Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1989, Síða 25

Frjáls verslun - 01.02.1989, Síða 25
Samvinnutrygginga er þó verulega frábrugðinn sameiningu Sjóvá og Al- mennra trygginga, sem er fullkomin sameining. Brunabótafélagið og Sam- vinnutryggingar stofna hins vegar þriðja félagið, Vátryggingafélag ís- lands hf. og eiga bæði jafn mikið hluta- fé í hinu nýja félagi sem mun taka við öllum rekstri beggja félaganna. SKYNDIÁKVÖRÐUN? Hin óvænta yfirlýsing forráða- manna Samvinnutrygginga og Bruna- bótafélags íslands þótti bera vissan vott um ótta við fyrirhugaða samein- ingu Sjóvá og Almennra trygginga. Þegar yfirlýsing þeirra var gefin út var allur undirbúningur óunninn. Ein- ungis lá fyrir að Axel Gíslason yrði forstjóri hins nýja félags og Ingi R. Helgason starfandi stjómarformaður þess. Ekki höfðu verið teknar aðrar ákvarðanir um hvaða starfsmenn héldu störfum og hverjir ekki en ákveðið var að segja öllum upp. Á næstu dögum komu jafnvel fram efa- Axel Gíslason. semdir um lagalegar forsendur máls- ins en nú virðist sem lagaheimildir séu fyrir hendi og forráðamenn félag- anna hafa nú tekið til óspilltra málanna við að vinna heimavinnuna — en eftir á. ÓLÍK VINNUBRÖGÐ Ljóst er að vinnubrögðin við sam- runa þessara fyrirtækja í tvö stærstu tryggingarfélög landsins eru gjörólík. Mun betur hefur verið vandað til verka hjá Sjóvá og Almennum trygg- ingum og munu þeir eflaust njóta þess í upphafi þeirrar hörðu baráttu sem framundan er milli þessara tveggja risa á tryggingamarkaðnum. Það mun þó ekki breyta því að óhætt er að spá því að sameining Brunabótafélagsins og Samvinnutrygginga muni leiða af sér tilætlaða hagræðingu og sparnað. Það mun engu að síður verða tíma- frekara og viðkvæmara vegna þess að ekki tókst að undirbúa verkið vandlega að tjaldabaki eins og hjá Sjó- vá og Almennum tryggingum. Ingi R. Helgason. TIL HAMINGJU Frjáls verslun fagnar þessum tveimur sameiningum, sem eru stór- ar á íslenskan mælikvarða. Þær hafa vakið verðskuldaða athygli og munu leiða af sér mikinn spamað og veru- lega hagræðingu. Neytendur munu væntanlega njóta góðs af í lægri ið- gjöldum. Og annars staðar í atvinnu- lífínu verða þær hafðar að leiðarljósi og verða mönnum hvatning til að skoða stöðu fyrirtækja sinna og fram- tíðarmöguleika af meiri víðsýni. MINOLTA LJÓSRITUNARVÉLAR NETTAR, LITLAR OGLÉTTAR Lítil, einföld og því traust. Fyrirtak á skrifborðiö! Sú ódýrasta á markaðnum. D-100 Japönsk snilldarhönnun, þýsk ending og nákvæmni. Lágt verð og rekstarkostnaður. MINOLTA EP 50 5 lita prentun ef vill, innsetning einstakra arka, hágæðaprentun og hagkvæmni í reksth. Ekjaran ARMULA 22. SlMI (91)8 30 22. 10« REYKJAVlK

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.