Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 20
FORSÍÐUGREIN
NOKKUR DÆMI
UM SAMEININGU
ur Brimborgar telja að sameining
fyrirtækisins við Volvo-umboðið
Velti leiði til meira en 100 millj.kr
sparnaðar á ári.
3. Forsvarsmenn Sveins Egilsson-
ar og Bílaborgar lýstu því yfir í viðtali
við DV í desember sl. að sameining
fyrirtækjanna leiddi til yfir 100
millj.kr. sparnaðar á ári.
4. Ólafur B. Thors lýsti því yfir á
blaðamannafundi að ætla mætti að
sameining Sjóvá og Almennra trygg-
inga leiddi til eins milljarðs króna
spamaðar til aldamóta saman borið
við þann kost að félögin hefðu verið
rekin aðgreind áfram. Það eru 11 ár til
aldamóta og því næmi spamaðurinn
tæpum 100 milljónum króna á ári til
aldamóta að meðaltali.
5. Forráðamenn Vátryggingafé-
lags íslands hafa ekki opinberað tölur
um spamað. En varla þarf að ætla að
hann verði minni en hjá Sjóvá - Al-
mennum tryggingum. Þar gæti því
verið um 100 millj.kr. að ræða á ári.
6. Jón Sigurðarson, forstjóri Ála-
foss, segir í viðtali við Frjálsa verslun
að kostnaðarsparnaður af sameiningu
Álafoss og Ullariðnaðar SÍS, saman
borið við að fyrirtækin væru rekin
hvort í sínu lagi, sé jafnvel töluvert á
annað hundrað milljónir króna á ári.
Kostnaðarspamaður Álafoss gæti
þannig numið um 150 milljónum á ári.
Ef litið er á þær sex sameiningar
sem vitnað er í hér að framan gæti
árlegur sparnaður numið um 700 mill-
jónum króna saman borið við þann
kost að ekkert hefði verið aðhafst og
umrædd fyrirtæki væru rekin aðskil-
in.
Það skal áréttað að hér er í flestum
tilvikum um áætlaðar fjárhæðir að
ræða. Menn hafa jafnvel varpað fram
hugmyndum um sparnað vegna til-
tekinna sameininga allt til næstu alda-
móta. Það er auðvitað erfitt að rök-
styðja útreikninga svo langt fram í
tímann, menn vita ekki við hvaða
rekstrarumhverfi fyrirtækin búa á
næstu árum. En miðað við sömu for-
sendur og menn gefa sér fyrir eitt ár
núna gæti kostnaðarspamaður af
fyrrnefndum sex sameiningum til
aldamóta, numið 7 til 8 milljörðum
króna, án tillits til skatta! En þessar
hugmyndir verður auðvitað að skoða
með varúð.
Hér á eftir verða nefnd dæmi um
íslensk fyrirtæki sem hafa verið sam-
einuð með ýmsum hætti. Stundum er
um hreinar sameiningar að ræða en
flest form samruna koma hér við
sögu. Fyrirtæki eru keypt í heilu lagi.
Rekstur fyrirtækis er keyptur án
þess að fyrirtækið allt sé keypt. Tvö
fýrirtæki taka sig saman og stofna
þriðja fyrirtækið um reksturinn og
þannig mætti lengi telja. ítrekað skal
að hér em aðeins nefnd nokkur dæmi
og því engan veginn um neina tæm-
andi upptalningu að ræða.
SJÁVARÚTVEGUR
Þekktasta sameining sjávarút-
vegsfyrirtækja á seinni árum er sam-
eining ísbjamarins og BÚR í eitt fyrir-
tæki Granda hf. Áður hafa sjávarút-
vegsfyrirtæki sameinast í Ólafsvík, á
Skagaströnd, á Siglufirði og Hrað-
frystihús Stöðvarfjarðar, sem nú er
rekið, varð til við samruna 5 fyrir-
tækja á staðnum. Krossvík á Akra-
nesi varð til þegar Akurnesingar sam-
einuðu krafta sína í togaraútgerðinni.
Samfrost í Vestmannaeyjum er sam-
starfsfyrirtæki frystihúsanna þar í
tölvurekstri og upplýsingaúrvinnslu
og Samtog er sameiginlegt fyrirtæki
þeirra um togaraútgerð.
Nýjasta dæmi er frá Ólafsfirði. Þar
hefur Hraðfrystihús Ólafsfjarðar
keypt Hraðfrystihús Magnúsar
Gamalíelssonar og mun ætlunin vera
að sameina rekstur þeirra tveggja.
IÐNAÐUR
Sameining gamla Álafoss og ullar-
iðnaðardeildar SÍS í eitt fyrirtæki
undir nafni Álafoss er ein af stóm
sameiningunum á seinni árum. Nýja
fyrirtækið tók til starfa 1. desember
1987. Nú ætla Álafoss og Hilda að
sameina rekstur sinn í Bandaríkjun-
um.
Eldra sameiningarmál er þegar
smjörlíkisfyrirtæki hófu samstarf og
sameinuðust síðan. Þar var um að
ræða fyrirtækin Ljóma, Ásgarð, Svan
og Smára. Afgreiðsla smjörlíkisgerð-
anna var til um tíma en eitt fyrirtæki
20