Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 24

Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 24
FORSIÐUGREIN SAMEINING TRYGGINGAFÉLAGANNA: UPPSTOKKUN í HEILLIATVINNUGREIN Um þessar mundir er að verða al- ger uppstokkun í rekstri vátrygging- arfélaga hér á landi með því að fjögur af stærstu tryggingarfélögum lands- ins sameinast í tvö álíka stór félög sem verða þau langstærstu á þessum vettvangi. Árum saman hefur því verið spáð að tryggingarfélögum hér á landi ætti eftir að fækka og þau ættu eftir að stækka með samruna. Þar til í byrjun þessa árs gerðist fátt umtalsvert í þesum efnum. Reyndar keypti Sjóvá Hagtryggingu og lauk sameiningu fé- laganna síðla árs 1988. Þá hefur Tryggingamiðstöðin hf. keypt meiri- hlutann í Reykvískri endurtryggingu án þess að komið hafi til sameiningar fyrirtækjanna. En í byrjun nóvember sl. birti DV forsíðufrétt um að sameining Sjóvá og Almennra trygginga stæði fyrir dyr- um þegar á árinu 1989. Þegar fréttin birtist höfðu forráða- menn fyrirtækjanna rætt um samein- ingu fyrirtækjanna og ljóst var að áhugi var fyrir hendi. En engin endan- leg ákvörðun hafði þó verið tekin og sjálf vinnan við að sameina fyrirtækin var ekki komin af stað. ALVARLEG TILRAUN Um þetta leyti var ákveðið að gerð skyldi alvarleg tilraun til að sameina Sjóvá og Almennar tryggingar. Menn ákváðu að leggja í þá vinnu sem þyrfti til að fá úr því skorið hvort af sameih- ingu gæti orðið. Ljóst var að tipp kynnu að koma atriði sem sameining- aráformin gætu strandað á. Forráðamenn félaganna mátu það svo að mun meiri vandi væri að yfir- stíga allar þær mannlegu og tækni- legu hindranir sem fylgt geta samein- ingu tveggja svo flókinna fyrirtækja en að gefa út einlæga viljayfirlýsingu um sameiningu. Þeir lögðu sig alla fram til þess að koma í veg fyrir að einhverjar óyfirstíganlegar hindranir yrðu á vegi manna þegar farið yrði að vinna að sameiningunni. Og þá hófst vinnan við sameiningu Sjóvá og Almennra trygginga. Margir starfsmenn beggja félaganna tóku þátt í sameiningarvinnunni en tveir frá hvoru félagi mynduðu aðalsam- ráðshópinn sem hélt í alla þræði. Frá Sjóvá sátu í þeirri nefnd Einar Sveins- son og Sigurjón Pétursson en frá Al- mennum tryggingum þeir Ólafur B.Thors og Benedikt Jóhannsson. Þeir höfðu náið samráð við stjórnar- formenn og stjómir félaganna, end- urskoðendur, lögfræðinga og aðra ráðgjafa. Þeir fjórir sem áttu sæti í aðalsamráðshópnum eru nú í forsvari fyrir hið sameinaða félag, Sjóvá-Al- mennar tryggingar hf. Einar Sveins- son og Ólafur B.Thors eru fram- kvæmdastjórar þess, Sigurjón Pét- ursson er aðstoðarframkvæmdastjóri og Benedikt Jóhannsson er deildar- stjóri tjónadeildar. MANNLEGA HLIÐIN Við störf sín að sameiningunni lögðu þeir mikla áherslu á mannlega þáttinn. Mikil vinna var lögð í að reyna að sætta sem flest sjónarmið þegar kom að skipun fólks í stöður. Engum var sagt upp, en ekki verður ráðið viðbótarfólk á meðan fjöldi starfsmanna er að færast í þá tölu sem þörf er fyrir. Byrjað var á að ákveða skipurit fyrir félagið og síðan voru teknar ákvarðanir um hverjir ættu að skipa helstu stöður fyrirtækisins. Hér er að sjálfsögðu um að ræða mjög við- kvæmar, þýðingarmiklar og vanda- samar ákvarðanir því jafnan var um 2 til 3 hæfa einstaklinga að ræða sem velja þurfti á milli. Svo virðist sem friður sé um skipan í helstu stöður, a.m.k. hafa fréttir ekki borist um upp- sagnir eða brotthlaup þeirra sem urðu ekki fyrir valinu. Mjög vandasamt verk þurfti að vinna við samræmingu á tölvukerfum fyrirtækjanna og við samræmingu á vátryggingaskilmálum og samræm- ingu á umboðsmannakerfi þeirra svo dæmi séu nefnd um erfiða þætti sem leysa þurfti til þess að sameiningin gæti orðið að veruleika. SKREFIÐ STIGIÐ En lausn fannst á öllum helstu við- fangsefnunum og strax í desember virtist vera ljóst að sameining Sjóvá og Almennra trygginga yrði að veru- leika. Viðeigandi ráðstafanir voru gerðar. Hluthafafundir samþykktu þessi áform og skrefið var stigið. Fram kom mikill styrkleikamunur á félögunum að því er eiginfjárstöðu varðar, vegna mikils styrkleika Sjó- vá. Því gripu Almennar tryggingar til þess ráðs að auka hjá sér hlutafé um 31 milljón króna til að rétta hlut sinn nokkuð. Með því fékkst sú niðurstaða að hluthafar Sjóvá eiga 75% af hinu sameinaða félagi á móti 25% hlut þeirra sem áttu Almennar tryggingar. Þegar allt var klappað og klárt var boðað til stofnfundar vátryggingafé- lagsins Sjóvá-Almennar tryggingar hf. föstudaginn 20 janúar sl. þar sem samruni félaganna var samþykktur. DREGUR TIL TÍÐINDA En daginn áður dró heldur betur til tíðinda. Þá kölluðu forsvarsmenn Samvinnutrygginga og Brunabótafé- lags íslands blaðamenn á sinn fund og tilkynntu sameiningu þessara tveggja félaga. Samruni Brunabótafélagsins og 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.