK. Ein-
hver kynni að velta því fyrir sér
hvernig í skrattanum þeim hjá Bor-
land hafi tekist að troða öllu þessu inn
í kerfi sem látið er vaka í minni tölv-
unnar. Svarið við því er að það hefur
þeim ekki tekist. SKP tekur hátt á
annað megabæti á harðdisknum. Ein-
ungis um 70 kb kjarni er í minninu
eftir að kerfið hefur verið ræst og
vakir. Þegar kallað er á það sækir það
meginhlutann á diskinn og öfugt
þegar farið er úr því. Þessir flutningar
taka tíma. Kerfið er því talsvert þungt
í vöfum. Það er einnig ókostur að sé
640 kb vinnsluminni í tölvunni er ekki
hægt að hafa viðamikið ritvinnslukerfi
svo sem WordPerfect í gangi samtím-
is Sidekick Plus. Að vísu er hægt að
auka minni tölvunnar, annars vegar
með ístungukorti sem gerir kleift að
stækka minnið umfram 640 kb og hins
vegar með því að mynda sýndardisk
(RAM disk).
Önnur leið er að breyta SKP, skera
af því þá hluta sem sjaldnast eru not-
aðir eða þá sem tímafrekast er að
flytja á milli disks og minnis. Þannig
má minnka umfang þess og gera það
liprara. Hinu er ekki að leyna að það
50