Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 8
/ y r i r n á m
o g s t a r f
H D L L R Á Ð
Sjálfsefling er símenntun
Ráðgjafarfyrirtækið Hollráð býður upp á fjölbreytt námskeið þar
sem blandað er saman fræðslu, þjálfun og ráðgjöf fyrir einstak-
linga og starfsmenn fyrirtækja. Vinnuveitendur leita nú í aukn-
um mæli eftir símenntunarmöguleikum fyrir starfsmenn sína,
enda gera þeir sér æ betur grein fyrir þeim auði sem felst í hæfi-
leikaríku og ánægðu starfsfólki. Fjölbreyttar þarfir og fræðslu-
efni kalla á víðtæka sérfræðiþekkingu og njótum við í því sam-
bandi krafta um 40 sérfræðinga á mismunandi fagsviðum en þar
má nefna lækna, sálfræðinga, leikara, næringarfræðinga,
presta, félagsráðgjafa, og náms- og starfsráðgjafa.
Hollar veitingar hjá Hollráðum.
„Viðfangsefnið er líðan fólks á vinnustöðum og þá beinum við ekki ein-
vörðungu kastljósinu að stjórnendum heldur leggjum við ríka áherslu á
að sinna þörfum hins almenna starfsmanns. Það að hafa verið náms- og
starfsráðgjafi og starfað á stærsta vinnustað
landsins, Háskóla íslands, í 18 ár hefur
fært mér reynslu og haldgóðar hugmynd-
ir um hvað þurfi að vera til staðar á
vinnustað til að starfsfólk fái notið sín.
Ráðgjöf og fræðsla á vegum Hollráða
tekur ávallt mið af tengslum á milli líðan
einstaklings og framlagi hans til vinnu-
staðarins. Við byggjum á heildarhugsun
þar sem tvinnast saman ástand sálar og
líkama eða andleg og líkamleg velferð og
gerum ráð fyrir því að vinnuaðstaða, verk-
efnakröfur og boðskiptakerfi segi til um
hvort þekking og hæfileikar starfsmanns fái
notið sín honum og fyrirtækinu til handa,"
segir Ásta Kr. Ragnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri ráðgjafarfyrirtækisins Hollráða.
Mannlegi þátturinn
„Heildarhugsunin nær einnig til þeirrar stað-
reyndar að einstaklingur sem fær notið sín í
einkalífi sé líklegri til að skila góðu dags-
verki," heldur Ásta áfram. „Á tímum hreyfan-
leika á vinnumarkaði, þegar „hausaveiðar" eru stundaðar fyrir opnum
tjöldum, er þetta málefni orðið mörgum fyrirtækjum hugleikið. Stjórn-
endur hafa skýrt mér frá því að þeir skoði í síauknum m'æli gildi reynslu
starfsmanna og þekkingu þeirra á innviðum og markmiðum fyrirtækisins.
Það er tímafrekt og dýrt að þjálfa fólk til sérhæfðra og flókinna verkefna
og þvf leitast fyrirtæki og stofnanir við að sinna þörfum starfsmanna á
breiðari grundvelli en áður tíðkaðist."
Öryj^ og heilindi
Uppskriftin er einföld: Ef starfsmaður finnur að fyrirtækið er tilbúið til að
taka hinn mannlega þátt með í reikninginn, hvort heldur hann tengist að-
stæðum á vinnustað eða í einkalífi, skilar það sér í heilindum starfsmanns-
ins gagnvart vinnuveitanda og hann ílengist frekar í starfi. En snertifletirn-
ir eru fleiri: „Örar breytingar eiga sér stað í samfélaginu í dag og fyrirtæki
gera auknar kröfur um heilindi starfsmanna. Starfsfólk fyrirtækja þarf að
styrkja sig, mennta og endurmennta og laga sig að nýrri hugsun og tækni.
Óöruggur starfsmaður ræktar ekki með sér heilindi. Hann veltir þá einatt
fyrir sér og efast um heilindi vinnustaðarins gagnvart sér og oft stuðlar
óöryggið að mistúlkun skilaboða í neikvæða veru. Viðgerðarþjónustan er
næstum alltaf dýrari og tekur hærri tolla þegar upp er staðið.
Fyrirtæki sem taka það mannlega með í reikninginn missa sem sagt
síður starfsfólk sitt til annarra. Það dugar skammt að slá um sig með yfir-
lýsingum um að starfsfólkið sé helsta auðlind fyrirtækjanna því skilning-
ur vinnuveitenda á þessari mikilvægu staðreynd og tengslum hennar við
afkomu fyrirtækja, þarf að birtast með áþreifanlegum hætti," segir Ásta.
Fjölskylduvæn stefiia
Samspil einkalífs og vinnustaðar er starfsfólki Hollráða
hugleikið. „Það er fagnaðarefni að sjá hversu mörg fyrir-
tæki eru orðin meðvituð um þetta og leggja sig fram um
að sýna það í verki. Þeir þættir sem geta örvað eða dreg-
ið úr starfsþrótti leynast víða og heimilið, annar höfuð-
vettvangur vinnandi fólks, skiptir hér miklu. Áhyggjur
heima fyrir draga kraft úr fólki, hvort sem þær snúast um
börnin, fjárhaginn, heilsuna eða önnur mál." Ásta bend-
ir á að þótt vinnustaðurinn geti af augljósum ástæðum
i ekki leyst allan vanda, þá séu ýmsar leiðir færar:
„Hollráð buðu í fyrrasumar upp á námskeið fyrir
börn, sem fyrirtæki foreldranna greiddu að öllu leyti
j eða að hluta til, á sömu forsendum og um starfs-
mannanámskeið væri að ræða. Hugmyndin kviknaði
út frá þeirri staðreynd að sumarleyfi barna og for-
eldra eru mislöng sem veldur mörgum fjölskyldum
áhyggjum og amstri og kemur niður á vinnuframlagi
( starfsmannsins."
\ 0
Ungir Islendingar
„Þessi námskeið eru hluti af heild sem við köllum
' Ungir íslendingar og snúast um velferð ungs fólks.
námskeið á vormisserí: (
- Samskipti /
- Líðan í starfi
- Lífsstíll - minni streita
- Einelti á vinnustað
- Að miðla í töluðu máli
- Beiting skopskyns í málflutningi
- Starfslok
- Sjálfsþekking - sjálfshvatning - starfsleit
- Áhugagreining vegna náms og starfsvals
(símenntun grunnmenntun)
- Hjónaráðgjöf
- Framkoma - líkamsheiting - útlit
- Greiningarvinna og ráðgjöf vegna
starfsanda/samskipta á vinnustað
- Skemmtisköpun - Nýsköpun/módelsm.ð
(LEGO) fyrir alla aldurshópa.
- Námskeið fyrir skólafólk
(Prófkvíði, námstækni)
- Ungir íslendingar (ýmis bamanámskeið)
í tengslum við f jölskylduvæna stefnu
fyrirtækja
8
AUGLYSIMfiAKrHNIN6