Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 33

Frjáls verslun - 01.02.1989, Blaðsíða 33
Málaferli vegna notkunar á nafninu LIF á Islandi vöktu talsverða athygli á sínum tíma. Útlendingar töldu hættu á að LÍF yrði ruglað saman við LIFE! mál síðla árs 1984. Þar var þess kraf- ist að stefndu, forsvarsmenn Frjáls framtaks hf., yrðu dæmdir til þyngstu refsingar sem á gæti reynt skv. 16. gr. laga nr. 19/1887. Sú lagagrein kveður á um viðurlög ef menn af mót- þróa láta farast fyrir að fullnægja dómi eða brjóta gegn dómsorði. Taldi stefnandi m.ö.o., að stefndi hefði haft að engu fyrrgreindan dóm Hæsta- réttar íslands og af ásettu ráði brotið gegn því dómboði réttarins er bann- aði honum að nota orðið „h'f“ sem nafn á tímaritinu „Líf“. Stefnandi taldi að þrátt fyrir nýtt nafn væri enn fyrir hendi sá rökstuðn- ingur í forsendum Hæstaréttardóms- ins að með almenningi verði vakin sú trú að um viðskiptasamband milli aðila væri að ræða. Stefndu tóku til vama og í héraðs- dómi voru þeir sýknaðir af öllum kröf- um stefnanda. Ekki fékkst þó hrein niðurstaða varðandi það að bæta orð- inu „nýtt“ fyrir framan orðið „líf“, heldur var aðallega tekist á um réttar- farsleg atriði. Málinu var ekki áfrýjað til Hæstaréttar. Nokkur umræða og blaðaskrif spruttu í kjölfar þessara réttarhalda og töldu margir það óhæfu að erlent fyrirtæki gæti takmarkað notkun ís- lendinga á jafn mikið notuðu orði og „líf“. Var ekki laust við að það hlakk- aði í mörgum þegar forráðamenn hins íslenska tímarits gáfu blaðinu nýtt heiti og nefndu það „Nýtt Líf“. Ekki er það þó sjálfgefíð að nafnabreyting- ar eins og þessi fái að standa athuga- semdalaust. Það þarf ekki annað en að nefna nafngiftir eins og „Nýtt Colgate" eða „Nýr Mercedes" til þess að það renni á menn tvær grím- ur. í Bandaríkjunum er almennt talin hætta á ruglingi ef aðili tekur nafn annars aðila algerlega upp með ein- hverjum viðbótum. Þannig var talið að South American Express yrði ruglað saman við American Express greiðslukortafyr- irtækið jafnvel þó starfsvettvangur væri ólíkur. (207 uspq 843 C.D. CA 1980). Einnig má benda á bandarískan dóm frá árinu 1975 þar sem Coca Cola Bottling Company fór í mál við Sea- grams vínfyrirtækið vegna ginteg- undar að nafni „Bengal“. Coca Cola fyrirtækið var með á markaðnum gosdrykk að nafni „Bengal Lancer“. Niðurstaðan var á sama veg, þ.e. vín- framleiðandinn tapaði málinu vegna þess að hætta var talin á að nöfnunum yrði ruglað saman. (526 F 2nd 556 CCPA 1975). FÓLKSVAGN Af innlendum dómum, tiltölulega óumdeildum, má nefna tvo undirrétt- ardóma frá árinu 1967. Stefnandi í báðum málunum var Volkswag- enwerk Aktiengesellschaft, þýskt fyrirtæki er skráði vörumerkið „Volkswagen“ hér á landi árið 1956. I fyrra málinu skráði íslensk kona árið 1966 firmað „Volkswagen-bif- reiðaleigan“ í fírmaskrá Reykjavíkur. Stefnandi hélt því fram að umrædd skráning konunnar væri brot gegn 10.gr. firmalaganna. Fallist var á röksemdir stefnanda í máli þessu og var skráningin því talin brot á rétti stefnanda. Var stefndu því talið skylt að afmá firmanafn sitt úr firmaskrá. í síðara málinu voru málavextir þeir að firmanafnið „Fólksvagn sf.“ var skráð í Kópavogi árið 1966. Nið- urstaða undirréttar, sem síðar var staðfest af Hæstarétti, var á sama veg og í fyrra málinu. Þýðingar á erlendum firmanöfnum og stælingar á þeim virðast því njóta verndar hér skv. 8.gr. Parísarsam- þykktarinnar. Er það í samræmi við skilning fræðimanna á nefndu laga- ákvæði. í nokkrum dómum hefur reynt á það hvaða áhrif það hefur á niðurstöð- 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.