Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 48
TOLVUR
SIDEKICK PLUS
Sidekick er eitt þeirra forrita-
kerfa frá Borland sem orðið hef-
ur mjög vinsælt og er sennilega,
ásamt Turbo Pascal, þekktast
þeirra kerfa sem fyrirtækið sel-
ur. Margir sem nota PC tölvur
þekkja þetta hjálpartæki sem er
eins konar skuggakerfi sem
vakir í miðverki tölvunnar og
kalla má á skjáinn hvenær sem
er og hvar sem er. Sidekick er
eins konar tækjasamstæða;
verkfæri sem nota má til að
framkvæma ýmislegt á einfald-
an hátt. I kerfinu er m.a. dag-
bók, símaskrá og sjálfvirk
hringing, minniskompa, reikni-
vél og ASCI-tafla. Þegar Side-
kick kom á markaðinn fyrir
nokkrum árum síðan átti það sér
enga hliðstæðu á markaðinum,
a.m.k. ekki á sambærilegu verði
en það var mjög hagstætt.
Skuggakerfið gerði það að verkum
að ekki þurfti að ræsa Sidekick sér-
staklega í hvert sinn heldur aðeins
einu sinni eftir að kveikt hafði verið á
tölvunni. Kerfið mátti síðan kalla upp
og fá á skjáinn með því einu að styðja
samtímis á Alt-, og Ctrl- hnappinn án
þess að fara úr því verkefni sem unnið
var í. Stór kostur var að Sidekick
þurfti lítið rými í vinnsluminni. Ókost-
ur var að íslenskir stafir hafa ekki
verið fáanlegir í kerfinu.
Nú hafa komið á markaðinn fleiri
skuggakerfi til svipaðra nota og Side-
kick og á svipuðu verði, sum þeirra
með fleiri hjálpartækjum eins og t.d.
Ability sem selt er með Amstrad og
er m.a. með teiknikerfi fyrir línu- og
stólparit sem ekki er í Sidekick.
Það er ekki óeðlilegt þótt margir
telji nýja kerfið frá Borland, Sidekick
Plus, vera uppfærslu á upprunalega
Sidekick. Aður en lengra er haldið er
ástæða til að upplýsa að svo er ekki
og getur sú vitneskja áreiðanlega
Umsjón
með
tölvuefni:
Leó M.
Jónsson
sparað mörgum tölvunotandanum
talsverða fyrirhöfn og fé og forðað frá
leiðindum. Þetta þýðir ekki að Side-
kick Plus standi ekki ágætlega fyrir
sínu. Málið er einfaldlega það að við
erum að tala um tvö sjálfstæð kerfi, -
jafnvel tvö óskyld kerfi, svo dýpra sé í
árinni tekið enda mun Borland halda
áfram að selja og þjónusta eldra kerf-
ið.
Hafí Sidekick verið einfalt kerfi þá
er Sidekick Plus (SKP) mjög flókið en
um leið mjög mikilvirkt tæki í höndum
þeirra sem hafa not fyrir það. Það
tekur nokkrar klukkustundir að læra
það mikið að sæmilega hagvanur
tölvunotandi valdi SKP og vegna þess
hve lík kerfin eru á margan hátt spar-
ar það óneitanlega tíma sé notandinn
vanur eldra kerfmu. Nýja kerfið
krefst ennfremur mikils af vélbúnað-
inum. Nú þarf vinnsluminnið að vera
m.k. 384 kb og harður diskur er skil-
yrði. Sidekick Plus gengur á PC og
PS/2 tölvum.
Eins og eldra Sidekick birtist SKP
ofan á því sem fyrir er á skjánum
þegar stutt er samtímis á Alt og Ctrl.
Vallistinn inniheldur kunnugleg heiti
svo sem Notepad, Calculator, Phone
list, ASCI table og Calendar. Flestir
þessara þátta eru eins eða svipaðir að
sjá og í eldra kerfmu, það er fyrst og
fremst getan sem hefur aukist. í
Minnisbók (Notepad) er nú hægt að
vinna samtímis í 9 aðskildum skjölum
og getur hvert þeirra verið allt að
8000 orð. Gallinn er hins vegar sá að
íslensku stafirnir virka ekki og því til
lítils gagns fyrir okkur og þannig nýt-
ast heldur ekki mjög auknir rit-
vinnslueiginleikar þessa þáttar. Hins
vegar fæ ég ekki betur séð en að
íslensku stafirnir virki alls staðar ann-
ars staðar og því kostur á ritvinnslu í
Outlook og þar er einnig prentstýr-
ing.
Reiknivélin hefur verið endurbætt
m.a. þannig að nú er hægt að velja um
fems konar hætti; viðskipta- eða vís-
indareikning, forritunar- eðaformúlu-
hátt. Tölurnar birtast eins og á strimli
í venjulegri borðreiknivél. Munurinn
á skjástrimlinum og þeim venjulega er
hins vegar sá að hægt er að leiðrétta
það sem stendur á þeim fyrmefnda.
Ef villa er á strimlinum er hægt að
færa bendilinn á hana, breyta og skipa
tölvunni jafnframt að leiðrétta útkom-
una. Þá er einnig glósu- eða fjölva-
kerfi sem gerir kleift að kalla fram
ákveðnar stærðir eða fasta (konst-
anta) með einum áslætti. Þá er nú
hægt að nota breytur og föll í for-
múluhætti. Það sem margur mun
kunna að meta er að nú er hægt að
vista mörg reikningsverkefni, tölur
og útkomur í textaskrá á diski sem
síðar má sækja og setja beint inn í
ritvinnsluskjöl eða inn í töflur, t.d.
þegar unnið er í Multiplan.
Dagbókin (Calendar) hefur verið
endurbætt þannig að hægt er að skrá
48