Frjáls verslun - 01.07.1997, Blaðsíða 58
jtV x - ;*,**.■* »*£«$
n ——
;..- > - - J
:-Sb.*r:Zieni%- AA;
tekjur liðanna eru af sjónvarpsútsend-
ingum. Það þýðir að þau verða að vera
heppin með andstæðinga - sem helst
þurfa að vera þekktir og frá rótgrónni
knattspyrnuþjóð. Hins vegar hefur
fjölgun liða í Austur-Evrópu, vegna
pólitískrar þróunar í álfunni, gert það
að verkum, að nú eru mun minni líkur
á því en áður að íslensk lið dragist á
móti sterkum andstæðingum.
Jónas Kristinsson, framkvæmda-
stjóri knattspyrnudeildar KR, hefur
kynnt sér ítarlega þær nýju reglur
sem keppt er eftir í dag. Hann segir að
íslensku liðin þurfi nú að sæta því að
komast áfram úr forkeppnum lakari
liða til þess að öðlast möguleika á því
að lenda á móti einhverjum af þeim
bestu í Evrópu. Hann segir einnig að
það sé hagur allra að öll íslensku liðin
standi sig til að hækka á styrkleika-
lista Evrópu.
„Islandsmeistarar Akraness tóku
þátt í meistarakeppni Evrópu. Þar er
keppt að því að minnka Ijölda þátt-
tökuliðanna niður í 24. Árangur liða
frá Islandi gerir það að verkum að við
lendum á svæði lakari þjóða og þurf-
um þess vegna að spila í forkeppni til
þess að öðlast réttinn til að spila í
keppni þeirra 24 bestu,” segir Jónas.
„Þegar styrkleiki landanna er
reiknaður út þá er árangur íslenskra
liða í Evrópukeppni á síðustu 5 árum
lagður saman og borinn saman við
Jónas Kristinsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar KR. Hann er manna
firóðastur um nýju reglurnar sem keppt er eftir í Evrópukeppnunum í knatt-
spyrnu. Margir halda að það jafngildi því að finna gullnámu að komast í þess-
ar keppnir. Svo er ekki. Megintekjurnar koma frá sölu á sjónvarpsútsending-
um - og til þess þarf mótherjinn að vera þekkt Iið frá rótgrónu knattspyrnu-
landi. FV-myndir: Kristín Bogadóttir.
R-ingar sáu glitta í 20 milljónir
handan við hornið með sigri á
OFI frá Kýpur í Evrópukeppn-
inni á dögunum. KR-ingar töpuðu hins
vegar 3-1 á Kýpur. Hafi einhver KR-
ingur verið súr með þann ósigur var
það Jónas Kristinsson, framkvæmda-
stjóri knattspyrnudeildar KR. Margir
halda að Evrópuboltinn gefi íslensku
liðunum mikið í aðra hönd - og nóg sé
fyrir þau að komast í keppnina. En því
fer víðs ijarri. Þau fá 4 milljóna króna
styrk fyrir hveija umferð frá Knatt-
spyrnusambandi Evrópu en megin-
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
KR TAPAtH 3-1A KRIT,
EN LÍKA 20 MILUÓNUM
Um 20 milljónir voru handan viö horniö hjá KR-ingum hefóu peir unnid
OFI frá Krít. Vestmannaeyingar eru hins vegar með pálmann í höndunum og fá
um 20 milljónir í hagnaö afleikjunum viö Stuttgart.
TEXTI: ÍSAK SIGURSSSON ■■■■■MHHffiHHHBHBBHBHBHHHHaBHBHHHBSMHHMMHHSBHMHæRnMMHMI
58