Frjáls verslun - 01.08.1990, Síða 66
VINNUSTAÐURINN
AÐALSTÖÐVAR SAS í FRÖSUNDAVIK:
GLERIÐ í LYKILHLUTVERKI
VID HÖNNUN HÚSANNA VAR ÁHERSLA LÖGÐ Á AÐ ÖLLUM STARFSMÖNNUM
FYRIRTÆKISINS LIÐISEM BEST OG AD ÞEIR STÖRFUÐU FYRIR OPNUM
TJÖLDUM í BÓKSTAFLEGRIMERKINGU ORÐSINS!
Úti í hinum stóra heimi fer
auðvitað fram gagnrýnin um-
ræða um skipulag vinnustaða og
ugglaust margar kenningar uppi
um mikilvægi þess að þessi
íverustaður mannsins sé sem
best úr garði gerður. Stórfyrir-
tækin hafa góða möguleika á að
láta draumana rætast því saman
kemur viðamikil starfsemi,
mikill starfsmannafjöldi og fjár-
ráð til að gera hlutina sem best
úr garði.
Tíðindamenn Frjálsrar verslunar
áttu þess kost sl. vetur að sækja heim
stórfyrirtækið SAS í aðalstöðvar
þeirra í úthverfi Stokkhólms. f raun
er þar um að ræða heilt samfélag
manna sem eiga það sameiginlegt að
vera í þjónustu flugfélags, sem er
annt um að ímynd þess sé sem best.
Um leið var þess gætt við uppbygg-
ingu hinna risavöxnu aðalstöðva, að
þar liði starfsfólki vel og að háum sem
lágum í mannvirðingarstiganum væri
gert kleift að starfa saman sem ein
heild.
Við skulum skyggnast um þessa
risavöxnu byggingu eða byggingar-
klasa og kynnast þeim viðhorfum sem
stjómendur SAS vildu lýsa, þegar
byggingin var hönnuð.
SAMTENGDAR BYGGINGAR
Áður en hafist var handa um bygg-
ingu aðalstöðva SAS í Frösundavik í
úthverfí Stokkhólms, höfðu flestir
starfsmannanna og aragrúi sérfræð-
inga lagt í gríðarlega vinnu við að út-
færa hugmyndir sem lagðar voru til
grundvallar. Meginhugmyndin á bak
við samsteypuna í Frösundavik, fólst
í því að skapa gegnsætt samfélag
vinnandi manna, þar sem skil milli
yfir- og undirmanna væru þurrkuð út
og þar sem starfsfólkinu liði vel dag-
inn á enda. Mikil áhersla var lögð á
glerskilrúm og má nefna sem dæmi að
flestir fundasalir fyrirtækisins eru úr
TEXTI: VALÞÓR HLÖÐVERSSON. MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON.
66
gleri, en með því vildu menn skapa þá
ímynd að umræða um fyrirtækið
skyldi fara fram fyrir opnum tjöldum.
í aðalstöðvum SAS starfa um 1.400
manns. Áður höfðu þeir verið á um 30
skrifstofum vítt og breitt um Stokk-
hólm og því fylgdu að sjálfsögðu mikil
óþægindi og kostnaður. Jan Carlzon,
forstjóri SAS, segir í viðtali að engin
önnur fjárfesting fyrirtækisins hafi
skilað eins miklum arði eins og sú að
byggja stórhýsin í Frösundavik.
Norskur arkitekt, Niels Torp, á
heiðurinn af hönnun aðalstöðva SAS.
Til þess að draga úr þeirri tilfinningu
að þar risi gríðarstór kastali úr jámi
og gleri, brá hann á það ráð að raða
saman 5 misstórum byggingum og
hanna glerþök á milli þeirra allra.
Þannig varð til yfirbyggð göngugata,
sem setur mjög svip á þennan klasa.
Við göngugötuna eru reknir fjölmarg-
ir barir og smáveitingahús og þar
matast starfsmenn bygginganna í
stað þess að safnast saman í risavaxið
mötuneyti. Menn hittast í smærri
hópum og skreppa í vinnuhléum út
undir glerþakið til að fá sér kaffisopa,
kíkja í blöðin og rabba við samstarfs-
mennina.
í hádeginu á föstudögum eru lista-
menn ráðnir til að hafa í frammi hljóð-
færaleik og söng og reynt er með
öllum ráðum að skapa andrúmsloft
sem líkist því sem finnst í rólegri
göngugötu í venjulegri borg.