Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 58

Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 58
VERSLUN aður í verksmiðju Sól hf. en Davíð Sch. Thorsteinsson og fleiri aðilar frá fyrirtækinu væru að kanna þau mál erlendis. „Við munum hins vegar verða með einhvem evrópskan gæðabjór og stefnum á að vera með hann í sölu fljótlega með vorinu“. TRÖLLASÖGUR UM UMBOÐSLAUN Miklar sögur hafa gengið að undan- fömu um hugsanleg umboðslaun þeirra sem hér hafa verið nefndir og stjamfræðilegar upphæðir nefndar í því sambandi. Að sögn fróðra manna eru þær sögur þó orðum auknar en umboðsaðilamir sjálfir vildu ekki nefna neinar tölur í því sambandi. Gústaf Níelsson skrifstofustjóri ÁTVR sagði í samtali að umboðslaun væru einkamál framleiðenda pg þeirra manna hér á landi. „Áfengis- verslunin hefur ekkert með þau mál að gera og í raun má segja að við höfum engin afskipti af þeim aðilum sem taka umboðslaun hér. ÁTVR sér um allar pantanir erlendis frá, inn- flutninginn sjálfan svo og auðvitað dreifingu og sölu innanlands." Sennilega eru umboðslaun bjórinn- flytjendanna um 5-10% af fobverði bjórsins og í sumum tilfellum má búast við enn lægri tölum. Kemur það m.a. til af því að erlendu framleiðend- urnir buðu mjög lágt til að komast inn á íslenska markaðinn og eins vegna þess að umboðsaðilar mega ekki aug- lýsa vöruna né hafa uppi neina veru- lega kynningarstarfsemi. Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR reyndist fobverð Budweiser bjórs vera 8.84 kr. og miðað við sölu á 1 milljón h'tra og 10% umboðslaun verður hlutur innflytjandans tæplega 2.5 milljónir króna. 5% umboðslaun helminga þá tölu auðvitað. Að sömu forsendum gefnum fær umboðsaðili Kaiser Premium bjórsins 3.3 milljónir í sinn hlut (1.650.000 miðað við 5%) og umboð Tuborg bjórs fengi 3.5 milljónir í sjóðinn en helmingi lægri tölu ef miðað er við 5% umboðslaun. Vissulega eru þetta allháar upp- hæðir og Magnús Jónasson hjá 3-K Trading neitaði því ekki að umboðs- laun hans væru „allnokkur búbót“. Eins og áður sagði kemur ekki í ljós fyrr en að fenginni reynslu hver raun- veruleg sala á bjór verður í þessu landi. Samningurinn um milljón h'tra frá hveijum erlendu framleiðendanna er til áramóta og vildi Gústaf Níelsson hjá ÁTVR ekki segja hvort samið yrði áfram á sömu einingaverðum eða efnt til nýs útboðs. HLUTURINNLENDA BJÓRSINS Enn síður er hægt að spá í hlutföll sölu á milli erlends bjórs og hins ís- lenska. Áður en lengra er haldið í þeim efnum er rétt að taka fram að í raun má segja að um ijóra flokka bjórs verði að ræða hér á landi: Bruggaðan íslenskan bjór, innfluttan erlendan bjór á dósum, innfluttan erlendan bjór átappaðan hér á landi og loks bjór bruggaðan hérlendis eftir erlendum uppskriftum. Verð á þessum flokkum ræðst af ákvörðunum ÁTVR og ekki síður innkaupsverði fyrirtækisins á hverri tegund. Salan mun aftur á móti ráðast af verðinu út úr búð og svo auðvitað mati neytenda á gæðum teg- undanna. Sanitas er önnur tveggja brugg- verksmiðja bjórs á íslandi og með margfalt meiri framleiðslugetu en samkeppnisaðilinn, Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Sanitas hefur ný- verið byggt við verksmiðju sína á Ak- ureyri og getur framleitt 6 milljónir h'tra af sterku öli á ári. Ölgerð Egils Skallgrímssonar er að flytja alla sína Kæliverk sf. Frostagötu 3B, Akureyri, Sími 96-24036 Sérhæft fyrirtæki á sviöi kæli- og frystitækni. Viðgerðir - Varahiutir - Nýsmíði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.