Frjáls verslun - 01.02.1989, Qupperneq 38
STJÓRNUN
læknarnir jafnframt rekstrarlegir
framkvæmdastjórar.
Það má segja að íslensk sjúkrahús
séu komin lengra á sviði nútíma
stjómunarhátta en flest sjúkrahús á
hinum Norðurlöndunum. En þessu
nýja skipulagi fylgja auðvitað bæði
kostir og gallar. Það getur til dæmis
verið erfitt að blanda saman faglegum
og íjárhagslegum rekstri en hjá okkur
hefur þetta gefið góða raun og eru
ársreikningar allra síðustu ára góður
vitnisburður um það,“ sagði Davíð Á.
Gunnarsson ennfremur.
En hvað segja sérfræðingar í ís-
lenskri tungu um þetta misræmi í
notkun starfsheita sem að framan er
lýst? Hvenær er til dæmis við hæfí að
nota orðið framkvæmdastjóri og hve-
nær á orðið forstjóri við? Nýjasta út-
gáfa Orðabókar Menningarsjóðs
svarar þessari spurningu ekki og
samkvæmt þeirri bók er orðið fram-
kvæmdastjóri skýrt með orðinu for-
stjóri og jafnframt sagt að fram-
kvæmdastjóri sé sá sem stjómar
framkvæmdum fyrirtækis. Það er
hins vegar ekki minnst á orðið fram-
kvæmdastjóri þegar hugtakið for-
stjóri er skýrt. Orðið forstjóri er skil-
greint sem; stjórnandi, yfírmaður
fyrirtækis eða stofnunar.
Samkvæmt þessum skýringum eru
FYRIRTÆKIÐ
■;;
HYSTEIl
n m
SÁ RÉm FYRIR MG
ÍSbENZKA QMBDÐSSALrAN -HF.
KLAPPARSTÍG 29, S. (91) - 2 64 88
orðin forstjóri og framkvæmdastjóri
samheiti en þó gætir greinilegs stigs-
munar á orðunum, samanber framan-
greindar skýringar orðabókarinnar.
Og ekki liggur ljóst fyrir hvemig ber
að túlka þann stigsmun.
STUNDUM HLÆGILEGT
„Lengi vel voru þessi tvö starfs-
heiti, framkvæmdastjóri og forstjóri,
notuð jöfnum höndum. Það fór eftir
smekk og venju hverju sinni hvort
orðið var notað. Það þótti hins vegar
frekar hlægilegt ef stjómendur í
minni fyrirtækjum kölluðu sig for-
stjóra,“ sagði Baldur Jónsson hjá ís-
lenskri málstöð er Frjáls verslun leit-
aði eftir hans sérfræðilega áliti á notk-
un þessara starfsheita.
„Eg veit ekki alveg hvernig litið er
á þessi orð í dag en þó virðist fólk taka
forstjóratitilinn hátíðlegar en fram-
kvæmdastjóratitilinn og orðið for-
stjóri er frekar notað þegar fyrirtækin
eru stór og umsvifamikil. Hitt er þó
ljóst að yfirmanni í hvaða fyrirtæki
sem er, er leyfilegt að kalla sig for-
stjóra, það er ekkert sem bannar það.
Eg hef lítið velt þessum starfsheit-
um fyrir mér en hef að undanförnu átt
viðræður við menn úr viðskiptalífinu
sem hafa verið að hugsa um notkun
þessara orða. Þær samræður hafa
komið mér til að halda að nú sé al-
mennt gerður greinarmunur á orðinu
forstjóri og framkvæmdastjóri. For-
stj ór atitillinn þykir æðri. Fyrir
nokkru var ég beðinn að þýða ensku
starfsheitin, senior president, presi-
dent, senior vise president, vise
president, senior direktor, direktor,
senior manager og manager. Eftir
nokkra umhugsun lagði ég til að orðin
yrðu þýdd á eftirfarandi hátt:
1. senior president - aðalfor-
stjóri
2. president - forstjóri
3. senior vice president - að-
alframkvæmdastjóri
4. vice president - fram-
kvæmdastjóri
5. senior direktor - aðalfor-
stöðumaður
6. director - forstöðumaður
7. senior manager - aðal-
deildarstjóri
8. manager - deildarstjóri
Samkvæmt þessu er forstjóratitill-
inn æðri framkvæmdastjóratitlinum
og munur á verkaskiptingu er líldega
sá að forstjórinn er sjaldnast að atast í
daglegum framkvæmdum, sem er þá
hlutverk framkvæmdastjóra," sagði
Baldur Jónsson.
Frjáls verslun leitaði til Stjórnunar-
félags íslands varðandi umræddan
rugling á notkun starfsheita en þar
var fátt um svör. Þar þótti þó líklegt
að orðið forstjóri væri frekar notað í
smærri fyrirtækjum þegar um ein-
hvers konar eignaraðild viðkomandi
væri að ræða. Einnig var minnst á að
forstjórinn væri yfirleitt sjálfstæðari
gagnvart stjórn fyrirtækis en fram-
kvæmdastjórinn.
FASTAR SKORÐUR
Vilhjálmur Egilsson framkvæmda-
stjóri Verzlunarráðs íslands stóð ekki
á gati er hann var spurður um hvenær
eðlilegt væri að nota orðið forstjóri og
hvenær orðið framkvæmdastjóri.
Hann sagði: „Mér sýnist notkun
þessara starfsheita vera í nokkuð
föstum skorðum. Orðið forstjóri er
yfirleitt ekki notað í minni fyrirtækj-
um nema í þeim tilfellum þar sem um
eignaraðild yfirmanns er að ræða. Þá
hafa forstjórarnir gjarnan menn sér
við hlið sem kallast framkvæmda-
stjórar. Svona lítur þetta út í megin-
atriðum þótt auðvitað séu til undan-
tekningar á þessu. Hjá ríkinu eru
menn hins vegar titlaðir forstjórar
þótt eðlilega sé ekki um eignaraðild
að ræða í þeim tilvikum. En titlar hjá
ríkinu snúast fyrst og fremst um laun
og launaflokka. Titlarnir eru notaðir
til þess að hægt sé að borga mönnum
hærri laun.
Vilhjálmur var að því spurður hvað
hann myndi kjósa að kalla sig ef hann
sjálfur væri yfirmaður í eigin fyrir-
tæki?
„Ég mundi kalla mig framkvæmda-
stjóra ef enginn væri starfandi hjá
mér sem bæri mikla ábyrgð. En ef ég
fengi einhvem annan til þess að ann-
ast daglegt amstur og væri sjálfur að
vinna við aðra þætti eins og stefnu-
mótun, áætlanagerð og þróunarstörf
mundi ég líklega kalla mig forstjóra.
Þessi skipting er nokkuð mótuð í mín-
um huga,“ sagði Vilhjálmur Egilsson
sem hefur síðasta orðið í þessari um-
Qöllun.
38